Fréttabréf VA
Desember 2019. 1. tölublað.
Námsmatsdagar nálgast og önninni að ljúka
Við í VA notum tækifærið og óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Það er enn opið fyrir umsóknir
Lok haustannar og upphaf vorannar
Hér má sjá ýmsar tíma- og dagsetningar sem tengjast lokum haustannar 2019 og upphafi vorannar 2020
Námsmat
- Opnað verður fyrir einkunnir í Innu föstudaginn 20. desember kl. 8:15.
- Sama dag verður námsmatssýning kl. 12 – 13.
- Nemendur eru hvattir til að koma og skoða námsmat sitt með kennurum.
Stundaskrár og upphaf vorannar
- Opnað verður fyrir stundaskrár í Innu á hádegi föstudaginn 3. janúar.
- Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 6. janúar.
Heimavist
- Heimavist verður opnuð sunnudaginn 5. janúar kl. 17:00. Nýir nemendur á heimavist fá þá afhent herbergi.
- Boðið verður upp á léttan kvöldverð kl. 18:00 fyrir vistarbúa.
Opnunartími skrifstofu
- Skrifstofa skólans verður lokuð eftir hádegi föstudaginn 20. desember og opnar aftur föstudaginn 3. janúar kl. 9:00
Búið að draga í fyrstu umferð Gettu-betur
Á fimmtudaginn var dregið í fyrstu umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu-betur. VA mætir Framhaldsskólanum að Laugum fyrsta keppniskvöldið, þann 6. janúar kl. 21:00.
Áfram VA!
Molar úr kennslunni
Erasmus+ fréttir
Í byrjun desember fóru kennararnir Þuríður og Salóme með nemendurna Steinunni, Ýr og Jónas til Szeged in Ungverjalandi til þess að taka þátt í næsta hluta verkefnisins Will to MotivatE(U).
Hópurinn hélt af stað laugardaginn 7. desember og kom aftur viku síðar. Í Ungverjalandi lærðu þau í gegnum leik og nemendurnir tengdust vel öðrum nemendum. Auk þess var notið alls hins besta sem jólin bjóða upp á í Ungverjaland, ljós og markaðir.
Næsti hluti verkefnisins fer fram hérna hjá okkur í VA en þá kemur starfsfólk frá hinum löndunum til okkar dagana 20.-24. apríl.
Það er að frétta af nemendum okkar í Viborg að á laugardaginn komu þau heim eftir fjögurra og hálfs mánaðar dvöl. Var ljúft að koma heim og einnig höfðu þau lært heilan helling. Þau fengu m.a. viðurkenningu fyrir að hafa útbúið kennslumyndbönd í skólanum.
Við höfum verið með nemanda úr Mercantec í Viborg hjá okkur síðan í september en hann er í starfsnámi fyrir utan skólann. Hann fer í dag, fimmtudag og því verða allir Erasmusnemendur komnir til síns heima fyrir jól.
Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.
ÍÞAK1LS02
Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar!
Á döfinni
Námsmatssýning 20. desember
Jólafrí 21. desember-5. janúarKennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá 6. janúar