Fréttabréf Norðlingaskóla
16. maí 2022
Efni þessa fréttabréfs
- Á döfinni
- Námsmat
- Hjólað í skólann
- Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts spilar fyrir nemendur
- Myndlist hjá 4. bekk
- Útskriftarferð 10. bekkjar
- Brunaæfing
- Vorskóli
- Skólahreysti
- Sagan af græna kettinum í 1.-2. bekk
- Lestrarsprettur í 3.-4. bekk
- Stærðfræði í 7. bekk
- Harry Potter á unglingastigi
Á döfinni
Þá fer að líða að lokum þessa sérstaka skólaárs en það sem er á döfinni fram að skólalokum er eftirfarandi:
Uppstigningardagur er fimmtudaginn 26. maí og þá er skólinn lokaður sem og Klapparholt.
Undirbúningsdagur starfsfólks í skólanum og Klapparholti verður föstudaginn 27. maí og þá mæta nemendur hvorki í skólann né Klapparholt.
Mikil gleði verður dagana 1.-3. júní en þá fara fram Norðlingaleikasmiðjur og Norðlingaleikar.
Annar í hvítasunnu verður mánudaginn 6. júní og þá verður bæði lokað í skólanum og Klapparholti.
Þriðjudaginn 7. júní verður samráðsdagur hjá 1.-9. bekk og útskrift 10. bekkinga.
Skólaslit og vorhátíð verða síðdegis þriðjudaginn 8. júní, en nánari tímasetning verður auglýst síðar.
Námsmat
Senn líður að skólaslitum og á samráðsdegi þriðjudaginn 7. júní fara kennarar yfir námsmatið með nemendum og foreldrum.
Kennarar eru nú í óða önn að ganga frá námsmatinu og hvetjum við forráðamenn til að fara inn í Mentor og fylgjast með verkefnaskilum og námsframvindu þannig að samráðsviðtölin verði markviss.
Við minnum á að birtingarform námsmats er tvennskonar.
Við skil á námsmati hjá nemendum í 1., 2., 3., 5., 6., 8. og 9. bekk er farið yfir námsmatið á samráðsdegi með því að skoða verkefni og hæfnikort nemenda í Mentor þar sem stuðst er við mat á námsárangri samkvæmt fjögurra þrepa litakvarða.
Við lok hvers stigs, í 4. bekk við lok yngsta stigs, í 7. bekk við lok miðstigs og í 10. bekk við lok grunnskólans, byggir námsmatið hins vegar á bókstöfunum A, B+, B, C+, C ,D. Nemendur í þessum árgöngum fá lokamat þar sem þeir eru að ljúka ákveðnu skólastigi og eru einkunnir í bókstöfunum skráðar á vitnisburðarblað hjá þessum árgöngum sem nemendum og forráðamönnum er afhent á samráðsdegi að vori.
Sjá nánar ítarlegri upplýsingar um námsmatið á heimasíðu skólans: https://nordlingaskoli.is/namsmat-i-nordlingaskola/
Hjólað í skólann
Á þessum árstíma, með hækkandi sól og veðurblíðu mæta nemendur í skólann á ýmsum farartækjum s.s. línu- og hjólaskautum, hjólum, hlaupahjólum, rafhlaupahjólum og vespum. Það er því tímabært að rifja upp viðmið sem skólinn setur um þessi farartæki hér í skólanum. Fyrst og fremst verður að ítreka að nemendur verða að nota hjálma, hjálmar hafa komið í veg fyrir alvarleg slys. Nemendur sem mæta á reiðhjólum og rafknúnum farartækjum mega ekki vera á þeim á skólalóðinni, þeir eiga að geyma þau í þar til gerðum hjólastöndum úti og hafa þau læst. Það er mjög áríðandi að nemendur hafi lása. Skólinn hefur ekki aðstöðu til að geyma farartækin innan dyra, það á við um anddyrin líka. Línu- og hjólaskautar og létt hlaupahjól má nota á skólalóðinni þar sem hraði og skriðþungi þeirra er lítill en nemendur verða að hafa hjálma. Þá viljum við ítreka að skólinn ber ekki ábyrgð á hjólum, tækjum og ýmiskonar dóti sem nemendur ákveða að taka með sér í skólann. Að þessu sögðu þá viljum við taka það sérstaklega fram að við fögnum því að nemendur mæti á hjólum í skólann, með hjálm og lás.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts spilar fyrir nemendur
Afar fræðandi og skemmtileg heimsókn.
Myndlist hjá 4. bekk
Sannkölluð listaverk hjá krökkunum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Útskriftarferð 10. bekkjar
Brunaæfing
Æfingin tókst ljómandi vel, greiðlega gekk að koma öllum út úr skólanum og koma saman á lóðinni. Unnið verður að umbótum með það sem betur má fara fyrir næstu æfingu.
Vorskóli
Þeir nemendur sem munu flytjast milli skólastiga á næsta skólaári heimsóttu ný heimasvæði og kennara og fengu innsýn í hvað bíður þeirra í haust.
Afar vel heppnaður dagur og góðar og gagnlegar heimsóknir í alla staði.
Skólahreysti
Sagan af græna kettinum í 1.-2. bekk
Meðfylgjandi má sjá nokkrar myndir sem sýna afrakstur vinnunnar.
Lestrarsprettur í 3.-4. bekk
Stærðfræði í 7. bekk
Harry Potter á unglingastigi
Yngri nemendur fylgdust áhugasamir með og fengu að koma í heimsókn í Hogwarts og upplifa ævintýrið.
Einstaklega skemmtileg og vel heppnuð vika í alla staði.
Meðfylgjandi eru þrjár myndir frá vikunni en fleiri myndir má sjá hér á heimasíðu skólans.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: https://nordlingaskoli.is/
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117640
Facebook: https://www.facebook.com/nordlingaskoli