Foreldrabréf Hraunvallaskóla
Skólaárið 2023-2024
JANÚAR
Gleðilegt ár og takk fyrir gott samstarf á liðnu ári.
Við förum full af bjartsýni inn í komandi ár og hlökkum til að eiga áframhaldandi samstarf með ykkur foreldrar/forsjáraðilar. Munum að samstarf er það sem skiptir miklu máli í skólagöngu barns. Þið foreldrar/forsjáraðilar og kennarar þekkið barnið og því mikilvægt að eiga samtal um hvernig við látum barninu líða sem best. Endilega nýtið ykkur samskiptaleiðir okkar og hafið samband.
Skilaboð frá samskipta- og eineltisteyminu
Ef þú hefur ekkert gott að segja - er betra að sleppa því
En má ekki segja það sem manni finnst?
Það er erfitt að svara þessari spurningu. En, jú, það er málfrelsi en hver hefur áhuga á því að umgangast aðila sem særa aðra með leiðindarathugasemdum. Athugasemdum sem tengjast t.d. þjóðerni, tungumáli, háralit, kynhneigð, líkama o.s.frv. Aðilar sem hrósa og tala fallega til annarra hafa oft góða nærveru og eru eftirsóknarverðir vinir. Það er okkar, fullorðna fólksins, að leiðbeina börnum okkar hvað er við hæfi og hvað ekki. Þar á meðal hvernig við tölum um og við hvert annað.
Ræðum við börnin okkar um mikilvægi þess og verum fyrirmyndir í daglegu tali.
Hollt morgunnesti
Okkur langar til að benda ykkur á ráðleggingar um morgunnesti grunnskólanema sem var nýlega gefið út af Embætti landlæknis. Eins og við flest öll vitum þá er mikilvægt fyrir nemendur í grunnskólum að borða reglulega svo þau fái orku- og næringarefni jafnt yfir allan daginn og geta þá betur tekist á við verkefni sín. Börn þurfa hlutfallslega meiri orku en fullorðnir þar sem þau eru enn að vaxa og þroskast. Í ráðleggingunum má sjá dæmi um hvaða matvæli eru heppileg fyrir mismunandi þarfir barna. Við viljum biðja ykkur um að gefa ykkur smá tíma til að renna yfir þessar ráðleggingar sem má finna í plakatinu hér undir og sjá hvort þær gæti hjálpað ykkur með undirbúning á morgunnesti.
Líðanfundir
Gott samstarf við foreldra/forsjáraðila og meðal foreldra/forsjáraðila er afar mikilvægur þáttur í skólastarfi. Til að efla það enn frekar ætlum við að bjóða ykkur foreldrum/forsjáraðilum að koma á líðanfundi. Þeir eru byggðir þannig upp að foreldrar/forsjáraðilar í hverjum umsjónarhópi koma saman og ræða líðan síns barns, ekki er leyfilegt að ræða börn annarra. Við ætlum að fara af stað með þessa fundi í febrúar og verða þeir allir kl. 08:10 að morgni. Þarna gefst foreldrum/forsjáraðilum tækifæri til þess að tala um hvernig sínu barni líður í skólanum, hvernig samskipti það á við önnur börn, hvaða greiningar mitt barn er að kljást við, samfélagsmiðla, lestrarnám, heimavinnu o.s.frv.
Við hvetjum alla foreldra/forsjáraðila til þess að mæta og hjálpast að við að efla enn betur traust og góð samskipti milli foreldra annars vegar og foreldra og skóla hins vegar.
Tímasetningar og nánari upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur.
Samstarfsverkefni í yngri deild og frístundaheimila
Skólaárin 2023-2025 tekur Hraunvallaskóli þátt í samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar og RannUng um réttindi og þátttöku barna í leikskólum, yngsta stigi grunnskóla og frístundaheimilia. Markmið verkefnisins er að innleiða ákvæði Barnasáttmálans á markvissan hátt í starf leikskóla, yngsta stigs grunnskóla og frístundaheimila í Hafnarfirði með því að skapa vettvang til samtals og ígrundunar og koma þannig á lærdómssamfélagi jafningja.
