MA-fréttir
Vorönn 2018
Myndir og frágangur: Sverrir Páll
Til foreldra og forráðamanna
Páskafríið er nú að baki og síðasta törn skólaársins framundan. Aðeins eru nokkrar vikur eftir af kennslu og síðan tekur námsmatstíminn við. Það hillir því undir vorið og lok skólaársins og viðbúið að tíminn verði fljótur að líða. Tveir opinberir frídagar eru á þessu tímabil, auk þess er kennslufall vegna starfsdags 20. apríl, námsmatsdagur 25. apríl, námsferðir nemenda, kosningar til stjórnar skólafélagsins og margt um að vera þannig að það getur þurft að skipuleggja sig vel í náminu þessar vikur.
Námið í skólanum fylgir nú tveimur námskrám; efri bekkirnir tveir eru í fjögurra ára kerfi og brautskrást með 240 einingar en 1. og 2. bekkur eru frumkvöðlar í þriggja ára kerfinu og brautskrást með 200 einingar. Skólinn lærði margt af reynslunni í fyrra og sneið af ýmsa hnökra en þetta lærdómsferli heldur að sjálfsögðu áfram. Margt þarf að hugsa upp á nýtt og skipuleggja öðruvísi því ekki er hægt að þjappa námsefni fjögurra ára á þrjú. Þótt nemendur í nýrri námskrá taki fleiri einingar á önn en í þeirri eldri hefur gengið nokkuð vel að hafa viðráðanlegt vinnuálag en vissulega er mikið að gera hjá nemendum.
En skóli er auðvitað meira en kennslustundir og próf; samheldni nemenda, félagslíf innan skólans, góður bekkjarandi og jákvætt skólaumhverfi eru mikilvægir þættir á leið nemenda til aukins þroska og þátttöku í samfélaginu og er það okkur kappsmál að skapa slíkt umhverfi í samvinnu við nemendur og forráðamenn.
Val nemenda
Val nemenda í þriggja ára kerfinu er töluvert. Um helmingur náms er bundinn í svokallaðan kjarna, en hinn helmingurinn tilheyrir brautarkjarna og valgreinum. Þar þarf þó líka að hafa í huga að velja greinar sem tilheyra svokölluðum sérgreinum brautarinnar. Nemendur völdu fyrir páska og er að mestu leyti búið að vinna úr því vali og verður fljótlega opnað fyrir það á Innu. Auðvitað komast ekki allir í þær greinar sem þeir settu í fyrsta sæti en oftast þá í annað val.
Nú á vorönninni hófst samstarf milli MA og VMA um valgreinar, nokkrir nemendur í MA sækja valáfanga í sjónlistum í VMA og nemendur úr VMA taka eðlisfræðiáfanga í MA. Næsta ár verða fleiri greinar í boði og verða um 20-30 nemendur í MA í valáföngum efra.
Vorannarpróf
Dimissio er 18. maí. Það er kveðjudagur fjórðubekkinga og þá fara þeir um bæinn í búningum og kveðja kennara sína. Yngri bekkingar kveðja 4. bekk í skólanum um morguninn.
Vorannarpróf hefjast þriðjudaginn 22. maí. Próftaflan er í Innu, einnig er hún á vef skólans.
Próftíð er frá 22. maí til 6. júní
Fyrstu bekkingar eru ekki allir búnir í prófum á sama tíma. Mála- og menningarbraut og félagsfræðibraut eru í sínu síðasta prófi 25. maí en náttúru- og raungreinabraut 29. maí.
Sjúkrapróf eru flest 1. júní og endurtökupróf 4. – 6. júní. Nemendur þurfa því að gera ráð fyrir því að próftíðin geti staðið allt til 6. júní ef þeir taka einhver endurtökupróf. Rétt er að taka fram að ekki er hægt að taka próf annarsstaðar en í MA, nema í algjörum undantekningartilfellum.
Prófsýningar verða að loknum reglulegum prófum, væntanlega eftir hádegi 1. júní. Nemendur eru hvattir til að koma og skoða prófúrlausnir sínar.
Ekki er um formleg skólaslit að ræða í yngri bekkjum heldur lýkur skólaárinu þegar nemendur þreyta sitt síðasta próf. Stúdentar eru brautskráðir 17. júní.
Þeir sem ljúka öllum áföngum sem eiga sér eftirfara, þurfa ekki að sækja um að setjast í efri bekk, nema þeir séu undir lágmarksviðmiði í skólasókn. Þeir sem hyggjast hætta námi eða taka sér hlé þurfa að tilkynna það skólastjórnendum eða námsráðgjöfum.
Frá námsráðgjöfum
Nú fer að styttast í próftíð (og þá sumarfrí líka) og mikið að gera framundan, mikilvægt er þá að hafa gott skipulag á náminu svo allt gangi nú vel.
Hvetjið börn ykkar endilega til að nýta sér þessi gögn á vefnum:
Leiðbeiningar til nemenda
Skipulags- og verkefnatafla
Vikuáætlun
Forgangsröðun verkefni
Prófkvíðanámskeið og örnámskeið í próftökutækni og vinnubrögðum verður haldið í maí.
Við hvetjum foreldra og nemendur til að hafa samband við okkur námsráðgjafa ef eitthvað er, hægt er að kynna sér þjónustu okkar betur á vef skólans,
Fall í námsgrein
Hvað gerist ef nemandi fellur í námsgrein?
