Skólafréttir Urriðaholtsskóla
5. október 2020
Neyðarstig frá 5.-19. október
Eins og flest ykkar vita er búið að færa viðbúnaðarstig almannavarna upp á neyðarstig til og með 19. október og nýjar sóttvarnarreglur hafa tekið gildi https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2020/10/04/COVID-19-Breyttar-reglur-um-samkomutakmarkanir-og-skolahald/ Þar kemur m.a. fram um skólahald í leik- og grunnskólum að engar hömlur gilda hjá börnum sem eru fædd 2005 eða síðar en hjá þeim sem eldri eru gildir 30 manna hámarksregla í hverju rými, 1 metra fjarlægðarmörk og grímuskylda ef ekki er hægt að virða fjarlægðarmörk.
Hvað þýðir þetta fyrir okkur í skólanum? Jú, við verðum að vera enn meira á varðbergi og okkar markmið að er að enginn veikist í skólanum. Skólastarfið er hólfaskipt og við reynum að láta afleysingar ekki fara á milli svæða. Fundir og annað sem viðkemur starfi er á rafrænu formi.
Gestakomur í skólann bíða betri tíma. Það á líka við um ykkur kæru foreldrar og forráðamenn. Sjá frekari leiðbeiningar hér neðar. Ef nauðsyn krefur og foreldri þarf að koma inn í skólann skal það vera með grímu og í öllum forstofum er spritt og það á að spritta hendur áður en farið er inn í húsið.
Höldum árverkni, gætum að persónulegum sóttvörnum og sigrum veiruna saman.
Kærleikskveðjur frá stjórendum Urriðaholtsskóla
Leikskólastig - COVID og sóttvarnarráðstafanir
- Þegar komið er í leikskólann - starfsmaður tekur á móti barni í dyrunum, foreldrar koma ekki inn í forstofu. Banka í glugga til að vekja athygli á sér.
- Ef barn er með slappleika á það að vera heima.
- Í skólanum er passað upp þrif á yfirborðsflötum. Blöndun á milli heimasvæða er takmörkuð.
- Fylgja þarf börnum á Holti inn um aðal inngang, ekki er heimilt að fara í gegnum húsið þegar farið er með systkini á annan stað. Þegar börn eru sótt er bara í boði að koma í forstofu (þau sem eru sótt á Klif þá fara þau með fara með útifötin með sér yfir).
- Þegar barn er sótt er bankað í glugga og starfsfólk græjar barn og fylgir út í dyr. Þetta er það sem við munum prófa til að byrja með og sjá hvort að gangi ekki upp.
- Allt fer heim á föstudögum til að auðvelda þrif og sótthreinsun.
Gunnskólastig - COVID og sóttvarnarráðstafanir
- Ef foreldrar fylgja barni í skólann er kvatt fyrir utan skólann.
- Ef barn er með slappleika á það að vera heima. Veikindi tilkynnt í Mentor eða hringt.
- Í skólanum er passað upp þrif á yfirborðsflötum. Blöndun á milli heimasvæða er takmörkuð.
- Ef barn er sótt í skólann þarf fullorðinn að bíða fyrir utan. Senda skilaboð eða hringja ef um frávik á tíma er að ræða.
- Foreldrar / forráðamenn koma ekki inn í skólann nema brýna nauðsyn beri til.
- Handþvottur barna er í upphafi dags, fyrir og eftir matmálsstundir. Þegar komið er inn úr útivist.
- Þvottur á yfirborðsflötum eins og reglulegur.
Vinátta
Aðlögun leikskólabarna
Í dag eru 155 leikskólabörn í Urriðaholtsskóla og 89 grunnskólasbörn sem er fjölgun um 70 börn á milli skólaára.
Umhverfismennt
Ólympíuhlaup ÍSÍ
Sögustund
Hringtorg - ekki bílastæði
Þið sem gleymið ykkur megið eiga von á leiðbeiningum frá okkur, en við munum senda starfsfólk út til að minna þá á sem gleyma sér.
Gullkorn inn í daginn
Hamingjusamur á fætur ég fer, fullur af bjartsýni og gleði.
höf. Steinn G. Hermannsson
URRIÐAHOLTSSKÓLI ER HNETULAUS SKÓLI
Urriðaholtsskóli
Email: urridaholtsskoli@urridaholtsskoli.is
Website: urridaholtsskoli.is
Location: Vinastræti 1-3, 210 Garðabæ
Phone: 591-9500