Bundið áfangaval og valáfangar
Haustönn 2019
Munið að huga að undanförum!
Ef þú vilt skipta um braut getur þú valið brautina eða haft samband við áfangstjóra eða náms- og starfsráðgjafa!
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - BLAK (BLAK2ÞJ05)
Undanfari: BLAK1ÞJ05
Afreksíþróttasviðsáfangi í blaki. Áhersla á þjálffræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - GÖNGUSKÍÐI (GÖSK2ÞJ05)
Undanfari: GSKÍ1NÆ05
Afreksíþróttasviðsáfangi á gönguskíðum. Áhersla á þjálffræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - HANDBOLTI (HAND2ÞJ05)
Undanfari: HAND1NÆ05
Afreksíþróttasviðsáfangi í handbolta. Áhersla á afreksþjálfun.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - KNATTSPYRNA (KNAT2ÞJ05)
Undanfari: KNAT1NÆ05
Afreksíþróttasviðsáfangi í knattspyrnu. Áhersla á þjálffræði.
AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ - KÖRFUBOLTI (KÖRF2Þj05)
Undanfari: KÖRF1NÆ05
Afreksíþróttasviðsáfangi í körfubolta. Áhersla á þjálffræði.
BARNABÓKMENNTIR (ÍSLE3BB05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: ÍSLE2MG05
Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabókmennta og fræðast um mál og menningarheim barna. Jafnframt lesa nemendur yfirlitsgreinar um málþroska, máltöku og ritun barna og fá yfirlit yfir íslenskar rannsóknir um þessi efni.
BÓKFÆRSLA (BÓKF2BE05)
VALÁFANGI/ÍÞRÓTTAEINING
Undanfari: Enginn
Það er öllum nauðsynlegt að gera sér grein fyrir bókhaldshringrásinni og skilja hvernig tekjur og gjöld hafa áhrif á eigið líf. Áfanginn er um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir og skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram einfaldan efnahags- og rekstrareikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt. Áfanginn er að mestu unnin í Excel. Eftir þetta námskeið eiga nemendur að vera færir um að sjá um eigið bókhald og bókhald lítilla félaga.
Ætlunin er að hafa áfangann kenndan sem 100% fjarnám, dagskólanemendur munu samt geta hitt kennara ef þörf er á.
DANSKT MÁL OG SAMFÉLAG II (DANS2UB05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: DANS2BF05
Nemendur kynnast dönskum bókmenntum og hvernig þær endurspelga danskt samfélag. Nemendur fái munnlega þjálfun í að tjá sig munnlega, kynnast hinum ýmsu mállýskum og hvar þær eru sterkastar. Farið verður í uppruna dönskunnar og skyldleika hennar við íslensku, tengsl landanna og áhrif þeirra á íslenska menningu og samfélag. Einnig farið stuttlega yfir sögu og menningu Færeyja og Grænlands, stöðu dönskunnar í þeim löndum og ríkjasamband þeirra við Danmörku.
EFNAJAFNVÆGI (EFNA3EJ05)
Undanfari: EFNA2AE05
Í þessum framhaldsáfanga í efnafræði verður byggt ofan á grunnatriði almennrar efnafræði. Helstu efnisatriði eru orka í efnahvörfum, virkjunarorka og hvarfhraði, efnajafnvægi, oxun-afoxun, hálfhvörf, oxunartölur, sýrur, basar og pH-gildi.
ERFÐAFRÆÐI (LÍFF3EF05)
Undanfari: LÍFF2LE05
Í áfanganum, sem er valáfangi í erfðafræði fyrir náttúruvísindabraut er gerð grein fyrir sögu erfðafræðinnar ásamt grunnþáttum frumu-, sameinda- og stofnerfðafræði. Fjallað verður um Mendelskar og fjölgena erfðir og helstu aðferðir við rannsókn erfðasjúkdóma. Leitast verður við að kynna nýjustu niðurstöður slíkra rannsókna ásamt aðferðafræði og hagnýtingu erfða- og líftækni.
FAB LAB - RAFEINDATÆKNI OG FORRITUN (FABL2RF03)
Undanfari: Enginn
Kennd eru nokkur grunnatriði forritunar og rafeindatækni í gegnum forritanlega tölvueiningu sem getur unnið með margvíslega nema og skynjara og stjórnað búnaði (Arduino).
