Stiklur
...strax kominn fössari...
Tíminn líður hratt á...
þið botnið... en þessi viku var bara ansi fljót að líða...og senn koma jólin!
Hvað vantar
Gamla lógóið
Eigum við að hafa samkeppni um nýtt?
Skólahreystiliðið 2013
Það er bara enginn munur á i og ell
Fundur
Þriðjudagsfundurinn að þessu sinni er stigsfundur eins og ég kom inn á í síðasta Stiklu - tölublaði. Gott að ræða Uppeldi til ábyrgðar, Olweus...og ekki gleyma jólunum!...aðstoð vegna þeirra er veitt að Nes- og Gilsbakka...neðstu húsunum...
Nóvember er mánuður daganna
07. nóvember - útikennsludagurinn
08. nóvember - baráttudagur gegn einelti16. nóvember - dagur íslenskrar tungu
20. nóvember - dagur mannréttinda barna
26. nóvember - dagur daganna
Snjalltækjareglur
Eins og þið flest munið samþykkti Fjarðabyggð reglur um notkun snjalltækja í grunnskólum Fjarðabyggðar https://www.fjardabyggd.is/nanar/nyjar-notkunarreglur-um-snjalltaeki-i-grunnskolum-fjardabyggdar-taka-gildi. Reglurnar voru bæði fyrir nemendur sem og starfsfólk...sbr:
Snjalltæki – Verklagsreglur starfsmanna í grunnskólum Fjarðabyggðar
- Í grunnskólum Fjarðabyggðar skal starfsfólk ekki nota eigin snjalltæki meðal nemenda í frímínútum eða í kennslustundum. Undantekning er starfsfólk frístundar sem foreldrar þurfa að geta náð í á skólatíma.
- Starfsmenn skulu gæta þess að stilla snjalltæki þannig í vinnurýmum starfsmanna að ekki hljótist af truflun fyrir annað starfsfólk.