Foreldrabréf Hraunvallaskóla
Skólaárið 2023-2024
Apríl
Hjól á vordögum
Nú þegar vorið er farið að minna á sig þá er tilvalið að rifja upp hjólareglur skólans þar sem nemendur eru duglegir að koma á hjólum, hlaupahjólum, rafmagshlaupahjólum eða vespum í skólann. Við viljum biðja ykkur um að rifja þessar reglur upp með börnunum ykkar svo allir séu á sömu blaðsíðunni. Við viljum sérstaklega benda á reglurnar um léttu bifhjólin þar sem það er stranglega bannað að vera á þeim á skólalóðinni.
Reglur:
- Samkvæmt lögum er öllum undir 16 ára aldri, á hjólum, hlaupahjólum, línuskautum og léttum bifhjólum, skylt að nota öryggishjálma og viðeigandi öryggisbúnað. Endurskinsmerki skal nota í skammdeginu og hjólin þurfa að vera með ljósum og glitaugum og öðrum þeim öryggisbúnaði sem gerir þau lögleg.
- Hjól skulu vera læst á skólatíma og bera nemendur ábyrgð á hjólum sínum.
- Hjólreiðar til og frá skóla eru alfarið á ábyrgð foreldra.
- Nemendur sem velja að koma á hlaupahjólum í skólann gera það á eigin ábyrgð og læsa skal hlaupahjólum rétt eins og reiðhjólum fyrir utan skólann.
- Hjólin má ekki nota á skólatíma (frímínútur falla undir skólatíma) en heimilt er að fara stystu leið út af og inn á skólalóð ef farið er á hjóli í Ásvallalaug eða á Ásvelli. Þó er heimilt er að nota hlaupahjól og hjólabretti á hjólabrettavelli á skólatíma.
- Samkvæmt 44 grein umferðarlaga má barn yngra en 7 ára ekki hjóla á akbraut nema undir leiðsögn og eftirliti einstaklings sem náð hefur 15 ára aldri. Því óskum við þess að nemendur í 1. bekk komi ekki á hjólum í skólann nema undir eftirliti fullorðinna.
- Nemendur í 2.–4 bekk mega koma á hjólum í skólann fari þeir að settum umferðarlögum, með hjálma og læsi hjólum sínum við hjólagrindur eða aðra viðurkennda staði (grindverk) á skólalóðinni. Nemendum í 2.–3. bekk er ekki heimilt að hjóla til og frá Ásvallalaug.
- Nemendum í 4.–10. bekk er heimilt að koma á hjólum í skólann fari þeir að settum umferðalögum með hjálma og læsi hjólum sínum við hjólagrindur eða aðra viðurkennda staði (grindverk) á skólalóðinni. Nemendum í 4.–10. bekk er heimilt að hjóla til og frá Ásvallalaug og að Ásvöllum og skal þá farið stystu leið út af og inn á skólalóð.
Létt bifhjól
Nemendum sem eru orðnir 13 ára er heimilt að koma á léttu bifhjóli í flokki 1 í skólann svo fremi sem farið er að reglum sem gilda um notkun slíkra hjóla. Létt bifhjól eru aldrei leyfð á skólalóð. Þeim skal lagt á skilgreint svæði sem sérstaklega er ætlað léttum bifhjólum. Nánar um létt bifhjól má lesa hér: https://eplica.samgongustofa.is/media/umferd/Lett-bifhjol-i-flokki-I.2017.3.pdf.
Reglur um létt bifhjól
- Ég nota ávallt hjálm
- Ég tek aldrei farþega
- Ég tek tillit til gangandi vegfaranda og gæti að mér í umferðinni.
- Ég legg hjólinu á réttan stað
- Ég fer stystu leið inn á og út af skólalóð
- Ég keyri aldrei á léttu bifhjóli á skólalóð
Skilaboð frá samskipta- og eineltisteyminu
Við erum þorpið sem elur upp börnin
Oft er nóg að spyrja: "Er ekki allt í góðum gír?"