FÉLAGSFRÆÐI ÞRÓUNARLANDA (FÉLA3ÞF05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLA2KS05
Í áfanganum er fjallað ítarlega um skiptingu heimsins í efnahags-, og menningarsvæði. Skilgreindar eru hugmyndir sem liggja að baki hugtökum sem lýsa mismunandi stöðu ríkja, svo sem ”vanþróuð lönd”, ”þriðji heimurinn” og ”Suðrið”. Fjallað er um ólíka merkingu þróunarhugtaksins og gerð grein fyrir sögulegum, efnahagslegum, stjórnmálalegum og menningarlegum einkennum þróunarlanda. Kynntar verða kenningar um orsakir vanþróunar og hugmyndum um möguleika þróunarlanda í framtíðinni. Þróunarsamvinna og þróunaraðstoð Íslendinga verður skoðuð í ljósi kenninga.
FLÓKNARI BORÐSPIL (SPIL2BS03)
Undanfari: Enginn
Í áfanganum eru spiluð nokkur flóknari borðspil. Þessa kunnáttu getið nemendur hæglega tekið með sér út í félagslífið.
FORRITUN (TÖLF2TF05)
Undanfari: Enginn
Farið er lauslega yfir sögu forritunar, uppbyggingu tölvu og helstu stýrikerfi. Farið er í undirstöðuatriði forritunar og lausnir einfaldra forritunarverkefna í hlutbundnu forritunarmáli, t.d. Python og Pygame eða Java. Áfanginn getur hentað nemendum á öllum brautum. Helstu hugtök: Uppbygging tölvu, hugbúnaður og vélbúnaður, breytur, virkjar, fylki, heiltölur, kommutölur, gildissvið (scope), slembitölur, strengir, listar, grafík, föll, stafasett, tvíundar-, tuga- og sextándaform, búlskar segðir og skilyrðissetningar, lykkjur, inntak og úttak í textabundnum notendaskilum, athugasemdir röðun, prófun og villuleit.
FRUMKVÖÐLAFRÆÐI OG NÝSKÖPUN (FRUM2NR05)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Nemendur sem velja áfangann taka þátt í keppninni Ungir frumkvöðlar og/eða Nýsköpunarhraðall framhaldsskólanna. Í áfanganum eru kynnt ýmis hugtök og viðfangsefni í viðskiptagreinum s.s. nýsköpun, vöruþróun, stefnumótun, markaðssetning, bókhald og ársreikningar. Áfanginn er hugsaður sem kynning á viðskiptagreinum í háskólanámi sem hjálpi nemendum að átta sig á hvort þeir vilja fara í frekara nám á því sviði.
GEÐHEILSA OG GEÐRASKANIR (SÁLF3AF05)
Undanfari: SÁLF2IS05
Í áfanganum verður gefið yfirlit yfir helstu geðraskanir og einkenni þeirra. Farið verður í helstu kenningar um orsakir geðraskana. Rætt verður um ýmsa þætti sem hafa áhrif á geðraskanir, t.d. þátt erfða og taugaboðefna sem og áhættuþætti tengda umhverfi. Nemendur kynnast flokkunarkerfi geðraskana, DSM-V, og fá þjálfun í að nota kerfið til að leita sér upplýsinga um geðraskanir.
GRUNNNÁM HÁR- OG SNYRTIGREINA (HÁRGH2019)
Undanfari: Enginn
GRUNNÁM MÁLM- OG VÉLTÆKNIGREINA 1. ÁR (GRMV1H2019)
Undanfari: Enginn
HEILDUN, RUNUR OG RAÐIR (STÆR3HE05)
Undanfari: STÆR3DF05
Í áfanganum er unnið með stofnföll falla, óákveðið og ákveðið heildi og heildunaraðferðir. Deildajöfnur af fyrsta stigi eru skoðaðar og runur og raðir.
HLJÓÐ- OG LJÓSATÆKNI (HLJT1HL03)
VALÁFANGI
Undanfari: Enginn
Í áfanganum er unnið með grundvallaratriði í hljóð- og ljósatækni. Unnið er að þekkingu og skilningi á hljóðkerfum og virkni þeirra, sem og á ljósakerfum. Sérstaklega er unnið með hljóð- og ljósatækni í tengslum við uppsetningu leikrita, sýninga og viðburða.
