HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 12. TBL
DAGSKRÁ 4. DES. - 8. DES.
MÁNUDAGUR 4. DESEMBER
Nemendaverndarráð BS 8:30
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER
Sólgleraugnatími í kaffinu hjá starfsfólki GRV (Vinavikan)
Verkgreina og íþróttakennar með fagfund.
Fræðsluerindi fyrir allt starfsfólk GRV í sal Hamarsskóla 13:30
Nemendaverndarráð HS 8:30
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER
Deildarfundir í Bs
Hs Enginn fundur, tími nýttur í undirbúning.
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER
Föndurdagurinn í HS, nemendur í 10. bekk verða til aðstoðar. Foreldrar sérstaklega boðnir í skólann þennan dag.
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER
Höfuðföt og hárkollur í kaffitímanum fyrir starfsfólk GRV (vinavikan)
Jólasundmót í 6. og 7. bekk milli 8-9:30
Söngur í sal í HS. Litla lúðrasveitin kemur í heimsókn.
Minnum starfsfólk að yfirfara vinnustund fyrir vikuna.
Jólamatur starfsfólks á Einsa Kalda.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Þriðjudaginn 5. desember verður fræðsluerindi fyrir allt starfsfólk GRV um heimilisofbeldi í sal Hamarsskóla klukkan 13:30 - 15:30.
- Öllu starfsfólki boðið í Smorrebrod hjá Einsa Kalda föstudaginn 15. desember. Hægt verður að fara til Einsa á milli 12:30 og 14:30. Takk fyrir að vera svona frábær.
- Vinsamlegast staðfestið þátttöku ykkar hjá ritara í Hamarsskóla fyrir þriðjudaginn 12. desember, heidrun@grv.is og svo má alltaf hringja í 2200.
- Jólasundmótið í 6. og 7. bekk verður föstudaginn 8. des.
- Litla Lúðrasveitin ætlar að koma í heimsókn í Hamarsskóla föstudaginn 8. desember. Tímasetning verður auglýst seinna.
- Föndurdagurinn í HS verður 7. desember, 10. bekkur verður til aðstoðar.
- Smiðjudagar í 6. og 7. bekk verða 13. -15. des.
- Jólamatur starfsfólks verður hjá Einsa Kalda 8. des.
- Helgileikur í 5. bekk verður í kirkjunni 17. des. og í skólanum 19. des.
- Litlu jólin í 5. -10. bekk eru 19. des og í 1. - 4. bekk 20. des. Dagskrá auglýst síðar.
Tilkynningar !!
- 5. desember er fundur fyrir starfsfólk GRV um heimilisofbeldi og áhrif þess á börn.
- Nýjar verkgreinalotur í Hs hefjast 25. janúar 2018.
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur fá aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara vinnustundina sína vikulega. Gott síðasta verk áður en farið er í helgarfrí.
- Jólamatur starfsfólks er 8. desember hjá Einsa Kalda. Skráning lýkur 1. desember. Greiða þarf fyrir hádegi á þriðjudaginn 5. desember.
- Vinavika starfsfólks GRV er 4. - 8. desember.
- Hvetjum starfsfólk til að mæta í jólapeysum við hvert tækifæri nú í desember.
Afmælisbörn
Rósa Hrönn Ögmundsdóttir 6. desember
Ástríður Júlíusdóttir 7. desember 1960
Guðlaug Björgúlfsdóttir 7. desember 1947
Spakmæli vikunnar
Ef allir halda áfram með sömu sýn, þá mun árangurinn koma að sjálfu sér.
- Henry Ford
Álfakökur
Hér er uppskrift af dásamlegum smákökum frá Unni Líf.
Innihald
- 180. gr. hveiti
- 2. tsk lyftiduft
- 1. tsk salt
- 125 gr. smjör
- 330 gr. púðursykur
- 2 egg
- 2 tsk. vanillusykur
- 3/4 bolli saxaðar möndlur
- 1 bolli saxað suðusúkkulaði
Aðferð
- Bræðir smjörið við vægan hita og setjið í hrærivélaskál. Hrærið sykri, eggjum og vanillusykri vel saman við.
- Blandið þurrefnum og möndlum í.
- Setjið deigið í vel smurða (eða á b.p.) ofnskúffu og stráið súkkulaðibitum yfir.
- bakið við 175 gráður. í stuttan tíma. EKKI fara frá ofni. Tími er 7-8 mín.
ATH
Deigið lyftist fljótlega og þegar það hefur allt fallið niður og krumpast þá á að taka skúffuna úr ofninum og skera strax í bita. Þá er hún mátulega blaut. Ef hún ofbakast verður hún hörð.
Hrós vikunnar fá
GRV fræðsla á facebook
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.