Brekkuskóli
MENNTUN - GLEÐI - UMHYGGJA - FRAMFARIR
Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í Brekkuskóla
Með hækkandi sól og meiri birtu höldum við inn í vorönn sem oft á tíðum er mjög fljót að líða:-)
Framundan er útivistardagur, upplestrarkeppni, þemadagar og margt fleira.
Í Brekkuskóla er stöðugt verið að leita leiða til að gera gott starf enn betra og má geta þess að við skólann starfar Gæðaráð sem heldur utan um innra mat á skólastarfinu og gerð umbótaáætlana í kjölfar þess. Mat á starfi skóla hefur þann tilgang að tryggja að réttindi barna séu virt og þau fái þá menntun og þjónustu sem þeim ber samkvæmt lögum. Markmið matsins er að veita upplýsingar um skólastarfið og hvernig það þróast. Markmið matsins er einnig að tryggja aukin gæði skólastarfs, stuðla að umbótum og gefa upplýsingar um líðan og starfsánægju. Við leitumst stöðugt við að bæta og þróa störf okkar og til þess að gera það markvisst þurfum við að safna gögnum sem við gerum m.a. með Skólapúlsinum en í gegnum hann eru gerðar nemendakannanir á hverju ári og foreldra- og starfsmannakannanir annað hvert ár sem einmitt eru í gangi núna.
Það er skólastarfinu mikilvægt að fá góða svörun úr þessum könnunum, við hvetjum því þá sem lentu í úrtaki fyrir foreldrakönnunina og eiga eftir að svara henni að gera það sem fyrst.
Framundan
27. febrúar útivistardagur
(28. febrúar varadagur fyrir útivistardag)
29. febrúar undankeppni fyrir Upphátt, upplestrarkeppni í 7. bekk
21. - 22. mars þemadagar
25. mars - 1. apríl páskafrí
2. apríl fyrsti skóladagur eftir páskafrí
Nánar um útivistardaginn
Allir nemendur mæta í skólann til umsjónarkennara kl. 8:00.
Það er mjög mikilvægt að mæta á réttum tíma til að rútuáætlanir frá skólanum geti staðist.
Nemendur koma með nesti í góðum poka og klædd til langrar útiveru.
1. - 3. bekkur fer með rútum inn í Kjarnaskóg með sleða, snjóþotur og auðvitað gott nesti:-)
4. - 6. bekkur fer með rútum í Hlíðarfjall með sleða, snjóþotur, skíði. Þau sem ekki eiga búnað en vilja prófa og geta bjargað sér geta fengið lánuð skíði eða bretti. Þá þarf að láta kennara vita sem ganga frá pöntun.
7. - 10. bekkur getur valið um að fara í Hlíðarfjall eða að ganga inn að Skautahöll og leika sér á skautum. Hægt er að fá skauta að láni. Börnin hafa nú þegar valið um hvort þau vilja fara í fjallið eða á skauta. Það er mikilvægt að þau standi við það val þar sem fjöldi nemenda þarf að liggja fyrir vegna skipulags og fjölda í rútur. Þau sem ekki eiga skíðabúnað en vilja prófa, geta fengið lánuð skíði eða bretti. Þá þarf að láta kennara vita sem ganga frá pöntun.
Miðað er við að skóladegi ljúki eftir hádegismat nema hjá þeim yngstu (í 1. - 4. bekk), þau ljúka degi um kl. 13:10 eða fara í Frístund ef þau eru skráð þar.
Hafðu samband
Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 414-7900
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/