Fréttabréf Norðlingaskóla
1. febrúar 2019
Efni þessa fréttabréfs:
- Vorönn hófst 23. janúar
- Appelsínugulur dagur og dagur stærðfræðinnar 1. febrúar
- Undirbúningsdagur 7. febrúar
- Konudagur 24. febrúar
- Vetrarleyfi 25. og 26. febrúar
- Vináttusáttmáli í Norðlingaskóla
Vorönn hófst 23. janúar
Við þökkum fyrir samveruna á samráðsdaginn 21. janúar s.l. þar sem nemendur, foreldrar og kennarar hittust að venju og báru saman bækur sínar. Undirbúningsdaginn 22. janúar notaði starfsfólk til að undirbúa vorönnina sem hófst af fullum krafti 23. janúar.
Appelsínugulur dagur og dagur stærðfræðinnar 1. febrúar
Föstudaginn 1. febrúar er appelsínugulur dagur í Norðlingaskóla og jafnframt söngstund fyrir alla í aðalbyggingu klukkan 8:15. Þessi dagur er jafnframt dagur stærðfræðinnar en þann dag er horft til þess að stærðfræði megi sjá í flestum viðfangsefnum ef stærðfræðigleraugun eru sett upp. Þema dagsins í ár er rúmfræði og stærðfræði.
Undirbúningsdagur 7. febrúar
Þann 7. febrúar er sameiginlegur undirbúningsdagur leik- og grunnskóla í Árbæ. Klapparholt er opið fyrir þá nemendur sem eru sérstaklega skráðir þann dag.
Nemendur á unglingastigi hafa lokið við þriggja daga tæknismiðju þar sem gleði og vinnusemi var allsráðandi. Fleiri myndir eru á heimasíðu skólans.
Konudagur 24. febrúar
Eins og áður var auglýst á heimasíðu skólans fóru bóndadagur og konudagur vikuvillt í skóladagatalinu sem var gefið út af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hið rétta er að bóndadagur var þann 25. janúar og við munum svo fagna konudeginum þann 24. febrúar.
Vetrarleyfi 25. og 26. febrúar
Mánudaginn og þriðjudaginn 25. og 26. febrúar n.k. verður vetrarleyfi í Norðlingaskóla og þessa daga er einnig lokað í Klapparholti. Við vonum að þið eigið ljúfa daga í vetrarfríinu og mætum hress og kát til starfa miðvikudaginn 27. febrúar.
Vináttusáttmáli Norðlingaskóla
Á dögunum var nýr vináttusáttmáli settur upp í Norðlingaskóla og hefur verkið vakið mikla athygli innan skólans sem utan. Á fjölmenningardaginn 2. nóvember skreyttu allir nemendur skólans eina leirflís og lituðu hana svo með glerungi í jólasmiðjunni í desember. Flísarnar eru tákn fyrir vináttu og sést hvernig 606 litlar flísar geta myndað eina stóra mynd, rétt eins og hver og einn nemandi mótar skólann okkar. Fleiri myndir má sjá á heimasíðu skólans.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 411-7640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli