Föstudagspóstur 29. maí 2020
4. og 5. bekkur
Fréttir úr skólastarfinu
Sæl og blessuð.
Næsta vika verður tileinkuð vorþemadögum, Unicef hlaupi og flutningum með skúffur á milli svæða. Sjá meðfylgjandi:
Þriðjudagurinn 2. júní
Vorþemadagur – Kjarnaskógur: 1. - 5. bekkur. Nemendur fara heim kl. 12:00 eða í Frístund.
Þennan dag er frjálst nesti. Grillaðar verða pylsur fyrir nemendur. Það getur verið gott að hafa með sér lítið handklæði og aukafatnað ef nemendur vilja sulla aðeins í blíðviðrinu sem við erum búin að panta!
Miðvikudagurinn 3. júní
Vorþemadagur – Stöðvar við skólann 1. - 5. bekkur, Nemendur fara heim kl. 12:00 eða í Frístund.
Fimmtudagurinn 4. júní
Dagur nýrra námshópa 8:10 – 10:30
UNICEF hlaupið í Naustaborgum kl. 10:30 – Allir nemendur fara heim kl. 13:10.
Umslög fyrir áheit koma heim með nemendum í dag og biðjum við ykkur að finna út úr því hvernig áheitasöfnun verði háttað. Munum að margt smátt gerir eitt stórt. Umslögum með áheitum á síðan að skila í skólann þriðjudaginn 2. júní.
Föstudagurinn 5. júní
Skólaslit
Tímasetningar skólaslita
Kl. 9:00 1,3,5,7, og 9. bekkur
Kl. 11:00 2,4,6 og 8. bekkur
Sjá nánar um skólaslitin á heimasíðu skólans http://www.naustaskoli.is/
Gleði á snakk og bíódegi
Þóra tæknimaður
4. bekkur í heimsókn á Minjasafninu
Góð kveðja, teymi 4. og 5. bekkjar
Email: anitaj@akmennt.is
Website: naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 460 4100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/2353257604891718