HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 2. TBL
DAGSKRÁ 4. september - 8. september
MÁNUDAGUR 4. september
Fagfundur í náttúrufræði í BS boðaður í þessari viku.
ÞRIÐJUDAGUR 5. september
MIÐVIKUDAGUR 6. september
Enginn fundur hjá kennurum, tími nýttur í undirbúning.
Göngum í skólann hefst á landsvísu.
FIMMTUDAGUR 7. september
Göngum í skólann í GRV- vinabekkir hittast á milli kl. 8:00 og 10:00
Örnámskeið í Leið til læsis fyrir kennara í 1. bekk og þá kennara á yngsta stigi sem ekki þekkja hugmyndafræðina.
Stjórnendafundur í BS kl. 15:00
FÖSTUDAGUR 8. september
Dagur læsis
Takk fyrir góða skólabyrjun og góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Göngum í skólann hefst formlega á landsvísu miðvikudaginn 6. september og stendur til 4. október. Við hefum verkefnið formlega fimmtudaginn 7. sept. með því að nemendur í 8. - 10. bekk ganga yfir í Hamarsskóla og heimsækja 1. - 3. bekk, nemendur í 4. og 5. bekk ganga yfir í Barnaskóla og heimsækja 6. og 7. bekk.
- Heimasíða Göngum í skólann er http://www.gongumiskolann.is/
- Keppnin um Gullskóinn hjá 2. - 7. bekk hefst 11. september og stendur til 22. september.
- Dagur læsis 8. sept. Á degi læsis er fólk hvar sem er í heiminum hvatt til þess að skipuleggja læsisviðburði. Það má gera með því að elsa upp, segja sögur, fara með ljóð eða nota tungumálið á annan hátt til ánægjulegra samskipta.
- Náttúrurvísindadagar verða 12. og 13. sept. (8. - 10. bekkur)
- Dagur Íslenskrar náttúru 16. september
- Nemendur í 5. bekk ætla að fara í dagsferð upp á fastalandið 14. september
- Samræmdpróf hjá 7. bekk eru 21. og 22. september
- Samræmdpróf hjá 4. bekk eru 28. og 29. september.
- Kennarar í 4. og 7. bekk, Upplýsingar um prófinn er að finna á https://mms.is/samraemd-konnunarprof.
Tilkynningar !!
- UTÁ- þarfaplattar: Það eru margir eftir að koma plöttunum sínum upp á vegg og nokkrir eiga eftir að greina sig. Starfsfólk er vinsamlegast beðið um að koma plöttunum sem fyrst upp á veggi skólans.
- Starfsmannafélag GRV: Ósvissuferð 22. september skráningu lýkur 15. september, listar á kaffistofum skólans.
- Starfsfólk Garðaskóla í Garðabæ kemur í heimsókn í BS þann 18. september.
- Vanda Sigurgeirsdóttir kemur ekki í september, hún verður með fyrirlestur fyrir starfsfólk miðvikudaginn18. október.
- Örnefnagöngur og umhverfisstígar eru á heimasíðu GRV http://grv.is/skrar/file/namid/gonguleidir-grv-sept-2013.pdf
- Ferð 7. bekkjar á Úlffljótsvatn frestast um mánuð, verður 4. -6. október.
- Kristján húsvörður verður í leyfi 7. -16. sept.
Uppskrift vikunnar - Geggjuð Mexíkósk ídýfa
Uppskrift frá eldhussogur.com
Guðbjörg Guðmannsdóttir mælir með þessari ídýfu sem laugardags snarl eða í saumaklúbbinn.
Uppskrift:
Fyrir meðalstórt eldfast mót
- 200 g rjómaostur
- 1-2 dósir (fer eftir stærð mótsins) maukaðar pintóbaunir (refried beans) frá t.d. Old el paso eða Santa Maria
- 1 krukka jalapeno (ca. 100 g án vökva), minna fyrir mildari ídýfu, saxað smátt
- 1 dós 18% sýrður rjómi
- 1/2 bréf af taco kryddblöndu
- 1 meðalstór rauðlaukur, skorinn smátt
- ca 300 g rifinn ostur
- 2 krukkur (fer eftir stærð mótsins) taco sósa
- ca 200 g (án vökva) svartar olífur , skornar í sneiðar
- ca. 30 g ferskt kóríander, blöðin söxuð
Rjómaosti er smurt á botn eldfasta mótsins. Þá er niðursoðnu bauninum dreift jafnt yfir rjómaostinn. Jalapeno er saxað smátt og dreift yfir baunirnar. Þá er sýrðum rjóma blandað saman við hálft bréf af taco kryddi og blöndunni dreift yfir jalapenos. Því næst er smátt söxuðum rauðlauk dreift yfir sýrða rjómablönduna. Síðan er rifna ostinum dreift yfir rauðlaukinn. Þá er rifni osturinn þakinn með taco sósu. Því næst er söxuðum svörtum ólífum dreift yfir taco sósuna og loks er söxuðum kóríander blöðum dreift yfir ólífurnar.
Borið fram í t.d. Tostitos skálum (fást yfirleitt í Hagkaup) eða með Kirkland Tortilla chips sem fást í Costco.
Spakmæli vikunnar
Það eru enginn leyndarmál þegar kemur að árangri. Undirbúningur, mikil vinna og að læra að mistökum sínum, er það sem skapar árangur.
Colin Powell
Hrós vikunnar fá
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.