Framundan í apríl
Legókeppni miðdeilda í Hafnarfirði
15. apríl næstkomandi í Skarðshlíðarskóla. Mæting er klukkan 17:00 en keppnin mun hefjast 17:15 og lýkur dagskránni klukkan 18:45.
Þemað þetta árið verður alþjóðleg kennileiti.
Nemendur skrá sig hjá sinni félagsmiðstöð og gert er ráð fyrir 1-4 keppendum í hvert lið.
Mikilvægt er að hvert lið mæti með sitt eigið lego og verður það að vera sett saman á staðnum, ekki má mæta með tilbúið eða samansett lego í keppnina.
Aðalregla keppninnar er virðing gagnvart öðrum liðum jafnt og samherjum, enda á þetta fyrst og fremst að vera skemmtilegt.
Þau atriði sem gefa stig í keppninni eru eftirfarandi:
Samvinna – Hversu vel vinnur liðið saman.
Hugmynd og framkvæmd – Liðið kemur sér saman um ákveðið kennileiti og hvernig tekst því að framkvæma hana.
Útfærsla – Hvernig tekst liðinu að nota sköpunargáfu sína og þrautseigju til þess að framkvæma kennileitið.
Liðsandinn – Mikilvægast af öllu er góður liðsandi!
Skíðaferð 17. apríl
Skólahreysti 17. apríl
Skólahreystikeppnin verður fyrir okkar skóla er miðvikudaginn 17. apríl kl. 20:00 í Laugardalshöll.
Liðið okkar skipa:
Hildur Arna Hilmarsdóttir keppir í armbeygjum og að hanga
Helena Phi Yen Nguyen keppir í hraðaþraut
Hrólfur Geir Helgason keppir í upphýfingum og dýfum
Kári Garðarsson keppir í hraðaþraut
Máney líf Magnúsdóttir er varamaður
Róbert Daði Jónsson er varamaður
Rúta verður frá skólanum kl. 18:30 og kostar 1.000 - skráning er á skrifstofu skólans til og með föstudagsins 12. apríl kl. 14:00. Nemendum í 7.-10. bekk er boðið að koma með sem stuðningsmenn.
Liðið okkar er bleikt og hvetjum við því alla stuðningsmenn okkar að mæta í bleiku og láta mikið fyrir sér fara. Einhverjir bleikir bolir eru til í Mosanum fyrir þá sem ekki eiga og svo verður boðið upp á andlitsmálningu í Mosanum frá kl. 17:00.
Við hvetjum alla til þess að mæta og styðja liðið.
7. bekkur á Reyki
Dagana 22.-24. apríl fer 7. bekkur í sína árlegu skólabúðir á Reyki í Hrútafirði. Í Skólabúðum UMFÍ kynnast ungmenni styrkleikum sínum og veikleikum og læra að vinna með þá til að bæta félagsfærni sína. Lífið í búðunum snýst að miklu leiti um samskipti og samveru. Dvölin er tilvalin til þess að kúpla sig frá daglegu lífi og njóta samverunnar með öðrum. Vegna þessara markmiða er ekki leyfilegt að vera með síma, tölvur og tæki sem geta sýnt myndbandsefni. Mikilvægt er að foreldrar fari vel yfir þessi mál með börnum sínum fyrir brottför. Nánari upplýsingar fara síðan til foreldra/forsjáraðila þessa árgangs.
Hér eru upplýsingar á síðu UMFI sem gott er að kynna sér:
https://www.umfi.is/verkefni/skolabudir-a-reykjum/foreldrar/
Litla upplestrarkeppnin fyrir 4. bekk
Miðvikudaginn 24. apríl verður "Litla upplestrarkeppnin" í 4. bekk. Það er óhætt að segja að keppnin sé orðin landsverkefni þar sem rúmlega þrjú þúsund nemendur í 4. bekkjum á landinu hafa tekið þátt. Litla upplestrarkeppnin hófst í Hafnarfirði á 15 ára afmæli Stóru upplestrarkeppninnar en verkefnið var mótað með kennurum sem þá kenndu fjórða bekk. Litla upplestrarkeppnin byggir á sömu hugmyndafræði og Stóra upplestrarkeppnin þar sem ávallt er haft að leiðarljósi að keppa að betri árangri í lestri, munnlegri tjáningu og framkomu. Lögð er áhersla á virðingu og vandvirkni, allir nemendur eru með í liðinu, allir koma fram á lokahátíð og allir fá viðurkenningarskjal í lokin.
