HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 17. TBL
DAGSKRÁ 16. - 20. JANÚAR
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR
Ný vika :)
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR
Stjórnendafundur í Bs kl. 15:00
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR
Forledrafundir i 10.bekk um námsmat og innritun í framhaldsskóla
Enginn fundur, undirbúningur hjá kennurum.
FIMMTUDAGUR 19. JANÚAR
Starfsdagur - frí hjá nemendum
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Lestrarátak Ævars vísindamanns byrjaði 1. janúar frekari upplýsingar má finna á bókasöfnum skólans eða á http://www.visindamadur.com/lestraratak
- Samstarfsdagur 19. janúar
- Foreldrafundardagur 25. janúar, nemendur mæta með foreldrum sínum.
- Allt námsmat á að vera komið til umsjónarkennara fyrir föstudaginn 20. janúar
- Lífshlaupið hefst 1. febrúar, stjórnendur skrá nemendur í keppnina. Starfsfólk þarf að setja sig í lið og liðstjórar skrá liðin inn á vefinn.
- Allir lesa - landsleikur í lestri hefst 27. janúar og stendur til 19. febrúar. Leikurinn er fyrir allla landsmenn, allir geta myndað lið. Keppnin er ekki bara liðakeppni því stóra keppnin er á milli sveitafélaga.
- Dagur stærðfræðinnar verður 3. febrúar
- Þorrablót hjá 1. - 5. bekk verður mánudaginn 13. febrúar.
- Smiðjudagar á unglingastigi 14.- 16. febrúar, árshátíð 16. feb.
Tilkynningar !!
- Lesið við sama borð - hefst aftur þriðjudaginn 17. janúar. Kennarar endilega hvetjið nemendur ykkar til að nota sér þessa aðstoð. Umsjónarmaður með þessu verkefni er Drífa Þ. Arnardóttir kennari og starfsmaður Bókasafns Vestmannaeyja. Tímarnir eru: þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:00 - 17:00.
- Kennarar í HS Geta fengið deildarstjóra HS eða BS til að hjálpa ykkur við að setja inn námsmat á mentor
- Við hvetjum alla kennara til að taka myndir úr skólastofunni af verkefnum og senda á stjórnendur. Við viljum að samfélagið sjái betur það góða starf sem unnið er í GRV.
Uppskrift vikunnar
Spínatsalat með perum, sykurhúðuðum pekanhnetum og geitaosti
150 g lífrænt spínat
1 pera, afhýdd og skorin í litla bita
100 g sykurhúðaðar pekanhnetur
80 g trönuber
100 g geitaostur
Dressing
2 msk balsamik edik
1 ½ tsk hlynsýróp
1 msk ólífuolía
½ tsk dijon sinnep
hnífsoddur sjávarsalt
- Setjið spínat í skál og stráið perum, pekanhnetum, trönuberjum og geitaosti yfir.
- Gerið dressinguna með því að hræra saman balsamik ediki, hlynsýrópi, ólífuolíu, sinnepi og salti þar til allt hefur blandast vel saman.
- Hellið dressingunni yfir rétt áður en salatið er borið fram.
Sykurhúðaðar pekanhnetur
1 ½ msk púðusykur
1 ½ msk vatn
1/8 tsk vanilludropar
1/8 tsk sjávarsalt
100 g pekanhnetur
- Setjið púðusykur, vatn, vanilludropa og sjávarsalt saman í skál og hrærið.
- Ristið pekanhneturnar á pönnu í 2-3 mínútur við meðal hita, hrærið í á meðan og varist að þær brenni. Þegar hneturnar gefa frá sér ljúfan ilm eru þær tilbúnar.
- Hellið púðursykurblöndunni út á pönnuna yfir hneturnar og hrærið strax í blöndunni í um 15 sekúndur eða þar til hneturnar eru vel húðaðar. Takið þá af pönnunni.
- Dreyfið hnetunum yfir ofnplötu hulda smjörpappír og kælið.
Hrós vikunnar fá
Umsjónakennarar og aðrir kennarar sem komu að þátttöku 6. bekkjar vídeóinu sem var sýnt á krakkarúv, fimmtudaginn 12. janúar.
Spakmæli vikunnar
Menntun er það sem verður eftir þegar maður gleymir því sem maður lærði. - Albert Einstein
Vissir þú um Skólakerfið víðsvegar um heiminn #4
Finnar byrja í skólanum 7 ára.
Vissir þú um Skólakerfið víðsvegar um heiminn #5
Í Hollandi byrja nemendur í skóla á 4 ára afmælisdeginum sínum. Þess vegna er alltaf einhver nýr að byrja í bekknum.
Vissir þú um Skólakerfið víðsvegar um heiminn #6
Í Tíbet er skóli sem er í 5370 metra hæð yfir sjávarmáli.
Íslenska sem annað tungumál - facebook
Mælummeð þessari facebook síðu fyrir kennara sem eru að kenna nýbúum.
GRV - fræðsla á facebook
Endilega fylgjast með á facebook síðunni GRV- fræðsla, þar er alltaf að koma eitthvað fróðlegt og skemmtilegt inn.
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
TAPAÐ - FUNDIÐ !!!!
Anna Rós er með úr (24 Iceland) í óskilum í Bs, en úrið fannst í sal Hs.