HÚSBRÉFIÐ
11. ÁRG., 23. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 29. FEB. - 6. MARS
MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR
HLAUPÁRSDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR 1. MARS
Stjórnendafundur kl. 14:45
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS
Sameiginlegur kennarafundur í Hs kl. 14:30 - kynningar á þróunarvinnu
FIMMTUDAGUR 3. MARS
Heimapróf í tölvum örnámskeið í Bs kl. 15:00 - 16:00, skráning hjá deildarstjórum.
Stjórnendafundur kl. 14:45
FÖSTUDAGUR 4. MARS - Árshátíð skólans 5. mars í Alþýðuhúsinu
TAKK FYRIR VIKUNA OG GÓÐA HELGI :)
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Heimapróf í tölvum örnámskeið - Socrative.com, 3. mars kl. 15:00 - 16:00 í tölvustofu Bs. Skráning hjá deildarstjórum.
- Orð af orði upprifjunarnámskeið 14. mars kl. 15:00 í stofu 26 í BS, skráning hjá deildarstjórum.
- Spjaldtölvur og náttúrufræði - Hjálmur Dór Hjálmarsson verður hjá okkur þriðjudaginn 29. mars.
- Árshátíð starfsfólks verður laugardaginn 5. mars í Alþýðuhúsinu. Stefnir í flotta hátíð.
- Málþing um læsi í Einarsstofu, laugardaginn 27. febrúar kl. 13:00 - 14:00. Rótarý í Vestmannaeyjum stendur fyrir málþinginu, Bjartey Sigurðardóttir læsisráðgjafi í menntamálaráðuneytinu, Helga Sigrún Þórsdóttir sérkennari í GRV og Drífa Þöll Arnardóttir kennari/bókavörður verða með erindi á málþinginu.
- 29. febrúar er hlaupársdagur
- Kynning á námsmati frá Menntamálastofnun verður 7. mars fyrir alla kennara í Bs kl. 13:45 - 15:45. Ef það eru kennarar á yngra stigi sem hafa áhuga á að mæta eru þeir velkomnir
- Marita fræðslan verður 8. og 9. mars
- Kynning frá FÍV fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra 10. mars kl. 17:00
- 10. bekkur verður í starfskynningu þriðjudaginn 15. mars og í skólaferðalagi 16.-18. mars.
Tilkynningar !!
Þá er vinnustaða- og skólakeppnum Lífshlaupsins lokið og úrslit orðin ljós. Í ár tóku 18.550 manns þátt.
- Úrslit í grunnskólakeppni Lífshlaupsins, nemendur GRV stóðu sig frábærlega urðu 1. sæti í sínum flokki. Til hamingju með það
Í vinnustaðakeppninni enduðum við í 10. sæti af 63 vinnustöðum. FRÁBÆRT hjá starfsfólki GRV
Vestmannaeyjabær endaði í 3. sæti í landskeppninni Allir lesa eftir mikla keppni við Hveragerði og Sveitarfélagið Ölfus. Hraunbúðir sigruðu í opnum flokki, óskum þeim til hamingju með það.
Aðstoð við heimalestur og heimanám erlendra nemenda er á Bókasafni Vestmannaeyja, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:15 - 17:15. Hvetjum nemendur til að nota sér þessa aðstoð.
Menntaspjall á Twitter: http://ingvihrannar.com/menntaspjall/ annan hvern sunnudag. Oft mjög áhugaverðar umræður.
Afmælisbörn vikunnar:
Súsanna Georgsdóttir 4. mars
Ólafur Lárusson 4. mars
Guðrún Snæbjörnsdóttir 6. mars
Jakobína Guðfinnsdóttir 6. mars
Margrét Jóhannsdóttir 6. mars
Gáta vikunnar
Ægir kóngur á þau tvö,
upppi´á ránni hanga sjö,
feðratungan fjögur á,
en fjölmörg gömlum alka hjá.
Svar við síðustu gátu
Vaskur
Súkkulaði kaka með hindberjum
Svakalega góð kaka sem Kata ritari kom með.
Kakan
2 bollar valhnetur eða möndlur ( sem legið hafa í bleyti í 2 - 4 tíma)
1 bolli hunang
1 bolli vatn
1 tsk vanilludropar
2 bollar dökkt kakó
3 bollar kókósmjöl
1 tsk sjávarsalt
Fersk ber ofaná
Byrjið á að setja kókosmjöl í blandara/matvinnsluvél svo það fái finlega áferð. Takið það úr og setjið til hliðar.
Valhnetur, hunang, vatn og vanilludropar í blandarann og maukað, þá er kakói bætt út í ásamt sjávarsalti. Takið úr blandaranum og setjið í skál. Blandið kókósmjölinu saman við. Tvö smelluform með bökunarpappír í botninum, þjappið kökunni vel í formin, gott að setja t.d. bláber í botnana, frystið kökuna.
Súkkulaði "mousse" krem
2 bollar kasjúhnetur (liggja í bleyti a.m.k. 1 klst.)
1 bolli gróft kókosmjöl
1/4 bolli kakó
2 1/2 tsk vanilludropar, smá sjávarsalt
1/2 bolli hunang, 6 - 8 dropar stevia
1 1/4 bolli vatn
1 1/2 bolli kókosolía, krukkan sett í heitt vatn og látin bráðna)
Kasjúhnetur, kókósmjöl, vatn sett í blandara og þeytt vel saman. Þá er grófa kókosmjölinu, kakói, sætunni og sjávarsalti bætt útí og blandað vel.
Hellt yfir botnana og sett inn í frysti um 2 klst. Gott að setja hindber ofan á.