Fréttamolar úr MS
12. apríl 2024
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld
Framundan er fjörug umhverfisvika þar sem hópur erlendra nemenda heimsækir skólann. Auk þess styttist í frumsýningu Thalíu á Grease sem stefnir í að verða algjör negla!
Dagsetningar framundan 📆
15-19. apríl: Umhverfisvika
18. apríl: Leikfélagið Thalía frumsýnir Grease í Gamla bíó
25. apríl: Sumardagurinn fyrsti
26. apríl: Matsdagur
Miðannarmat ✅
Nú hefur miðannarmat vorannar verið birt í Innu. Miðannarmat gefur mikilvægar vísbendingar um stöðuna í náminu og í því felast leiðbeiningar um næstu skref. Það er afar mikilvægt fyrir nemendur að taka niðurstöður miðannarmatsins alvarlega og leita leiða til úrbóta ef þörf krefur. Nemendur sem fá 3 Ó eða fleiri eru í sérstöku eftirliti nemendaþjónustu skólans og verða boðaðir í viðtöl eftir atvikum.
Smelltu á myndina til að lesa meira um miðannarmatið.
Grease
Leikfélagið Thalía sýnir söngleikinn Grease í leikstjórn Ingridar Jónsdóttur. Sýningar verða í Gamla bíó.
Frumsýning 18. apríl kl. 20:00
2. sýning: 21. apríl kl. 15:00
3. sýning: 21. apríl kl. 20:00
4. sýning: 22. apríl kl. 20:00
5. sýning 23. apríl kl. 20:00
Fyrirtækjasmiðja
Nemendur í Fyrirtækjasmiðju MS, sem er lokaverkefni á hagfræði-stærðfræðilínu hafa stofnað 13 MS-fyrirtæki og verða á Vörumessu Ungra frumkvöðla í Smáralind 12. og 13. apríl að kynna og selja vörur sínar. Þarna verða matvörur, handverk og hönnun þar sem hollusta, nýting og endurnýting hráefnis er höfð að leiðarljósi. Þarna er alltaf mikið líf og fjör og hvetjum við MS-inga til að mæta á staðinn og hvetja krakkana áfram.
Hægt er að fylgjast með MS-ingum á Vörumessunni á Instagram skólans um helgina⏬
Umhverfisvika í MS 15.-19. apríl
Við viljum minna á að það styttist óðum í umhverfisvikuna okkar. Dagskráin í ár er sérlega vegleg og hafa nemendur í grænfánahópi komið að skipulagi hennar ásamt kennurum. Umhverfismál munu fléttast inn í kennslustundir í vikunni og við hvetjum nemendur til að taka virkan þátt í dagskránni alla dagana.
Frábær fundur foreldraráðs í síðustu viku
Aðalfundur foreldraráðs MS fór fram mánudaginn 8. apríl. Á fundinum hélt Anna Steinsen frá Kvan erindi fyrir foreldra um sterka sjálfsmynd, jákvæð samskipti foreldra og ungmenna og hvernig foreldrar geta stutt ungmennin áfram inn í fullorðinsárin. Einnig hélt Hrefna Guðmundsdóttir, vinnu- og félagssálfræðingur, stutt erindi um hamingju ungs fólks. Í kjölfarið fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf þar sem nokkrir foreldrar skráðu sig til leiks í foreldraráð fyrir komandi skólaár. Það var frábær mæting sem er afar ánægjulegt í ljósi þess hve mikilvægt samstarf heimila og skóla er fyrir velgengni nemenda.