Vikupistillinn
Tímabilið 5. - 11. mars 2018
Heilræði vikunnar
Óklifin fjöllin fram undan buga þig ekki heldur steinvalan í skónum.
Muhammad Ali
Næsta vika
- Samræmd próf eru hjá nemendum í 9. bekk, 7., 8. og 9. mars og verður prófað í tölvu-stofunni þessa daga. Kennsla sem vera á í stofunni þessa daga verður að færa annað.
- Orðarún hjá 4. - 8. bekk.
- Hér eru glærur og fundargerð frá starfsmannafundi 23. febrúar. Hér eru nokkrar myndir frá skipulagsdeginum.
- Við viljum biðja starfsfólk um að láta vita ef það er veikt og sér fram á að það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföll.
- Umgengisreglur varðandi spjaldtölvunotkun, m.a. gul- rauð- og græn svæði.
Mánudagur 5. mars
Þriðjudagur 6. mars
- Samvera hjá miðdeild.
- Nemendur í 10. bekk fara í heimsókn í Flensborgarskólann kl. 13:00.
- Nemendaráðsfundur kl. 14:00.
- Starfsmannafundur með bæjarstjóra í fyrirlestrarsalnum kl. 15.00 - 16:00. "Spjall um hvernig skólastarfið gengur, áherslur okkar og hugmyndir þeirra og líðan"
Miðvikudagur 7. mars
- Samvera hjá yngstu deild.
- Samræmd könnunarpróf hjá 9. bekk í íslensku. Prófað er í tölvustofunni, stofu 26 og 24.
- Fundur í eineltisteymi kl. 10:40.
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 13:15.
- Nemendur í 10. bekk eru í vinnustaðaheimsóknum í dag.
Fimmtudagur 8. mars
- Samræmd könnunarpróf hjá 9. bekk í stærðfræði. Prófað er í tölvustofunni, stofu 26 og 24.
- Olweusarfundur kl. 15:00 - 15:45 - "Hvernig bregðumst við starfsfólkið við samskiptavanda/einelti hjá nemendum skólans ef við verðum vör við slíkt? Kunnum við að bregðast við?"
- Nemendur í 10. bekk eru í vinnustaðaheimsóknum í dag.
Föstudagur 9. mars
- Samræmd könnunarpróf hjá 9. bekk í ensku. Prófað er í tölvustofunni, stofu 26 og 24.
- Tækniskólinn býður nemendum í 10. bekk að fara á sýninguna Verk- og vit 2018.
Starfsmannasamtöl 2018 - undirbúningur
- Smelltu hér til undirbúnings á starfsmannasamtalinu: https://goo.gl/forms/ZeDOb2qXDfcrOK1L2
Nú er komið að starfsmannasamtölum og viljum við biðja þig að svara eftirfarandi spurningum fyrir samtalið.
Vert er að hafa í huga að góður undirbúningur er nauðsynlegur ef árangur á að nást með starfsmannasamtölum. Nauðsynlegt er að fara í sjálfsskoðun og meta sterkar og veikar hliðar. Hvernig er fyrirmyndar starfsmaður og fyrirmyndar kennsla?
Það er mjög mikilvægt að bæði starfsfólk og stjórnendur komi vel undirbúnir til samtalsins. Starfsmannasamtöl eru í þágu vinnustaðarins og báðir aðilar bera ábyrgð á að samtalið verði opinskátt og hreinskilið. Starfsmannasamtöl sem slík leiða að sjálfsögðu ekki til þess að leysa allan vanda en geta verið leið til að skapa traust og gott starfsumhverfi. Það sem ræður úrslitum er hvernig báðir aðilar standa að samtalinu og fylgja því eftir. Notið þetta tækifæri til að ná eigin markmiðum í starfi og meta faglega hæfni auk þess að koma á framfæri hugmyndum sem bæta vinnustaðinn.
Gagnkvæms trúnaðar verður gætt af hálfu beggja aðila. Eyðublöð sem notuð eru í samtalinu verða meðhöndluð sem trúnaðargögn. Skólastjórn getur hins vegar rætt sameiginlega um megin niðurstöður viðtalanna með það að markmiði að efla starfsumhverfið og vinnustaðinn.
Frá samveru hjá 3. EÞ.
Frá samveru hjá 3. EÞ.
Afmælisdagar í mars
Íris Thelma á afmæli þann 5. mars, Klara á afmæli þann 8. mars, Andrea á afmæli þann 9. mars, Kristján/Diddi á afmæli þann 12. mars Guðrún Árný á afmæli þann 23. mars og Kristjana á afmæli þann 30. mars.
Á döfinni
- Nemendur í 7. bekk fara að Reykjum ásamt umsjónarkennurum þann 12. - 16. mars.
- Forinnritun nemenda í 10. bekk í framhaldskóla fer fram 5. mars til 13. apríl.
- Stóra upplestarkeppnin verður haldin í Hafnarborg kl. 17:00 þriðjudaginn 13. mars.
- Nemendur í 10. MK verða með bingó til fjáröflunar fyrir Danmerkurferð sína þriðjudaginn 13. mars kl. 17:00 - 19:00.
- Fræðsla um geðheilsu í Heilsubænum Hafnarfirði verður fyrir nemendur í 9. bekk í mars en þá kemur Ingólfur Sigurðsson fótboltamaður í heimsókn.
- Keppni í fjármálalæsi fyrir nemendur í 10. bekk fer fram 12. - 18. mars.
- Bóka- og bíóhátíð 19. - 25. mars. Lagt er til að áhersla verði lögð á bækur Guðrúnar Helgadóttur.
- Nemendur í 10. bekk fara í PISA könnun 4. og 5. apríl.
Let's teach for mastery -- not test scores | Sal Khan
Would you choose to build a house on top of an unfinished foundation? Of course not. Why, then, do we rush students through education when they haven't always grasped the basics? Yes, it's complicated, but educator Sal Khan shares his plan to turn struggling students into scholars by helping them master concepts at their own pace.
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200