HREYFING OG HEILSURÆKT (ÍÞRÓ1HH01)
Undanfari: 4 einingar í íþróttum
Hreyfing og heilsurækt utan skóla í samstarfi við íþróttakennara.
HÚSASMÍÐI (HÚSA1H2019)
Undanfari: Enginn
TEXTÍLVINNA, HÖNNUN OG SKÖPUN (HÖNN1TV05)
Undanfari: Enginn
Í þessum áfanga er unnið út frá endurvinnslu þar sem áherslan er lögð á að endurvinna textíl. Unnið er út frá hugmynd, rannsóknavinnu, lausnaleit og útfærslur gerðar.
INNGANGUR AÐ HEIMSPEKI (HEIM2IH05)
BRAUTARKJARNI/VALÁFANGI
Undanfari: VÍSV2VV03
Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Er guð til? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu
INNGANGUR AÐ SÁLFRÆÐI (SÁLF2IS05)
Undanfari: VÍSV2VV03
Áfanginn er byrjunaráfangi í sálfræði. Fræðigreinin sálfræði er kynnt fyrir nemendum, upphaf hennar og þróun. Helstu kenningar og fræðimenn sálfræðinnar eru skoðaðar. Rannsóknaraðferðir sem notaðar eru í sálfræði eru kynntar fyrir nemendum og þeir vinna verkefni þar sem þeir spreyta sig á vísindalegum vinnubrögðum sálfræðinnar. Grunnhugtök og sálfræðistefnur eru kynntar, fjallað um samspil á milli hugsunar, hegðunar og tilfinninga. Sjálfsmynd og mannleg samskipti eru skoðuð og aðferðir sálfræðinnar skoðaðar.
INNGANGUR AÐ RÉTTARVÍSINDUM (RVÍS2IR05)
Undanfari: VÍSV2VV03
Inngangur að réttarvísindum er valáfangi fyrir alla nemendur sem hafa áhuga á vísindalegri nálgun við lausn glæpamála. Í áfanganum eru marvíslegir þættir teknir fyrir s.s. gerð sönnunargagna og söfun þeirra. Í verklegum tímum verður unnið að greiningu erfðaefnis (DNA), mat gert á blóðslettum og leitað að vísbendingum um sök með krufningu. Einnig verða kynntar afleiðingar ákveðinna eitrana og fingraför greind. Nemendur kynna sér valin sakamál og þurfa að vinna að lausn verkefna um margþætt glæpamál. Námið er leiðsagnarnám með áherslu á jafningjafræðslu. Nemendur taka þátt í öflun þekkingar og að móta viðfangsefni kennslustunda með kennurum.
INNGANGUR AÐ UPPELDIS- OG MENNTUNARFRÆÐI (UPPE2UM05)
Undanfari: VÍSV2VV03
Í áfanganum er uppeldi skoðað frá ýmsum sjónarhornum. Fjallað er um foreldrahlutverkefnið og rætt um hverju væntanlegir foreldrar geta búist við þegar von er á barni. Kynntar eru aðferðir atferlisstefnunnar við uppeldi og agastjórnun.
KVIKMYNDAGERÐ I (KVMG1IK05)
Undanfari: Enginn
Markmið áfangans er að kynna nemendum grunnatriði kvikmyndagerðar. Í áfanganum kynnast nemendur grunnatriðum í kvikmyndagerð, læra að greina kvikmyndir og erindi þeirra í samfélaginu. Nemendur kynnast undirstöðuatriðum í öllum helstu faggreinum innan kvikmyndagerðar og kvikmyndatækni og helstu þáttum í handritagerð, framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis og eftirvinnslu þeirra. Nemendur gera í lok áfangans stutt myndband.