Við hvetjum foreldra/forsjáraðila til þess að koma og horfa á.
Hinsegin dagar 29. apríl - 2. maí
Dagana 29. apríl til 2. maí eru hinsegin dagar í skólanum. Þessa daga ætlum við að fræðast um hinsegin málefni á mismunandi máta. Fyrir hvað stendur fáninn, brot úr sögu samkynhneigðra og af hverju hinsegin dagar eru, allt málefni sem við viljum fræðast um og ræða. Notum tækifærið og ræðum þessa hluti heima, fræðum og fræðumst með börnunum okkar.
Drekasprettur 29. apríl - 12. maí
Helstu markmið lestrarátaksins eru:
- að þjálfa lestur
- að auka almennan íslenskan orðaforða
- að efla áhuga á lestri.
SKILABOÐ FRÁ HEILSUEFLANDI TEYMI SKÓLANS
Ráðleggingar um heilsusamlegt nesti
SAMSTARF HEIMILIS OG SKÓLA
Foreldrarölt
Nú er foreldraröltið farið af stað að fullu og við þurfum á ykkur að halda. Við erum öll saman í liði og það er á okkar allra ábyrgð að passa að börnum og unglingum í hverfinu líði vel og séu öruggir. Það þarf þorp til þess að ala upp barn. Hér er foreldraröltsbæklingurinn og á öftustu síðunni eru dagsetningar hvers árgangs. Þið sem hafið áhuga á því að taka þátt í foreldrarölti megið senda tölvupóst á sarap@hraunvallaskoli.is. Þið sem hafið nú þegar skráð ykkur, kærar þakkir fyrir.
FRÍSTUNDASTARFIÐ
Hraunsel
Hlutverk frístundaheimila er að bjóða upp á fjölbreytt frístunda- og tómstundastarf án aðgreiningar fyrir börn á aldrinum 6-9 ára eftir að kennslu lýkur. Markmið starfsins er að efla sjálfstraust og félagsfærni. Starfsemi frístundaheimila hefur áhrif á félagsþroska barna og er vettvangur þar sem þau æfa sig í vináttu og samskiptum. Börnin læra gagnkvæma virðingu, traust og umburðarlyndi í gegnum leik og starf. Umhverfi frístundaheimila einkennist af öryggi og fagmennsku. Aðstæður eiga að einkennast af jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum starfsháttum. Í frístundaheimilinu er hlustað, rætt saman og ekki síst er pláss fyrir allar tilfinningar.
Mosinn - miðdeild
Mosinn er opinn á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í vetur frá kl. 17:00-19:00. Við hvertjum alla nemendur í miðdeild til þess að mæta og taka þátt. Við skorum á ykkur foreldra/forsjáraðila til þess að hvetja nemendur til þess að mæta og vera með. Þarna kynnast nemendur öðrum nemendum og annan hátt en í skólanum og byggja tengsl sem nýtast líka á skólatíma
Hér er dagskrá Mosans:
Mosinn - unglingadeild
Mosinn er opinn á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum í vetur frá kl. 19:30-22:00. Við hvertjum alla nemendur í miðdeild til þess að mæta og taka þátt. Við skorum á ykkur foreldra/forsjáraðila til þess að hvetja nemendur til þess að mæta og vera með. Þarna kynnast nemendur öðrum nemendum og annan hátt en í skólanum og byggja tengsl sem nýtast líka á skólatíma.
Hér er dagskrá Mosans:
https://www.facebook.com/felagsmidstodinmosinn
Instagram - Mosinn
HHH félagsmiðstöð
Í vetur verður áfram hinsegin hittingur í Hafnarfirði. Allt er farið af stað og við hvetjum þau sem vilja að kíkja í hitting. Það er líka hægt að "follow" bæði á Facebook og Instagram, sjá hér undir:
https://www.facebook.com/hinseginhittingurihfj
Instagram - hinseginhittingurihfj