Föstudagsfréttir
vikuna 13. - 17. janúar
Jákvæður agi
Þessa vikuna var unnið með Jákvæðan aga og var unnið í litlum hópum á fimm stöðvum. Á einni stöð var unnið með hópefli og skemmtu nemendur sér vel!
Á annarri stöð var lesin dæmisaga fyrir þau sem fjallaði um nemanda sem brýtur á friðhelgi bekkjarsystur sinnar. Rætt var um líðan, afleiðingar og hegðun gagnvart öðrum. Nemendur hlutstuðu mjög vel á söguna og voru góðar umræður í kjölfarið um það hvernig við komum fram við hvort annað.
Evrópuþema
Í næstu viku hefst nýtt þema og í þetta sinn verður unnið með Evrópu, sem verður ótrúlega skemmtilegt og fræðandi.
Stóra upplestrarkeppnin
Undirbúningur fyrir stóru upplestrarkeppnina í 7.bekk er hafinn og felur það í sér að nemendur lesa textabrot upphátt í litlum hópum, velja sér ljóð til að lesa í keppninni og margt fleira til að þjálfa sig í upplestri, framkomu og tjáningu.
Keppnin hér í skólanum verður haldin mánudaginn 24. febrúar.
Foreldraviðtöl
Minnum á að það opnaði fyrir skráningar í foreldraviðtöl í dag.
Viðtölin fara fram þann 27. og 28. janúar
Lestrarpróf
Við erum að lestrarprófa alla í janúar og munum foreldrar fá niðurstöðurnar í foreldrarviðtölunum.
Vikusamantekt
Vikan gekk vel og eru nemendur almennt duglegir og vinnusamir. Það er búið að vera mikið um veikindi og biðjum við um að nemendur komi ekki fyrr en að þeir eru tilbúnir að taka að fullan þátt í öllu skólastarfi og fara út í fríminútur telst hluti af skólastarfi
Góða helgi
6. og 7. bekkjar teymið