KVIKMYNDAGERÐ III (KVMG3KV05)
Undanfari: KVMG2KV05
Í áfanganum framleiða nemendur eina mynd - leikna eða heimildarmynd - sem þeir annað hvort framleiða eða leikstýra, eða bæði, en lögð er áhersla á vinnu nemenda sem snýr að því að finni og velji hugmynd, velja og raða samnemendum í áfanganum í stöður fyrir hvert verkefni, og velja leikara með ígrundun. Nemendur byggja ofan á þekkingu úr fyrri kvikmyndaáföngum og þróa og þjálfa leikni sína og hæfni við að framleiða og undirbúa slík verkefni. Í áfanganum er líka skoðað hvernig senur er krufnar listrænt fyrir tökur, og skoðaðar verða sérstaklega 5 kvikmyndir í fullri lengd á önninni mtt verkefna annarinnar.
LEIKLIST (LEIK2LE05)
Undanfari: Enginn
Í áfanganum fá nemendur kynningu og innsýn í heim samtíma leiklistar og verklega þjálfun í því að vinna skapandi með rými, hljóð og líkama. Nemendur eru kynntir fyrir þeim möguleikum sem sviðslistarmiðillinn hefur upp á að bjóða og þeir þjálfaðir í að nýta þá möguleika til úrvinnslu og framkvæmda hugmynda sinna. Áhersla er lögð á þjálfun í að nýta sköpunaraðferðir, innrömmun hugmynda og hæfni til að útfæra þær á listrænan hátt með skýrri heildarmynd. Að auki verða grunnþættir leiksýningagreiningar kynntir, farið verður með nemendur áfangans í leikhús og fá þeir í kjölfarið tækifæri til að spreyta sig á greiningum.
LÝÐHEILSUDAGURINN (LÝHR2HD03)
Undanfari: Enginn
Í áfanganum vinna nemendur að því að undirbúa og standa fyrir íþróttadegi í skólanum en í lok áfangans verður haldinn stór íþróttadagur í íþróttahúsinu þar sem allur skólinn tekur þátt. Í áfanganum þurfa nemendur að hugsa út fyrir kassann til að virkja samnemendur sína til að hreyfa sig og hugsa vel um heilsuna í sem víðustum skilningi.
MENNINGARSAGA (SAGA3MH05)
Undanfari: SAGA2FR05
Í áfanganum verður áhersla lögð á uppruna vestrænnar menningar. Sjónum beint að fornum menningarsamfélögum við Miðjarðarhaf, Forn – Grikkjum, Rómverjum og Egyptum og framlagi þeirra til nútímamenningar. Skoðuð áhrif gyðingdóms og kristni á vestræn menningarsamfélög í fortíð og nútíð. Miðaldir, borgarmenning, endurreisn og einveldistíminn og sjónum beint að þjóðfélagsbreytingum sem endurspeglast í menningu og listum. Upplýsingin og rómantíkin verða könnuð á svipaðan hátt með tilliti til samfélagsbreytinga og hvernig sjá má merki þessara stefna í nútímamenningu.
RITLIST - SKAPANDI SKRIF (ÍSLE3RS05)
VALÁFANGI
UNDANFARI: ÍSLE2MG05
Í áfanganum verða kenndar aðferðir í skapandi skrifum, nemendur fá rými og leiðsögn í að þróa eigin stíl og þjálfa ritfærni. Meðfram verða lesnir mismunandi textar og farið í ýmiskonar æfingar sem veita innblástur. Sem dæmi verður farið út í gerð handrits fyrir kvikmyndað eða leikið efni, ljóð, smásögur, skáldsögur, gjörninga með texta og fleira. Verkefni áfangans verða fjölbreytt og oftast geta nemendur valið sér form texta til að vinna með. Lögð er áhersla á sköpun nemenda og er sjónum beint að verklegum æfingum.
SÉRHÆFING Í ÍÞRÓTTAGREIN (ÍÞRÓ1SÉ01)
Undanfari: Enginn
Áfangi ætlaður nemendum sem leggja stund á íþróttagreinar en eru ekki nemendur á afreksíþróttasviði.
SJÚKRALIÐANÁM (SJÚKH2019)
Undanfari: Eins árs nám í framhaldsskóla
SPÆNSKA - KYNNING (SPÆN1KS03)
Undanfari: Enginn
Áfanginn er kynningaráfangi í spænsku og miðar að því að kynna tungu og menningu. Unnið er með fjögur grunnatriði (að skilja, tala, skrifa og lesa).
