Fréttabréf Grænna skrefa
Fræðsla, nýjustu fréttir, viðbætur á heimasíðuna og fleira.
Spennandi efni í útvarpinu
Hér er hlekkur á þættina https://www.ruv.is/utvarp/spila/ordin-sem-vid-skiljum-ekki/31182/99bvn3
Staður fyrir ýmislegt smálegt
Fróðleikur um matarsóun
https://graenskref.reykjavik.is/wp-content/uploads/2021/03/2021-Frodleiksmolar-um-matarsoun.pdf
Hvað er að frétta?
Hér kemur fjórða fréttabréf ársins 2021. Grænu skrefin eru á fullu að undirbúa 10 ára afmæli í haust, og það verður spennandi að fá að greina betur frá því þegar nær dregur.
Nýskráningar voru aðeins tvær. Langholtsskóli og Frístundaheimilið Skýjaborgir bættust við í hópi þátttakenda og bjóðum við þau velkomin.
Nokkuð hefur verið um viðurkenningar í maímánuði og enn fleiri starfsstaðir hafa lokið skrefum en vilja bíða þar til eftir sumarfrí til þess að fá viðurkenningu.
Þeir sem hafa fengið viðurkenningu í apríl og maí mánuði eru:
- Skrifstofa Skóla- og frístundasviðs (2. skref).
- Hitt húsið (2. skref).
- Vesturbæjarlaug (2. skref).
- Hverfisstöðin Fiskislóð fékk viðurkenningu fyrir skref 2 og svo skelltu þau sér í að klára skref 3 og fengu viðurkenningu fyrir það stuttu síðar.
- Félagsstarfið Árskógum (1. skref)
- Borgarbókasafn Gerðubergi fékk viðurkenningu fyrir 4. skrefið.
Kolefnisspor matarins
Í skrefi 3 er talað um að bjóða upp á Vegan möguleika á viðburðum eða fundum. Það á við ef/þegar boðið er upp á einhverjar veitingar. Það er ekki tilgreint sérstaklega hversu stór hluti veitinga eigi að vera vegan, eingöngu að það sé vegan möguleiki til staðar.
Þetta er ekki bara hugsað með þarfir grænkera í huga. Hér er verið að huga að kolefnisspori matarins.
Hægt er að minnka kolefnisspor matarins til muna séu vörur úr plönturíkinu valdar umfram kjötvörur eða mjólkurvörur. Sú aðgerð að bjóða upp á vegan möguleika hjálpar okkur að kynnast nýjum möguleikum og það verður kannski til þess að í næstu matarpöntun verði fleiri skammtar úr plönturíkinu en dýraríkinu. Við pöntum samlokur og af vana eru þær með skinku eða pepperoni, osti og smjöri. Mörgum líkar þó alveg ágætlega við grænkeravörur jafnvel þó að þeir aðhyllist ekki þá stefnu sjálfir, og samlokur með hummus og grænmeti klárast jafn vel og hinar hefðbundnu. Ávextir eru líka vegan og því sjálfsagt að bjóða upp á ávexti á fundum.
Markmiðið er bara að skoða kolefnisspor vörunnar. Innlent hefur minna kolefnisspor en innflutt og lífrænt ræktað er betra en ólífrænt.
Með þessari einföldu aðgerð í Grænu skrefunum, að bjóða upp á vegan möguleika, er okkur auðveldað að minnka kolefnisspor matarins án þess að þurfa að reikna það út sérstaklega.
Er þetta lífrænt?
Svarið er: EINGÖNGU ef þeir eru merktir COMPOSTABLE. Nú eru ekki allir bakkar með merkingu á þeim sjálfum en það er merking á ytri umbúðunum og ef þær eru ekki til staðar þarf að hafa samband við birgja til þess að fá úr þessu skorið.
Íslenska Gámafélagið - sem þjónustar flestalla vinnustaði borgarinnar - vill ekki fá þessa bakka í lífræna ruslið nema þeir séu örugglega jarðgeranlegir, og því merktir Compostable.
