Fréttakorn
Fréttabréf starfsmanna Oddeyrarskóla, desember, vika 51.
Frábæra samstarfsfólk!
Á fimmtudaginn ætlum við svo að njóta góðrar samverustundar sem verður með hefbundnu sniði, spilaleikur, bókaleikur og góður matur. Möndlugjöfin verður á sínum stað! Um leið munum við vera með uppgjör í vinaleiknum okkar.
Á næstunni fáið þið sent annað fréttakorn með skipulagi starfsdagsins 4. janúar.
Vinnustund - vinnuferð
Þetta hefur gengið nokkuð vel hingað til en einhverjir hnökrar hafa þó verið. Ruglingur virðist vera á því hvað röddin í símanum segir og því veldur það óöryggi með hvort fólk er inn- eða útstimplað. Verið er að skoða þetta.
Kennarar eru beðnir um að skrá frídaga sína í jólafríinu sem sumarorlof líkt og gert var í vetrarfríinu. Gangið endilega frá þessu fyrir frí.
Námsferð
Vegna vinnuferðar til Reykjavíkur var ákveðið að rútuferðin til Reykjavíkur teljist til vinnutíma. Kristín er búin að skrá ferðatíma hópsins í heildarhýtina hjá kennurum. Þeir sem fóru bara aðra leiðina með hópnum fá þá leið skráða. Aðrir starfsmenn sem fóru í ferðina fá 12 klst frí í kringum jólin skv. samkomulagi (þeir sem fóru bara aðra leiðina með hópnum eiga inni 6 klst. leyfi).
Búnaðar-kaup
Um okkur
Email: kristin@oddeyrarskoli.is
Website: oddeyrarskoli.is
Location: v/ Víðivelli
Phone: 4609550