Nesskólafréttir
Allt að klárast
Lítið eftir
Það er heldur betur farið að styttast í seinni hluta skólársins. Skólaárs sem verður væntanlega framarlega í minningabókinni... @COVID-19. Þessi vika einkenndist dálítið af endapunktum eða lokahnykkjum... þ.e. verið var að klára ýmiskonar verkefni, í næstu viku vonumst við eftir að geta sett stundaskrárnar sem mest til hliðar og lokið árinu með allskonar fjöri.
Skólaslit 1. - 9. bekkur
Skólaslit Nesskóla að þessu sinni verða föstudaginn 29. maí klukkan 11:30. COVID-19 hefur heldur betur sett mark sitt á skólastarf vorannarinnar. Skólaslitin eru engin undantekning þar á, því miður sjáum við okkur ekki fært að hleypa foreldrum að athöfninni í ár. Skólaslitin verða því þannig í ár að nemendur mæta á sal klukkan 11:30, hlusta þar (vonandi af mikilli athygli) á stutta skólaslitaræðu skólastjóra, halda síðan til sinnar bekkjarstofu og fá þar vitnisburðinn sinn afhentan.
Útskrift 10. bekkjar
Á tímabili leit út fyrir að ekkert yrði af hefðbundinni útskriftarathöfn 10. bekkjar en þar sem nýjar reglur taka gildi mánudaginn 25. maí um fjöldatakmarkanir þá sjáum við okkur fært að geta haft útskrift... með takmörkunum þó því virða þarf tveggja metra regluna eins og kostur er. Útskriftin verður fimmtudaginn 28. maí og hefst athöfnin klukkan 17:00. Hver nemandi fær eitt borð til umráða fyrir sína fjölskyldu.
Karnivaldagur
Hinn árlegi karnivaldagur verður fimmtudaginn 28. maí.
Skóli hefst kl. 8:00 og lýkur kl. 12:00, athugið að VINASEL er lokað þennan dag
Við hefjum fjörið í skólanum þar sem hóparnir koma saman og boðið verður upp á andlitsmálun – börn mega koma máluð í skólann
Við fáum okkur ávaxtanesti og förum í frímínútur eins og venjulega.
Eftir frímínútur, kl. 9:40 tekur við skipulögð dagskrá þar sem farið verður í fjölbreytta leiki og þrautir á íþróttavellinum, í íþróttahúsinu og þar í kring.
Við minnum á litina:
1. og 6. bekkur.... gult
2. og 7. bekkur.... rautt
3. og 8. bekkur.... grænt
4. og 9. bekkur.... blátt
5. og 10. bekkur.. bleikt
Starfsdagur 22. maí
Á föstudaginn kemur er starfsdagur í Nesskóla og nemendur því í fríi.