Fréttabréf Vesturbæjarskóla
Fréttir og upplýsingar um skólastarfið í Vesturbæjarskóla
Gildi vikunnar
Í hverri viku er unnið með gildi vikunnar. Í febrúar verður rætt um kærleika, vellíðan, blíðu, óheft og pælingar. Unnið er með gildin á ýmsan hátt eins og með sérstakri verkefna vinnu eða umræðum á bekkjarfundum. Í febrúar hefur skapast hefð fyrir því að börnin sýni kærleika í verki út í hverfið með ýmsum leiðum eins og senda falleg skilaboð eða gera ýmis góðverk.
Börnin í 1. bekk sýndu kærleika í verki í lok janúar með því að gefa fuglunum ávaxtaafganga en kuldinn er erfiður fyrir marga fugla.
Samsöngur
100 daga hátíðin í 1. bekk
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 9. febrúar
Nemendur eiga ekki að nota síma á skólatíma. Nemendur hafa aðgang að tækjum frá skólanum til að nota í sínu námi undir umsjón kennara. Ef nemendur þurfa að hafa samband heim fá þeir leyfi hjá kennara til að hringja hjá skrifstofustjóra. Kennarar geta gefið nemendum leyfi til að nota síma í skólanum tengdu náminu ef það þykir henta.
Við bendum foreldrum á Saft vefinn en þar er að finna heilræði fyrir foreldra og leiðbeiningar um örugga netnotkun barna.
SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga tækni- og miðlanotkun barna og ungmenna á Íslandi. Verkefnið er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun. Ábendingalína Barnaheilla og Hjálparsími Rauða krossins, 1717, eru einnig hluti af verkefninu.
Hér fyrir neðan eru mikilvæg skilaboð til foreldra frá börnum og ungmennum
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur
Það styttist í uppáhaldsdaga margra á árinu. Á bolludaginn, mánudaginn 20. febrúar, mega þau börn sem vilja koma með bollu í nesti í skólann. Á sprengidag, þriðjudaginn 21. febrúar er saltkjöt og baunir í hádegismat. Á öskudag, miðvikudaginn 22. febrúar, mega allir sem vilja mæta í grímubúning í skólann. Kennarar skipuleggja eitthvað skemmtilegt í stofum og einnig er smá skemtun á Sólvöllum.
Öskudagur er skertur skóladagur sem þýðir að skóla lýkur að loknum hádegismat. Skýjó og Frostheimar taka við börnum sem þar eru að loknum frímínútum 12:20, börn sem ekki eru í frístund fara heim 11:50. Börn í 5. - 7. bekk fara heim að loknum hádegismat.
Hvað þýða allir þessir dagar?
Vetrarleyfi 23. og 24. febrúar
Facebook síða Vesturbæjarskóla
Við hvetjum ykkur öll til að fylgjast með okkur á Facebook https://www.facebook.com/Vesturbaejarskoli en þar birtum við reglulega fréttir og myndir úr skólastarfinu.