Föstudagsfréttir
7. bekkur
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Fyrsti alvöru snjórinn féll í vikunni sem segir okkur að það sé kominn vetur og að við verðum að taka fram vetrarklæðnaðinn.
Nemendur hafa val um það að fara í sturtu eftir íþróttir, en eins og við öll vitum að þá er alltaf betra að skola af sé svitann eftir hreyfingu. Það er ekki gott að mæta sveittur og illa lyktandi í tíma. Það væri því gott ef þið, kæru foreldrar, mynduð ræða við börnin um að fara í sturtu eftir íþróttir.
Föstudaginn 1. nóvember er nemendadagur, þar munu nemendur og kennarar keppa í völdum íþróttagreinum og nemendur geta tekið þátt í hæfileikakeppni.
Gott að nota helgina í að ákveða hvort maður ætli sér að taka þátt og þá með hvers konar atriði, skráningu lýkur 29. okt.
Mánudaginn 28.okt. færast tímasetningar á sundrúllu 7. bekkjar. Hópur 1 fer nú kl 12:10, hópur 2 fer kl. 13:00, hópur 3 klukkan 13:40 og hópur 4 klukkan 11:30.
Í vikunni fóru krakkarnir í 7. bekk í lesskilningskönnun, Orðarún og eru niðurstöðurnar komnar inn á Mentor, einnig geta krakkarnir séð hvaða spurningum þau svöruðu rangt á Google Classroom.
7.b. nemendur fá næstu viku til að klára fallorðahefti, í þar næstu viku verður könnun upp úr heftinu.
Helst í fréttum
Nemendaráðskosningar
Stærðfræðikönnun
Könnunin verður úr lotu 2, dæmin sem eru til prófs eru á Google Classroom.
Foreldraviðtöl
Verða þann 30. október, skráning í mentor.
Nemendur mæta einungis í sitt viðtal.
Hafið það gott um helgina,
Naustaskóli
Email: paula@akmennt.is
Website: www.naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 4604100
Facebook: https://www.facebook.com/groups/379688952718350/?ref=bookmarks