Vorblót 2019
DRAUMAR GETA RÆST - 13. maí í Stakkahlíð - kl. 14:00-18:00
Taktu daginn frá!
Hvar: Menntavísindasviði HÍ v/ Stakkahlíð
Hvenær: Mánudaginn 13. maí kl. 14:00-18:00
Hverjir: Ætlað öllum sem áhuga hafa á uppeldis- og menntamálum
Fjölbreyttar sýningar, menntaspjall og kynningar á tækifærum í skóla- og frístundastarfi!
Viltu kynnast því hvað aðrir eru að gera á þínu áhugasviði - viltu segja frá því sem þú ert að gera? Taktu þátt eða skráðu þig með innlegg í menntabúðir Vorblótsins.
Skráning allra þátttakenda er mikilvæg!
➢ Fyrirlestrar og smiðjur - í stofum
➢ Undirskrift samstarfssamnings MVS HÍ og SFS klukkan 16.30
➢ Menntastefna Reykjavíkur: Kynningar í opnum rýmum
➢ Menntavísindasvið: Kynningar í opnum rýmum
➢ Aðrir aðilar: Kynningar í opnum rýmum
Samhristingur í boði listkennsludeildar Listaháskóla Íslands klukkan 14:10 í matsal
➢Fyrirlestrar og smiðjur
Stofa K-206
Heimspekilegt spjall og æfingar út frá listaverkum,
Heimspekilegt spjall með hliðsjón af siðferðilegum víddum.
Ingimar Ólafsson Waage - Aðjúnkt og fagstjóri í sjónlistum, listkennsludeild LHÍ
Tími: 14:45-15:30
Hvað gerir RÚV fyrir börn og menntun?
Barna- og unglingastarf RÚV hefur þróast mikið á undanförnum árum. Með tilkomu KrakkaRÚV hafa orðið til fjölmörg spennandi tækifæri og samstarfsverkefni. Þar má t.d. nefna Kóðann, Sögur, Verksmiðjuna og margt fleira. Kynntir verðir ýmsir möguleikar til samstarfs í fræðslustarfi menntastofnana og RÚV.
Hafsteinn Vilhelmsson, Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson
Tími: 15:30 – 16:15
Trappa
Fyrirlestur um árangur fjarþjálfunar fyrir börn
Tinna Sigurðardóttir
Tími: 17:00-18:00
K-205
Miðja máls og læsis
Hvernig nýtist vefurinn til lestrarhvatningar í skóla- og frístundastarfi.
Dröfn Rafnsdóttir og Ingibjörg Elísabet Jónsdóttir
Tími: 16:45
Hálftími á teppinu
Markviss þjálfun í máli og málskilningi. Vinnustofa 2x30 mínútur, ætluð leik- og grunnskólakennurum. Smiðja til eflingar lesskilnings.
Baldur Sigurðsson og Sigríður Ólafsdóttir
Tími: 14:30-15:00 – 15:30-16:00
Ritunarvinnusmiðja
Aðferðarfræði ritunar til þess að efla skapandi og gagnrýna hugsun. Um er að ræða 15 mínútna ritunarvinnusmiðju.
Baldur Sigurðsson, Hanna Óladóttir og Jón Yngvi
Tími: 15:15-15:30, 16:00-16:15
K-204
Erasmus verkefnið ProHear
Kynning á Erasmus verkefninu ProHear. Um er að ræða rafrænt námsefni og vefnámskeið fyrir heyrnarskert og heyrnarlaust fólk. Táknmálstúlkun í boði.
Tryggvi Thayer
Tími: 14:30-15:15 og 15:30-16:15
K-207
Leiklistarsmiðja
Hressandi hópleikur sem tekur um hálftíma sem hægt er að þróa út í leiknar senur fyrir leikskóla, grunnskóla og í frístundastarfi.
Vigdís Gunnarsdóttir aðjúnkt og fagstjóri listkennsludeildar Listaháskóla Íslands.
Tími: 15:00-15:30
K-202
Skapandi tónlistarstarf
Raftónlistarspuni, söngur og rapp í frístunda-, félagmiðstöðvum eða skólastarfi. Í þessari smiðju er lögð áhersla á afurð. Tónsmíð er unnin frá upphafi til enda og send til þátttakenda í lok smiðjunnar. Um er að ræða hálftíma smiðju.
Markús Bjarnason frístundamiðstöðinni Kringlumýri.
Tími: 14:30-15:00 og 16:00-16:30
K-208
Söngleikir – Ævintýri Sædísar skjaldböku og Gúri geimvera
Elín Halldórsdóttir kennari í Fossvogsskóla segir frá verkefnum sem hún hefur unnið með nemendum.
