Vikupistillinn
Tímabilið 12. - 18. mars 2018
Heilræði vikunnar
Ný tækifæri fást ekki aðeins í upphafi nýs árs heldur blasa þau við okkur á hverjum morgni þegar við vöknum.
Næsta vika
- Bókasafnið okkar verður lokað til útláns á bókum miðvikudag - föstudags 14. - 16. mars.
- Orðarún hjá 4. - 8. bekk.
- Við viljum biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföll.
- Umgengisreglur varðandi spjaldtölvunotkun, m.a. gul- rauð- og græn svæði.
Mánudagur 12. mars
Þriðjudagur 13. mars
- Samvera hjá miðdeild.
- Vinaliðanámskeið frá kl. 8:30 - 12:00. Vinaliðar fara því úr bekkjum sínum niður á Ásvelli.
- Boðsundsmót grunnskólanna fer fram í Ásvallarlaug frá kl. 9:30 til kl. 12:00. Þar sem nemendur í 10. bekk taka þátt og varamenn eru úr 8. og 9. bekk.
- Nemendaráðsfundur kl. 14:00.
- Á fundartíma verður kynning á niðurstöðum Olweusarkönnunarinnar.
- Stóra upplestarkeppnin fer fram í Hafnarborg kl. 17:00.
- Nemendur í 10. MK eru með bingó til fjármögnunar Danmerkurferð sinni í salnum kl. 17:00.
Miðvikudagur 14. mars
- Samvera hjá yngstu deild.
- Fundur í eineltisteymi kl. 10:40.
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 13:15.
- Hæfileikakeppni miðdeildar frá kl. 17:00 - 19:00.
Fimmtudagur 15. mars
- Nemendur í 10. bekk taka könnunina Heilsa og lífskjör í salnum kl. 13:20.
- Á fundartíma verður aðstoð í tölvustofunni við gerð námslota í Mentor fyrir kennara í miðdeild, sérgreinakennara og þá sem þurfa í elstu deild.
- Keppnin í Skólahreysti fer fram í Reykjanesbæ kl. 16:00 en keppendur sem eru í 10. bekk fá leyfi frá kl. 12:00 en stuðningshópurinn leggur af stað í rútu um kl. 14:00.
Föstudagur 16. mars
- Í frímínútum koma nemendur úr Flensborgarskólanum og kynna leikritið sitt fyrir nemendum elstu deildar.
- Við stefnum á VON Mathús í lokvinnudags í dag á "Happy hour".
Fréttir frá Bjargi
- Nýr nemandi er Lina Ceka fædd 2010 og verður skráð í 2. MI. Hún kemur frá Kosovo.
- Í næstu viku koma fjögur börn. Tvö frá Palestínu bræður fæddir 2006 og 2007 og tvö frá Albaníu fædd 2007 og 2010. Ekki er búið að raða þeim í bekki.
Starfsmannasamtöl 2018 - undirbúningur
- Smelltu hér til undirbúnings á starfsmannasamtalinu: https://goo.gl/forms/ZeDOb2qXDfcrOK1L2
Nú er komið að starfsmannasamtölum og viljum við biðja þig að svara eftirfarandi spurningum fyrir samtalið.
Vert er að hafa í huga að góður undirbúningur er nauðsynlegur ef árangur á að nást með starfsmannasamtölum. Nauðsynlegt er að fara í sjálfsskoðun og meta sterkar og veikar hliðar. Hvernig er fyrirmyndar starfsmaður og fyrirmyndar kennsla?
Það er mjög mikilvægt að bæði starfsfólk og stjórnendur komi vel undirbúnir til samtalsins. Starfsmannasamtöl eru í þágu vinnustaðarins og báðir aðilar bera ábyrgð á að samtalið verði opinskátt og hreinskilið. Starfsmannasamtöl sem slík leiða að sjálfsögðu ekki til þess að leysa allan vanda en geta verið leið til að skapa traust og gott starfsumhverfi. Það sem ræður úrslitum er hvernig báðir aðilar standa að samtalinu og fylgja því eftir. Notið þetta tækifæri til að ná eigin markmiðum í starfi og meta faglega hæfni auk þess að koma á framfæri hugmyndum sem bæta vinnustaðinn.
Gagnkvæms trúnaðar verður gætt af hálfu beggja aðila. Eyðublöð sem notuð eru í samtalinu verða meðhöndluð sem trúnaðargögn. Skólastjórn getur hins vegar rætt sameiginlega um megin niðurstöður viðtalanna með það að markmiði að efla starfsumhverfið og vinnustaðinn.
Kaffiboðið góða hjá yngstu deildinni. Takk fyrir okkur.
Haraldur bæjarstjóri og Fanney sviðsstjóri.
Afmælisdagar í mars
Íris Thelma á afmæli þann 5. mars, Klara á afmæli þann 8. mars, Andrea á afmæli þann 9. mars, Kristján/Diddi á afmæli þann 12. mars Guðrún Árný á afmæli þann 23. mars og Kristjana á afmæli þann 30. mars.
Á döfinni
- Nemendur í 7. bekk fara að Reykjum ásamt umsjónarkennurum þann 19. - 23. mars.
- Forinnritun nemenda í 10. bekk í framhaldskóla fer fram 5. mars til 13. apríl.
- Stóra upplestarkeppnin verður haldin í Hafnarborg kl. 17:00 þriðjudaginn 13. mars.
- Fræðsla um geðheilsu í Heilsubænum Hafnarfirði verður fyrir nemendur í 9. bekk í mars en þá kemur Ingólfur Sigurðsson fótboltamaður í heimsókn.
- Keppni í fjármálalæsi fyrir nemendur í 10. bekk fer fram 12. - 18. mars.
- Bóka- og bíóhátíð 19. - 25. mars. Lagt er til að áhersla verði lögð á bækur Guðrúnar Helgadóttur.
- Nemendur í 10. bekk fara í PISA könnun 4. og 5. apríl.
Let's teach for mastery -- not test scores | Sal Khan
Would you choose to build a house on top of an unfinished foundation? Of course not. Why, then, do we rush students through education when they haven't always grasped the basics? Yes, it's complicated, but educator Sal Khan shares his plan to turn struggling students into scholars by helping them master concepts at their own pace.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200