Ef nemandi fellur í námgrein á haustönn, sem hann heldur síðan áfram í á vorönninni, getur hann unnið upp fallið með því að hækka sig það mikið að hann nái meðaleinkunninni 5 yfir skólaárið. Ef það tekst ekki getur hann þreytt endurtökupróf í júní. Hægt er að fara upp um skólaár þótt nemandi sé með eitt fall, en hann þarf að huga að því hvernig hann tekur áfangann síðar eða aðrar einingar í stað hans.
Endurtökupróf
Góður árangur nemenda
Nemendur skólans hafa staðið sig afar vel í ýmsum keppnum á vorönn, ekki síður en á haustönninni.
Magdalena Sigurðardóttir í 3A hlaut þriðju verðlaun í samkeppni um smásögur á ensku. Smásagnakeppnin var á vegum Félags enskukennara á Íslandi.
Af þeim nemendum sem tóku þátt í Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema komust þau Friðrik Snær Björnsson, Brynja Marin Bjarnadóttir, Sindri Unnsteinsson og Friðrik Valur Elíasson áfram í forkeppninni, en Sindri lenti í 12.-13. sæti í úrslitakeppninni og tryggði sér þar með þátttökurétt í Norrænu stærðfræðikeppninni.
Fleira mætti telja og því er óhætt að segja að nemendur hafi staðið sig vel og er þá ekki getið allra þeirra nemenda sem taka þátt í margvíslegum íþróttakeppnum.
Salir
Nokkrum sinnum hefur verið kallað á Sal á vorönninni en þá fellur kennsla niður einhverra hluta vegna og nemendur safnast saman á sal skólans, Kvosinni. Í byrjun febrúar var boðað til skólafundar þar sem rætt var um ástundun og virkni í námi. Sonja Sif Jóhannsdóttir flutti stutt erindi fyrir hönd kennara og Hulda Margrét Sveinsdóttir 2. F fyrir hönd nemenda. Fundarstjórn og undirbúningur var í höndum nemenda. Einnig var haldinn skólafundur með 2. og 3. bekk til að ræða fyrirkomulag útskriftarferða.
Tvívegis hefur verið sungið á söngsal og í vikunni sem leið var árlegur lagabreytingafundur í tengslum við kosningar til skólafélagsins. Þann 18. apríl verður salur í tengslum við jafnréttisviku skólans. Í maí verður síðan hringt á sal vegna framboðsfundar nemenda og stjórnarskipta.
Þrátt fyrir að þurfi að fara yfir mikið námsefni og nemendur þurfi á öllum sínum kennslustundum að halda er líka mikilvægt að geta brotið upp skólastarfið og gefið nemendum tækifæri til að rækta félagslíf og samkennd. Í rýnihópum nemenda á fyrsta ári kom einmitt fram að þeim þykir þetta mikilvægur þáttur skólastarfsins.
Núvitund og jóga
Í annríki dagsins og áreiti samtímans er mikilvægt að þekkja leiðir til að bregðast við slíku álagi. Nemendur í 1. bekk eru í tveimur kennslustundum á viku sem gagngert miða að því markmiði að bæta líðan þeirra og hugarró sem mögulega getur dregið úr kvíða. Þetta er annars vegar námskeið í núvitund sem er liður í áfanganum Nýnemafræðsla og hins vegar ein kennslustund á viku í jóga og slökun sem er hluti af íþróttatímum þeirra.
Úr félagslífinu
Að venju er margt um að vera í félagslífi nemenda. Kvöldvökur hafa verið vel sóttar og nemendur skipuleggja einnig sjálfir Ratatosk (opnir dagar) sem að þessu sinni var 20. – 21. mars. Lið skólans í Gettu betur keppti tvívegis í sjónvarpssal en laut í lægra haldi fyrir Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í undanúrslitum. Söngkeppni MA fór fram í Hofi í febrúar og var glæsileg. Þar söng Birkir Blær Óðinsson til sigurs.
Nemendur héldu líka góðgerðaviku í mars og var bryddað upp á ýmsum viðburðum og áheitum til að safna fé til styrktar Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi. Hópur nemenda bar t.d. sjúkrabörur yfir Vaðlaheiði í heldur hryssingslegu veðri.
Leikfélagið sýndi LoveStar eftir Andra Snæ Magnason í Hofi. Sýningin var afar fjölmenn og margt hæfileikafólkið sem þar lagði hönd á plóg. Hún var líka vel sótt og þurfti að bæta við aukasýningu.
Frá FORMA:
Foreldrafélag Menntaskólans á Akureyri (FORMA) var stofnað þann 19. desember 2003. Núverandi stjórn FORMA fundar mánaðarlega og fer yfir ýmis mál sem upp koma í tengslum við ólögráða nemendur skólans. Fundargerðir stjórnar má lesa á heimasíðu skólans ma.is/is/skolinn/forma/fundargerdir. Félagið hefur með einum og öðrum hætti hvatt til samstarfs foreldra, skólayfirvalda og nemenda.
Fyrirspurnum og ábendingum má koma til FORMA með tölvupósti: forma@ma.is
Góðgerða-vika
Háskóla- kynning
Heimsókn frá Chicago
Gleðilegt sumar
Menntaskólinn á Akureyri óskar öllum gleðilegs sumars og þakkar veturinn sem er að líða.
Menntaskólinn á Akureyri
Email: ma@ma.is
Website: ma.is
Location: Eyrarlandsvegi 28
Phone: 455 1555
Facebook: facebook.com/menntaskoli