En svo er annað mál hvort að við verðum ekki að reyna að draga úr notkun slíkra einnota bakka, hvort sem þeir jarðgerast eður ei. Þeir taka gífurlega mikið pláss í tunnunni, jafnvel slíkt að suma daga er ekkert pláss fyrir hinn eiginlega lífræna úrgang. Þeir taka líka lengri tíma að jarðgerast en matarúrgangurinn sjálfur og þess vegna verðum við að líta svo á að leyfið frá Íslenska Gámafélaginu til að henda þessu í brúnu tunnuna eigi við um lítið magn í einu, en þetta mikla magn sem kemur frá starfsstöðum borgarinnar tefur mögulega jarðgerðarferlið.
Lausnin: Byrjum aftur að nota venjulega diska og bolla og glös. Þessi tími einnota umbúða er liðinn.
Hvað er eco-font?
Í skrefi 2 er talað um eco-font stillingar. Það er sama hvort þetta er kallað eco-font eða eco-printing, markmiðið með þeim báðum er að draga úr bleknotkun og prenta grátóna. Þetta er hægt að stilla í tölvunni, þannig að það sé sjálfgefið í hvert sinn að prentað sé í eco-printing stillingu, en einnig er hægt að stilla það fyrir hverja prentun. Hér má sjá upplýsingar um þetta og ýmislegt fleira sem tengist tölvum og öðrum raftækjum https://graenskref.reykjavik.is/wp-content/uploads/2021/03/2021-RAFMAGNSTAEKI.pdf
Ef við öll tileinkum okkur þennan bleksparnað þá drögum við ekki bara úr sóun og úrgangsmagni heldur einnig úr innkaupum og þar er sparnaður fólginn.
Veggspjöld um Grænu skrefin
Þá er tilvalið að geta bent starfsmönnum á veggspjöldin þegar spurt er um Grænu skrefin eða hvað er eiginlega verið að vinna með í Grænu skrefunum.
Workplace
Við hvetjum alla til þess að koma í hóp Grænna skrefa á Workplace því að það er góður vettvangur til þess að koma ábendingum áleiðis, spyrja spurninga og fá góð ráð eða leiðbeiningar. Einnig hvetjum við vinnustaði til að deila skemmtilegum lausnum með öðrum.
Sumir vilja helst forðast Workplace vegna þess að það hrúgast inn tilkynningar í tölvupósti eða símann þeirra um eitthvað sem er að gerast inná Workplace. En það er einfalt að laga það með stillingum. Hér eru nokkur kennslumyndbönd um Workplace, m.a. um það hvernig á að stilla tilkynningarnar https://reykjavik.workplace.com/work/knowledge/?knowledge_id=2835653943318504.
FRÆÐSLA Í BOÐI
Fræðslufundur um flokkun og úrgangsmál.
Kynningarglærur um Grænu skrefin til eigin afnota.
Fundur fyrir tengiliði Grænna skrefa
Hvar: Fjarfundur á Webex. Tengill verður sendur á þá sem skrá sig hjá Grænum skrefum.
Hvenær: Miðvikudaginn 9. júní kl. 10:00 - 11:00
Hvernig fræðslu vilt þú fá á þinn vinnustað?
Viltu fræðslu á þinn vinnustað um Grænu skrefin eða eitthvað því tengt?
- Almenna kynningu á Grænu skrefunum (styttri eða lengri)?
- Fræðslu um vistvæn innkaup?
- Fræðslu um grænt bókhald?
- Fræðslu um flokkun og úrgangsmál?
- Eða eitthvað annað umhverfistengt sem þér dettur í hug?
Hugsaðu málið og sendu okkur línu á graenskref@reykjavik.is til að spyrja um fræðslumál.
Um okkur
Email: graenskref@reykjavik.is
Website: graenskref.reykjavik.is
Phone: 4118604
Facebook: facebook.com/graenskref