HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 6. TBL
DAGSKRÁ 9. - 20. OKTÓBER
MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER
Nemendaverndarráð í BS kl. 8:15
Fagfundur í dönsku í vikunni. Fagstjóri auglýsir fundartíma og fundarstað.
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER
Nemendaverndarráð í HS kl. 13:30
Anna Rós verður í Hs frá kl. 13:00 -16:00
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER
Bleikur dagur í dag, hvetjum alla til að mæta í bleiku eða með eitthvað bleikt.
Enginn fundur - allir kennarar á leið í Herjólf :)
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER
Starfsdagur
Haustþing kennara á Flúðum
Fyrirlestur fyrir stuðningsfulltrúa og skólaliða kl. 8:00 í Hs. Dagskrá fyrir daginn verður svo send í pósti og hengd upp á kaffistofu
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER
Vetrarfrí :)
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER
Starfsmannafundur kl. 13:00 - 16:00, Vanda Sigurgeirsdóttir verður með fyrirlestur um samskipti og eineltisvarnir.
Fagfundir í verkgreinum, fagstjóri boðar til fundar í vikunni.
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER
Stjórnendafundur kl. 14:30
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER
Þing skólastjórnenda á suðurlandi, haldið á Hvolsvelli.
Áhugaverð atriði næstu vikur
Bleikur dagur í GRV miðvikudaginn 11. okt.
Bleikur dagur á landsvísu verður 13. okt. en þá er vetrarfrí hjá okkur, þess vegna ætlum við að sýna samstöðu og mæta í bleiku síðasta dag fyrir vetrarfrí.Vetrarfrí hefst 13. október, kennsla hefst aftur 18. október.
- Þing Kennarafélags Vestmannaeyja verður á Fúðum 12. október.
- Vanda Sigurgeirsdóttir verður með fyrirlestur fyrir allt starfsfólk miðvikudaginn 18. október frá kl. 13:00 - 16:00.
- Vinavika 6. -10. nóv. Baráttudagur gegn einelti verður 8. nóv. Vinabekkir heimsækja hvern annan þennan dag og nemendur vinna saman verkefni. Gerum líka eitthvað skemmtilegt saman í þessari viku.
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur fá aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
Tilkynningar !!
- Frá 1. október verður breyting á viðveru skólahjúkrunarfræðinga í GRV. Starfshlutfall þeirra hefur verið skert um 5%. Nýja viðveru má sjá á kaffistofu.
- Fríða Hrönn námsráðgjafi bætir við sig viðveru í Hamarsskóla á fimmtudögum kl. 8:00 - 10:00.
Þrír skólaliðar hafa hætt störfum í Hamarsskóla og farið í önnur störf. Þetta eru: Anna Einarsdóttir, Þuríður Ósk Georgsdóttir og Jóhanna Hafsteinsdóttir, við í GRV þökkum þeim fyrir samstarfið undanfarin ár.
Ráðið hefur verið í tvær af þessu stöðum, Íris Eir Jónsdóttir og Ivana Ryte hafa verið ráðnar í 80% stöðu hvor, vonandi verður ráðið í þriðju stöðuna sem allra fyrst.
Ferð 7. bekkjar á Úlfljótsvatn hefur verið frestað fram í maí.
- List fyrir alla verður með sýningu á söngleiknum Björt í sumarhúsi í Hamarsskóla þriðjudaginn 24. október, tímasetning auglýst síðar.
- UTÁ- þarfaplattar: Starfsfólk er vinsamlegast beðið um að koma plöttunum sem fyrst upp á veggi skólans.
Afmælisbörn
Agnar Smári Jónsson 11. okt
Anna Lilja Sigurðardóttir 14. okt.
Jóhanna Reynisdóttir 15. okt.
Ólafía Ósk Sigurðardóttir 16. okt.
Ásta Kristmannsdóttir 17. okt.
Uppskrift vikunar - Sætar kartöflur með fajitas fyllingu
3 sætar kartöflur
olífuolía
½ rauðlaukur, þunnt skorinn
250 g elduð kjúklingabringa, skorin í þunnar sneiðar
2 hvítlauksrif, pressuð
1 paprika, skorin í sneiðar
50 g nýrnabaunir úr dós
½ tsk cumin
1 tsk paprikukrydd
120 g mozzarellaostur, rifin
safi úr 1 lime
1 búnt kóríander, saxað
Meðlæti
lime skorið í báta
avacado, skorið í bita
salsasósa
Setjið smjörpappír á ofnplötu og raðið kartöflunum þar á. Látið inn í ofn í um 40 mínútur stingið þá í þær með prjóni. Ef þær eru ekki fulleldaðar þær þá í um 10-20 mínútur til viðbótar.
Á meðan kartöflurnar eru inn í ofninum setjið olíu á pönnu og steikið laukinn við meðalhita. Þegar hann er orðinn glær setjið kjúkling, hvítlauk og papriku út á pönnuna. Bætið kryddunum saman við og hrærið í blöndunni þar til kryddið hefur náð á kjúklingabitana. Bætið nýrnabaununum út á pönnuna. Takið af hitanum og geymið.
Þegar sætu kartöflurnar eru fulleldaðar takið þær úr ofninum og leyfið að kólna í um 5 mínútur eða þar til þær eru orðnar volgar. Skerið þær varlega í tvennt. Skafið megnið af sætkartöflunni úr en skiljið um 1 cm eftir við hýðið. Setjið í skál og bætið kjúklinga blöndunni saman við kartöflurnar. Hrærið lime safann saman við.
Látið hýðið á ofnplötu með smjörpappír og fyllið með fajitablöndunni. Stráið osti yfir og kóríanderlaufum. Setjið aftur inn í ofn í um 15-20 mínútur eða þar til osturinn er farinn að brúnast lítillega
Tilvalið meðlæti t.d. kóríander, avacado og salsasósu.
Spakmæli vikunnar
Every teacher has the right to live in a cave
However, they do not have the right to drag
their students in with them.
- Tom Whitby
Hrós vikunnar fá
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.