3. bekkur og Hraunsel munu vera í forsvari fyrir verkefninu í grunnskólanum og Hraunvallaleikskóli er einnig þátttakandi. Hver hópur þátttakenda fær það hlutverk að velja sér eitthvað í umhverfi sínu sem hann langar að hafa áhrif á, finna sér málefnanlegan farveg til að koma hugmyndum sínum á framfæri, leita leiða til að koma þeim í framkvæmd og læra þannig hvernig lýðræði á að virka.
3. bekkur hafa rætt möguleg viðfangsefni á bekkjarfundum og komist að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að þá langi til að hafa áhrif á stað í skólanum sem er þeim sérstaklega kær, nefnilega skólabókasafnið.
Á næstu önn hafa nemendur óskað eftir því að fá vinabekkinn sinn, 8. bekk með sér í samstarf um að finna leiðir til að allir nemendur skólans geti haft áhrif og komið sínum hugmyndum á framfæri. Meðal þess sem þegar hefur verið rætt er hvort möguleiki sé að auka opnunartíma safnsins? Geta nemendur haft áhrif á bókakostinn sem þar er til og luma nemendur e.t.v. á fleiri góðum hugmyndum að því hvernig hægt væri að efla safnið enn frekar?
Nú þegar er búið að eiga samtal við Karítas bókasafnskennara sem leist mjög vel á verkefnið og bíður spennt eftir góðum hugmyndum frá okkar frábæru nemendum.
Jólaskreytingahurðakeppnin
Okkar árlega "Jólahurðaskreytingakeppni" fór fram núna í desember. Það má sjá mikla fjölbreytni á hurðum í skólanum og gaman að sjá hve mikið nemendur hafa lagt í skreytingarnar. Þessi keppni er virkilega skemmtileg bæði fyrir börn og fullorðna. Eins og alltaf í keppnum þá eru sigurvegarar og var dómnefnd, sem var byggð á smiðjukennurum skólans, ekki í öfundsverðu hlutverki þetta árið.
Eftirtaldir fengu verðlaun:
1. sæti
2. sæti
3. sæti
Frumlegasta hurðin
Fjallaævintýraferðir skólans
Samtalsdagur 1. febrúar
Samtalsdagur hér í skólanum er fimmtudaginn 1. febrúar. Þetta eru mikilvæg samtöl kennara, foreldris/forsjáraðila og barns. Í þessu samtali er farið yfir hæfnikort nemanda, frammistöðu og líðan með foreldri/forsjáraðila og barni.
Skráning í samtölin opnar þriðjudaginn 23. jan. kl. 08:00. Opnunartíminn er til kl. 23:59 föstudaginn 26. jan. Þeir sem ekki skrá sig fyrir þann tíma fá sendan fyrirfram ákveðin tíma til sín frá umsjónarkennara í síðasta lagi þriðjudaginn 30. jan.
Syndum saman
Það gekk ótrúlega vel hjá nemendum okkar í verkefninu syndum saman í nóvember. Þau syntu alls 314,351 km sem nemur frá Hafnarfirði til Varmhlið og aðeins lengra en það 🥳
Frábærir íþróttakrakkar sem við eigum.
SKILABOÐ FRÁ HEILSUEFLANDI TEYMI SKÓLANS
Áhrif orkudrykkja á börn og ungmenni
Undanfarin ár hefur neysla orkudrykkja færst í aukana hér á landi og hefur úrval þessara drykkja einnig aukist mikið. Koffín er það innihaldsefni í þessum drykkjum sem geta reynst börnum og ungmennum skaðlegt sérstaklega þegar það er innbyrgt í þeim mæli sem gert er þegar þessir drykkir eru notaðir sem svaladrykkir.
„Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða“.
