Lausnir í breyttum aðstæðum
Upplýsingar tengdar lífi, námi og kennslu við skólalokun
Breytt fyrirkomulag náms og kennslu
Kæru nemendur og forráðamenn
Við munum öll þurfa að temja okkur breytt vinnubrögð en með jákvæðni, þolinmæði og lausnamiðaðri hugsun veit ég að okkur tekst þetta. Við verðum kannski ekki meistarar á einni nóttu í breyttum háttum en með sameinuðu átaki munum við komast á leiðarenda.
Hér fyrir neðan er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar sem ég hvet nemendur og forráðamenn til að kynna sér vel.
Kær kveðja,
Lilja skólameistari
Kennslustofur í vefumhverfi
Mikilvægt er að vera með heyrnartól með míkrófóni - þarf ekki að vera flókin græja, heyrnartól sem fylgja símum duga í flestum tilvikum.
Nemendur eiga að mæta þar í tíma stundvíslega samkvæmt stundaskrá.
Hér fyrir neðan má sjá kennslumyndband um Bláa hnöttinn.
Námsráðgjöf verður áfram aðgengileg
Nemendur bóka þá fundi í síma 4771620 eða í gegnum tölvupóst (gudnybjorg@va.is).
Nemendur sem hafa haft fastan viðtalstíma halda honum og munu fá sendan hlekk í tölvupósti (sjá í kennslumyndbandi).
Guðný náms- og starfsráðgjafi og Karen aðstoðarskólameistari eru að vinna í að opna þessa facebook síðu ásamt instagram aðgangi undir nafninu, Nemendaþjónusta VA.
Það eru öðruvísi tímar framundan hjá okkur hér í skólanum næstu vikur og ákváðum við því að opna betur á þjónustu í gegnum samfélagsmiðla.
Það getur verið mikil áskorun að stunda nám í fjarnámi en á meðan skólinn er lokaður geta nemendur (og forsjáraðilar) haft samband við okkur í gegnum síma, tölvupóst eða óskað eftir fjar-viðtali við Guðnýju í gegnum Teams.
Ekki hika við að hafa samband við þær ef eitthvað er - við komumst í gegnum þetta allt saman í sameiningu
Samskipti við skrifstofu og umsjónarkennara
Húnæði skólans er læst og aðeins aðgengilegt starfsfólki.
Ef þið þurfið að ná í skólann þá er svarað í síma frá kl. 8:00 til 12:00. Þess utan er bent á heimasíðu skólans þar sem netföng alls starfsfólks er að finna.
Umsjónarkennarar eru til staðar fyrir nemendur - sendið þeim línu ef þörf er á.
Mikilvægt að halda rútínu!
Nú þegar skólahald færist í annað form er mikilvægt fyrir okkur öll að halda okkar venjubundnu rútínu.
Hér fyrir neðan eru punktar sem hjálpa ykkur við að halda rútínunni.
Upphaf skóladags
- Gott er að halda morgunrútínu líkt og venjulega, t.d. fara í sturtu, klæða sig, borða morgunmat, o.s.frv.
- Reynið að hafa ákveðinn stað sem þið lærið á, s.s. við skrifborð.
- Mætið stundvíslega í tíma í Bláa hnettinum.
Heilsa, líðan og samskipti
- Notið eyður í stundatöflu vel, njótið þeirra og komið endurnærð í næstu kennslustund
- Mikilvægt er að vera í sambandi við samnemendur yfir daginn, nýtið tæknina, spjallþræði og myndsamtöl til þess
- Hugið að jákvæðu orðalagi í textaskilaboðum svo ekki verði misskilningur á líðan og finnið ykkar eftirlætis tjámerki til að létta andrúmsloftið
- Finnið það sem gerir ykkur gott, hvort sem það er göngutúr, léttar æfingar eða annað
- Nauðsynlegt er að fara út í ferskt loft a.m.k. einu sinni á dag
- Finnið gleðina og húmorinn í þessum aðstæðum og finnið kostina við tímabundið fjarnám
- Sýnið ykkur mildi, oft er fólk afkastameira í ró og næði heima, gefið ykkur klapp á bakið við og við og fagnið árangri ykkar í náminu
- Skipuleggið vel vinnu við þau verkefni sem þið þurfið að vinna.
- Munið að hugsa vel um ykkur.
- Passið vel upp á að ná góðum nætursvefni og munið að það er mikilvægt að halda góðri rútínu í svefni.
Verklegir áfangar - lausnir á meðan lokað er
Verklegir áfangar eru krefjandi úrlausnarefni þessa dagana. Nemendur er hvattir til að opna kennsluvefi í öllum áföngum og skoða þar skilaboð frá kennurum varðandi fyrirkomulag. Í sumum tilfellum fellur kennslan niður, í öðrum er leitað annarra leiða.
- Deildarstjóri hefur undirbúið nemendur fyrir vinnu við námið heima í ákveðnum verknámsáföngum. Aðrir verknámsáfangar fá í staðinn meira vægi þegar opnað verður aftur.
Rafiðndeild
- Kennarar koma upplýsingum til nemenda sinna um útfærslu verklegra áfanga.
Málmiðndeild
- Fjölgað verður kennslustundum í fagbóklegum áföngum á meðan lokun varir - þegar opnað verður aftur fjölgar hins vegar kennslustundum í verklegum áföngum.
- Sjá stundatöflur hér fyrir neðan.
Byggingaiðndeild - húsasmíði
- Fjölgað verður kennslustundum í fagbóklegum áföngum á meðan lokun varir - þegar opnað verður aftur fjölgar hins vegar kennslustundum í verklegum áföngum.
- Sjá stundatöflur hér fyrir neðan.
Mötuneytiskostnaður
Reikningar á gjalddaga í apríl hafa verið felldir niður í bili á meðan skoðað er hvernig eigi að bregðast við skólalokun gagnvart mötuneytiskostnaði.
VA er í samstarfi við aðra heimavistarskóla með mötuneyti hvað þetta varðar og er málið í skoðun hjá skólunum.