Tími: 15:45-16:15
Er þetta nokkuð nýtt...? Aðferðir sem geta eflt orðaforða og lesskilning nemenda á miðstigi
Kennsluaðferðir sem hjálpa nemendum að skilja hugtök og lesmál í ýmsum námsgreinum. Hugmyndirnar sem kynntar eru í erindinu geta hentað í öllum námsgreinum og skólastigum.
Anna Sólveig Árnadóttir kennari í Selásskóla.
Tími: 16:15-17:15
➢ Menntavísindasvið HÍ og Skóla- og frístundasvið RVK
skrifa undir samstarfssamning kl. 16:30
➢Menntastefna Reykjavíkurborgar: Kynningar í opnum rýmum
Miðja máls og læsis Kynning á þjónustu MML við leikskóla- grunnskóla og frístundastarf í RVK. Starfsfólk miðjunnar.
Nýsköpunarmiðja menntamála á SFS
Kynning á Menntastefnu Reykjavíkur og þjónustu NýMið við leikskóla-, grunnskóla og frístundastarf í RVK.
Fríða Bjarney Jónsdóttir deildarstjóri.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - réttindaskólar í Reykjavík
Ellen Calmon
Tækifæri í alþjóðasamstarfi fyrir skóla og frístundasvið
Hjörtur Ágústsson
Jafnréttisskólinn
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir
Mixtúra – Búnaðarbankinn
Búnaðarbanki mun sýna forritunarleg tæki og kynna útlánastarfsemi bankans til afnota fyrir nemendur. Hægt er að skoða HTC-vive, Sphero, Dash and Dot, Green Screen, möguleika á notkun sýndarveruleika í námi og starfi barna og ungmenna.
Erla Stefánsdóttir, Sveinn Bjarki Tómasson, Þorbjörg S. Þorsteinsdóttir, Antonía Lárusdóttir, Margrét Óskarsdóttir
Tæknikistur leikskóla úr Búnaðarbanka Mixtúru
Sunneva Svavarsdóttir Reynisholti
Osmo og Etwinning
Rósa Harðardóttir
MakerSpace - bylgjupappahönnun
Vexa hópurinn
Miðstöð útivistar og útináms
Kynning á þjónustu MÚÚ við leikskóla-, grunnskóla og frístundastarf í RVK.
Hafsteinn Grétarsson
Fjölmenningarlegt leikskólastarf
Kennsluaðferðir sem efla orðskilning, orðaforða, lesskilning, hlustunarskilning og frásagnarhæfni nemenda.
Sólveig Þórarinsdóttir, leikskólastjóri segir frá fjölmenningarlegu leikskólastarfi - Leikskólinn Ösp
Kynningar á þróunarverkefninu Töfrandi tungumál - vinnu með fjölbreytt tungumál í leikskólastarfi og Gefðu 10 - aðferð til þess að auka samræðu og samskipti við fjöltyngd börn sem eru að læra íslensku.
Saga Stephensen - Leikskólaskrifstofa SFS
Náttúrufræðikennsluvefsíða
Hildur Arna Håkansson Öldutúnsskóli
Stuttmyndaverkefni 6. HM með Sphero kúlum og Dash
Helga Magnúsdóttir Setbergsskóli
➢ Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Kynning í opnum rýmum
Kynning á opnum námskeiðum fyrir fólk á vettvangi og e.t.v námskeiðum sem verða í boði sérstaklega fyrir starfsfólk SFS.
Ester Ýr Jónsdóttir
Identity texts/Sjálfsmyndasögur - Language portraits/Tungumálasjálfsmyndir
Renata Emilsson Peskova
Viðbótardiplómur á Menntavísindasviði
Viðbótardiplómur á MVS eru kynntar en umsóknarfrestur í þær rennur út 5. júní 2019.
Ásdís H.
Gerum úttekt á eigin starfi: Hvaða vísbendingar eru um að kennarar/skólar/frístund starfi í anda skóla án aðgreiningar? Þátttakendur fá gátlista til að kanna stöðuna.
Edda Óskarsdóttir
Verkefni meistaranema. Kynning á skjá á verkefnum meistaranema sem voru með viðburði á Barnamenningarhátíð í Listgreinahúsi Menntavísindasviðs.