„Hámarksneysla koffíns á dag“ fyrir mismunandi hópa:
· Fullorðnir 400 mg koffín
· Barnshafandi konur 200 mg koffín
· Börn og unglingar 2,5 mg/kg koffín
Dæmi um magn koffíns í drykkjum og súkkulaði:
· Orkudrykkur (500 ml) allt að 160 mg koffín
· Kaffibolli (200 ml) 100 mg koffín
· Kóladrykkur (500 ml) 65 mg koffín
· Svart te (200 ml) 35 mg koffín
· Dökkt súkkulaði (50 g) 33 mg koffín
Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum koffíns og getur neysla þess valdið ýmsum breytingum á hegðun þeirra, s.s. svefnerfiðleikum, óróleika, pirringi og kvíða ásamt áðurnefndum áhrifum.“ Vert er að hafa í huga að sum einkenni eins og svefnerfiðleikar geta komið fram við mun lægri neyslu en hámarksgildið er.
Það er því mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir skaðseminni og reyni eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að börn neyti þessara drykkja.
Ekki kaupa orkudrykki fyrir börn og ungmenni !
SAMSTARF HEIMILIS OG SKÓLA
Röskun á skólastarfi vegna óveðurs
Við hvetjum ykkur foreldrar/forsjáraðilar góðir til þess að lesa yfir hvað gerist við óveður. Hér er linkur á heimasíðu skólans sem gott er að lesa og vita af ef óveður skyldi skella á:
Foreldrarölt
Nú er foreldraröltið farið af stað að fullu og við þurfum á ykkur að halda. Við erum öll saman í liði og það er á okkar allra ábyrgð að passa að börnum og unglingum í hverfinu líði vel og séu öruggir. Það þarf þorp til þess að ala upp barn. Hér er foreldraröltsbæklingurinn og á öftustu síðunni eru dagsetningar hvers árgangs. Þið sem hafið áhuga á því að taka þátt í foreldrarölti megið senda tölvupóst á sarap@hraunvallaskoli.is. Þið sem hafið nú þegar skráð ykkur, kærar þakkir fyrir.
FRÍSTUNDASTARFIÐ
Hraunsel
Hlutverk frístundaheimila er að bjóða upp á fjölbreytt frístunda- og tómstundastarf án aðgreiningar fyrir börn á aldrinum 6-9 ára eftir að kennslu lýkur. Markmið starfsins er að efla sjálfstraust og félagsfærni. Starfsemi frístundaheimila hefur áhrif á félagsþroska barna og er vettvangur þar sem þau æfa sig í vináttu og samskiptum. Börnin læra gagnkvæma virðingu, traust og umburðarlyndi í gegnum leik og starf. Umhverfi frístundaheimila einkennist af öryggi og fagmennsku. Aðstæður eiga að einkennast af jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum starfsháttum. Í frístundaheimilinu er hlustað, rætt saman og ekki síst er pláss fyrir allar tilfinningar.
Hér er dagskrá Hraunsels fyrir ágúst og september.
Mosinn - unglingadeild
Mosinn er opinn á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í vetur frá kl. 19:30-22:00. Við hvertjum alla nemendur í miðdeild til þess að mæta og taka þátt. Við skorum á ykkur foreldra/forsjáraðila til þess að hvetja nemendur til þess að mæta og vera með. Þarna kynnast nemendur öðrum nemendum og annan hátt en í skólanum og byggja tengsl sem nýtast líka á skólatíma.
Hér er dagskrá Mosans:
https://www.facebook.com/felagsmidstodinmosinn
Instagram - Mosinn
Mosinn - miðdeild
Mosinn er opinn á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í vetur frá kl. 17:00-19:00. Við hvertjum alla nemendur í miðdeild til þess að mæta og taka þátt. Við skorum á ykkur foreldra/forsjáraðila til þess að hvetja nemendur til þess að mæta og vera með. Þarna kynnast nemendur öðrum nemendum og annan hátt en í skólanum og byggja tengsl sem nýtast líka á skólatíma
Hér er dagskrá Mosans:
HHH félagsmiðstöð
Í vetur verður áfram hinsegin hittingur í Hafnarfirði. Allt er farið af stað og við hvetjum þau sem vilja að kíkja í hitting. Það er líka hægt að "follow" bæði á Facebook og Instagram, sjá hér undir:
https://www.facebook.com/hinseginhittingurihfj
Instagram - hinseginhittingurihfj