Stiklur
Gleðilegt sumar
Páskafríið
var ljúft og gott. Fínt að byrja á viku sem þessari: góður starfsdagur á Fáskrúðsfirði, kennsludagur, sumardagurinn fyrsti og svo kennsludagur. Næsta vika er líka með frídegi, 1. maí.
Heilsufarsskoðun
sjötta og sjöunda maí næstkomandi verður starfsfólki Nesskóla boðið upp á heilsufarsskoðun. Skoðunarþættir eru:
Blóðþrýstingur og púls
Heildarkólesteról
Blóðsykur
BMI, hæðar og þyngdarmæling
Skráning er á þar til gerðum blöðum á kaffistofunni... :)
Stigsfundir
Á þriðjudaginn verða stigsfundir. Gott tækifæri til að huga aðeins að lokadögunum, vonandi verður gott veður í maí og mörg tilefni til útikennslu. Þetta er þó ekki síðasti stigsfundur annarinnar svo það gefst tækifæri til að skipuleggja nánar síðar.
Starfsmannamál
Eins og þið eflaust vitið var auglýst eftir kennurum, ljóst er að auglýsa þarf áfram því ekki bárust umsóknir frá réttindafólki, en umsóknir þó.
Þjóðleikur
Nemendur í leiklistarvali hafa æft stíft undanfarið fyrir Þjóðleik, uppskeruhátíð verður fimmtudaginn 2. maí og óskum við krökkunum og leikstjóranum Þórfríði góðs gengis. Að kvöldi 1. maí, eða klukkan 20:00, verður sýning hér í skólanum.
Event Information
Gleðistund
When?
Friday, May 3, 2019, 04:00 PM
Where?
Hótel Hildibrand
Tæknihornið
Þessari síðu er ætlað að vera handraði fyrir kennara og nemendur sem vilja nýta sér upplýsingatækni í skólastarfi. Markmiðið er að safna hugmyndum að verkfærum og gera þau aðgengileg svo þau nýtist í daglegu starfi.
Eitthvað fyrir alla!
Eitthvað fyrir alla!