Helga Rut Guðmundsdóttir, Ásdís Jóelsdóttir, Hanna Ólafsdóttir, Gísli Þorsteinsson og Rannveig Björk Þorkelsdóttir
Hopp og skopp - stærðfræði í leikskóla
Guðbjörg Pálsdóttir og Margrét S. BjörnsdóttirHáskóli Íslands
Sundleikjahandbók. Lokaverkefni til M.Ed. í íþrótta- og heilsufræði.
Bjarnfríður Magnúsdóttir Dalskóli
Stærðfræði unglingastig
Tanya Helgason Austurbæjarskóli
Stærðfræðileiðtogar-opin verkefni
Jónína Vala Kristinsdóttir Menntavísindasvið
Meðflytjendur: Guðrún Þóra og Sigurlaug Hauksdóttir, Ingunnarskóla, Tinna Ástrún Grétarsdóttir Sæmundarskóla, Jónína Vala Kristinsdóttir MVS
Samfélagsgreinakennsla og skapandi nám.
Lilja M. Jónsdóttir Menntavísindasvið HÍ
Kynning og umræða um starfsemi RASK
Rannsóknastofu um skapandi skólastarf - rannsóknirnar RASKA 1 og RASKA 2 sem voru starfendarannsóknir kennara sem beindu athyglinni að því hvernig þátttakendur (kennarar á fjórum skólastigum) unnu að því að efla sköpun í námi nemenda sinna.
Svanborg R Jónsdóttir og Ása Helga Ragnarsdóttir Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Börn lýsa viðhorfum til leikskólans - stutt myndskeið
Kristín Karlsdóttir (RannUng) Menntavísindasvið HÍ
Aðilar að RANNUM munu sýna og segja frá ýmsum verkefnum.
● Salvör Gissurardóttir: Hvernig geta kennarar gert gagnvirk nemendaverkefni í h5p.org. Þátttakendur fá sýnikennslu og tækifæri að gera verkefni
● Skúlína Kjartansdóttir: Sköpunarsmiðjur í menntun barna - Evrópuverkefnið MakEY, afrakstur þess og tengd verkefni (t.d. handbækur og fyrirhugað opið netnámskeið). Þátttakendur fá tækifæri til að hafa áhrif á hönnun opins netnámskeiðs um sköpunarsmiðjur og geta forskráð sig á það
● Sólveig Jakobsdóttir: Menntabúðir, þróun, reynsla og rannsóknir. Þátttakendur spjalla og deila reynslu og hugmyndum um skipulag menntabúða með mismunandi hópum
● Svava Pétursdóttir: evrópskt verkefni um starfsþróun kennara og námsefni um stafræna borgaravitund. Þátttakendur skoða verkefnisvef og viðkomandi námsefni
➢ Aðrar kynningar í opnum rýmum
Vinátta - forvarnaverkefni gegn einelti - Barnaheill - Save the Children á Íslandi
Kynning á Vináttu - forvarnaverkefni Barnaheilla gegn einelti, ætlað börnum frá 0-9 ára. Um er að ræða námsefni sem er auðvelt og aðgengilegt í notkun og er nú þegar í rúmlega 50% íslenskra leikskóla auk þess sem 19 grunnskólar eru að tilraunakenna grunnskólaefni. Rannsóknir í Danmörku (þaðan sem námsefnið kemur) sýna fram á að efnið virkar og samskipti í barnahópum verða betri.
Móðurmál
Samtök um tvítyngi mun kynna ungmennastarf Móðurmáls.
Maria Sastre og Rósa Björg Jónsdóttir
Kynning á verkefninu - Breyttir kennsluhættir í Kópavogi
Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson, Sigurður Haukur Gíslason, Kristín Björk Gunnarsdóttir, Logi Guðmundsson Menntasvið Kópavogs.
Dagatalið List í 365 daga
Lind Völundardóttir
Myndlistarskólinn í Reykjavík
Fjölbreytt starf fyrir börn og ungmenni. Samstarf við SFS um myndlistasmiðjur fyrir alla leik- og grunnskóla í Reykjavík
Charlotta R.Magnúsdóttir
Söngleikir
Elin Halldorsdóttir Fossvogsskóla
Snap + Core First tjáskiptaforrit
Hanna Rún Eiríksdóttir Klettaskóla
Eigum saman gott #menntaspjall
Að Vorblóti 2019 standa Menntavísindasvið HÍ og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar í samvinnu við fulltrúa frá Listaháskóla Íslands, Kópavogi, Hafnarfirði, RÚV, List fyrir alla, Menntamálastofnun og fleiri.
Undirritaður verður samstarfssamningur SFS og Menntavísindasviðs HÍ kl.16:30 - sem er liður í innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 „LÁTUM DRAUMANA RÆTAST“.