Stiklur
...hver var Februus?...
Þriðjudagsfundurinn
að þessu sinni verður kennarafundur. Kannski náum við að leggja lokahönd á skóladagatalið...vonandi... :)
Starfsmannasamtöl
Viðtölin eru hafin...en enn eiga þó nokkrir eftir að svara eyðublaðinu góða...það má finna hér... eða með því að skanna QR-kóðann hér til hliðar... :)
Snjalltækjareglur
Úr fundargerð fræðslunefndar:
"Í febrúar 2019 voru settar nýjar reglur um um notkun snjalltækja í grunnskólum Fjarðabyggðar. Samhliða setningu þeirra voru grunnskólarnir snjalltækjavæddir, þannig að hver skóli fékk jafnmargar Chromebook vélar/i-padda og nemendur skólans voru og netsamband var bætt til að tryggja nemendum og kennurum betra og nútímalegra námsumhverfi.Í reglunum kemur fram að endurskoða skuli þær í janúar 2020. Til þess að auðvelda ákvarðanatöku fól fræðslunefnd fræðslustjóra að leggja fyrir þrjár viðhorfskannanir, eina fyrir nemendur í 6. - 10. bekk grunnskóla, aðra fyrir foreldra þeirra og þriðju fyrir starfsmenn grunnskóla.
Fræðslustjóri lagði könnunina fyrir nemendur grunnskólanna í Fjarðabyggð fyrri hluta janúarmánaðar og á sama tíma var könnun send á starfsfólk og foreldra nemenda í 6. - 10. bekk. Samantekt á heildarniðurstöðum úr viðhorfskönnununum eru settar fram í skýrslu sem liggur fyrir fundinum. Í skýrslunni kemur m.a. fram í samantekt að bæði foreldrar og starfsmenn eru almennt ánægðir með reglurnar og áhrif þeirra. Nemendur eru frekar ánægðir með hvaða áhrif reglurnar hafa haft á samskiptin í skólunum, tæpur helmingur þeirra finnst reglurnar hafa haft lítil áhrif á einbeitingu og líðan meðan ca. fjórðungur telja áhrifin jákvæð og fjórðungur neikvæð, og um þriðjungur nemenda er alveg sama um nýjar reglur á meðan fjöldi þeirra sem eru neikvæðir út í þær eru helmingi fleiri en þeir sem eru jákvæðir. Fræðslunefnd þakkar fyrir skýrsluna. Nefndin telur að þær forsendur sem lágu að baki setningu reglnanna hafi ekki breyst og að niðurstöður viðhorfskannananna bendi til þess að skynsamlegast sé að hafa reglurnar óbreyttar."
Fundargerðin var síðan samþykkt á bæjarstjórnarfundi í gær.
Snjalltækjareglur... framhald
Reglurnar eru því óbreyttar hvað varðar nemendur...sjá hér .
Fjarverur
Miðvikudaginn 12. apríl er fundur allra skólastjórnenda á Austurlandi...fundarstaður er Fáskrúðsfjörður.
Níunda bekkjar sýningar
Nú styttist í leiksýningar níunda bekkjar... "Amma þó!" krakkarnir ásamt Þórfríði hafa lagt hart að sér undanfarið ...og dagana 18. og 19. febrúar n.k. fáum við að sjá ...ein sýning á þriðjudeginum og tvær á miðvikudeginum...
Febrúar
17. Amma þó!
18. Amma þó!
23. konudagur
24. bolludagur
25. sprengidagur
26. öskudagur
27. góugleðisdagur