Vikupistillinn
Tímabilið 18. - 24. febrúar 2019
Punktar
- Muna að skila vikuáætlunum inn á sameign í möppuna „Áætlanir/Vikuáætlanir“.
- Nú eiga allir að vera búnir að skila inn annaráætlunum inn á sameign „Áætlanir/Annaráætlanir“.
- Logos-lestrarskimun í 3. bekk fer fram dagana 4. - 20. febrúar.
- Skólapúlsinn - foreldra- og nemendakönnun nú í febrúar.
- Munum eftir að leggja inn HÆTTU, GAKKTU, SEGÐU FRÁ, sjá Stöndum saman lesefni, kynning frá starfsmannafundi. Það má einnig nálgast í SMT möppunni. Stjórnendur munu koma í stofur með blað til að hengja upp í öllum heimastofum.
- Lestrarátak Ævars vísindamanns er frá 1. janúar til 1. mars fyrir nemendur í 1. - 10. bekk.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu nemandans.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
Mánudagur 18. febrúar
- Verið - elsta deild - Veistu svarið / kósýkvöld.
Þriðjudagurinn 19. febrúar
- Samvera hjá miðdeild undir stjórn Guðrúnar Árnýjar
- Fyrsti fundur Umhverfisráðs Hvaleyrarskóla er kl. 12:40 í fyrirlestrarsalnum.
- Fundur öryggisnefndar kl. 14:00 - 14:45.
- Á fundartíma eru deildarfundir.
- Foreldrafundur vegna Reykjaferða 7. bekkinga, kl. 18:00 í fyrirlestrarsalnum okkar.
Miðvikudagurinn 20. febrúar
- Skipulagsdagurinn 20. febrúar verður tileinkaður kennslu í fjölbreyttum námshópum. Sjá dagskrá.
- Verið - miðdeild - 6. bekkjarkvöld.
- Verið - elsta deild - opið hús.
Fimmtudagurinn 21. febrúar
- Vetrarfrí :-)
Matur og Bíó - Þriðjudaginn 19. febrúar
Febrúarnefndin býður upp á viðburð - matur í O'Leary's (15% afsláttur af réttum) í Smáralind og svo bíóferð á myndina Vesalings elskendur sem Starfsmannafélagið ætlar að bjóða starfsmönnum upp á.
Árshátíð Hafnarfjarðar laugardaginn 2. mars
Sumir komnir sko í gírinn. Spurning hvort einn hafi farið aðeins of geyst.
Frá samveru nemenda í 5. BG
Frá samveru nemenda í 5. BG
Hvalamiðar
Fréttir frá Bjargi
Þess má geta að Anna Rós var í viðtali við Spegilinn á Rás2 á fimmtudaginn kl. 18:00.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Afmælisdagar í febrúar
Ruta og Wendy eiga þann 8. febrúar, Kristinn og Ægir þann 15. febrúar og Dísa þann 28. febrúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Á döfinni
- Við erum að vinna að heilsuhorni.
- Kennaraneminn Tinna Líf Baldvinsdóttir sem er á 3. ári, verður hjá Ingu Völu og 3. IVJ frá lok janúar til loka mars.
- Innritun nemenda á starfsbrautir í framhaldsskólum haustið 2019 fer fram dagana 1.-28. febrúar nk.
Þann 25. febrúar fara nemendur í 9. bekk að Laugum.
26. febrúar - Upplestarkeppni Hvaleyrarskóla hjá nemendum í 7. bekk.
27. og 28. febrúar er myndataka hjá nemendum í 1., 4., 7., og 10. bekk. Sjá skipulag hér.
Árshátíð Hafnarfjarðar laugardaginn 2. mars. Taka daginn frá.
Þann 4. mars fara nemendur í 7. bekk að Reykjum.
Samræmd könnunarpróf verða hjá nemendum í 9. bekk þann 11., 12. og 13. mars.
Þann 15. mars fara nemendur í 9. og 10. bekk á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldskólakynningu.
Námskeið á vegum Fræðslu- og frístundasviðs
- Orðagull smáforrit - fyrir kennara á ynsta stigi, sérkennara og kennara tvítyngdra nemenda á öllum aldri. Haldið í fyrirlestarsal Hraunvallaskóla þann 4. mars kl. 14:30 - 16:00.
- Google Classroom á byrjunarreit - vinnustofa - Víðistaðaskóli (tölvustofa) - mánudaginn 25. febrúar frá kl. 14:00 - 16:00, takmarkaður sætafjöldi.
Námslotur í InfoMentor
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200