ATHUGIÐ AÐ ÞESSI ÁFANGI ER EKKI HLUTI AF 3. TUNGUMÁLI SEM ER SKYLDA Á ÖLLUM STÚDENTSBRAUTUM!
STÁLSMÍÐI (STÁLH2019)
Undanfari: Grunnnám málm- og véltæknigreina
STJÓRNMÁLAFRÆÐI (FÉLA2ST05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: FÉLV1IF05
Í þessum áfanga eru stjórnmál og stjórnmálafræði viðfangsefnið. Íslenska valdakerfið skoðað, þrískipting ríkisvaldsins og samspil helstu valdþátta. Umfjöllunarefni áfangans eru stjórnskipun, stjórnsýsla, lýðræði og mannréttindi, hugmyndafræði, stjórnmálastefnur, stjórnmálasaga og stjórnmálafræðin sem fræðigrein.
STJÖRNUFRÆÐI (EÐLI2SF05)
BUNDIÐ ÁFANGAVAL/VALÁFANGI
Undanfari: VÍSV2VV03
Í áfanganum verða skoðaðir hlutir eins og sólkerfi, fjarreikistjörnur, líf pláneta, svarthol, plánetur sem hægt væri að lifa á. Nemendur kynna sér efnið og vinna að lausn verkefna um hina ýmsu þætti himingeimsins. Námið er leiðsagnarnám með áherslu á jafningjafræðslu. Nemendur taka þátt í öflun þekkingar og að móta viðfangsefni kennslustunda með kennurum.
Teikning og vatnslitir (TEIK1GR05)
VALÁFANGI
Undanfari: EnginnÍ þessum áfanga er kennd teikning þarr sem áhersla er lögð á form, línur og skyggingu. Unnið er með nánasta umhverfi. teikningar yfirfærðar yfir í vatnslit, farið í litahringinn og vatnslitatækni.
TÖLFRÆÐI OG ÁLKYKTUNARTÖLFRÆÐI (STÆR3ÁT05)
Undanfari: STÆR2LT05
Unnið með lýsandi og ályktunartölfræði, s.s. töluleg gögn og myndræna framsetningu, einkennistölur fyrir gagnasöfn og dreifingu. Normaldreifing, t-dreifing og kí-kvaðrat.
UNDIRBÚNINGUR OG ÞÁTTTAKA Í ERASMUSVERKEFNI - FRAKKLAND (ERLS1UF02)
Undanfari: Enginn
Í áfanganum er unnið að undirbúningi og þátttöku í Erasmusverkefni. Unnið er að móttöku franskra nemenda og farið í ferð til Frakklands vorið 2020.
UPPLÝSINGATÆKNI OG VEFSÍÐUGERÐ (UPPT1UV05)
Undanfari: Enginn
Í áfanganum þjálfast nemendur í notkun töflureiknis og hugbúnaðar til ritvinnslu, glærugerðar og tölvupóstssamskipta. Þá verður farið í leit á Netinu og hvernig meta á gögn sem leitað er eftir. Einnig kynnast nemendur einfaldri vefsíðugerð.
VÉLSTJÓRN A (VÉLAH2019)
Undanfari: Grunnnám málm- og véltæknigreina
VÉLSTJÓRN B/VÉLVIRKJUN (VÉLBH2019)
Undanfari: Vélstjórn A
YNDISLESTUR - ENSKA (ENSK3YN05)
Undanfari: ENSK3FO05
Áfanginn gengur út á að nemendur lesi enskan texta sér til ánægju og yndisauka. Í stað tímasóknar er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda þar sem þeir nýta tímann til lesturs og verkefnavinnu sem tengist textanum. Nemendur velja sér sex bækur af lista sem gefinn verður út, lesa þær og skila inn skýrslum. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að útvega sér lesefnið.
ÞREKMÓT FRAMHALDSSKÓLANNA (ÍÞRÓ1ÞF01)
VALÁFANGI/ÍÞRÓTTAEINING
Undanfari: Enginn
Þrekþjálfun, undirbúningur fyrir Þrekmót framhaldsskólanna.
Menntaskólinn á Ísafirði
Email: misa@misa.is
Website: www.misa.is
Location: Torfnes, Ísafjörður, Iceland
Phone: 450 4400
Facebook: https://www.facebook.com/menntaisa/