Fréttabréf Norðlingaskóla
16. febrúar 2022
Efni þessa fréttabréfs
- Á döfinni
- Skólastarfið í byrjun árs
- Vika 6
- 100 daga hátíð
- Hláturinn lengir lífið
- Flugvélasmíði á miðstigi
- Álfamyndir
- Ljósmyndasamkeppni á unglingastigi
Á döfinni
Vetrarleyfi verður fimmtudaginn 17. og föstudaginn 18. febrúar. Þá er skólinn lokaður sem og Klapparholt.
Sprengidagur 1. mars
Öskudagur 2. mars, þá er skertur skóladagur hjá nemendum, en skóla lýkur á hádegi. Þeir nemendur sem eru í Klapparholti fara þangað strax að loknum hádegismat.
Dagana 14.-18. mars verður nemendaþing og foreldraskólavika í skólanum.
Undirbúningsdagur kennara verður miðvikudaginn 23. mars. Þá mæta nemendur ekki í skólann en Klapparholt er opið fyrir þá nemendur sem eru sérstaklega skráðir.
Skólastarfið í byrjun árs
Ný reglugerð um sóttvarnir gildir til 25. febrúar. Um skólana gilda þær reglur að allir sem koma inn í skólabyggingar eins og t.d. foreldrar, starfsfólk skólaþjónustu eða vegna vöruflutninga skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt sín á milli sem og gagnvart starfsfólki og nemendum. Ef ekki er unnt að tryggja 1 metra nálægðartakmörkun skal nota andlitsgrímur
Nýrri reglugerð ber svo sannarlega að fagna því hún felur í sér þau jákvæðu tíðindi að nú er hægt að ýta úr vör ýmsum skemmtunum og viðburðum sem efla félagsstarf nemenda og þátttöku foreldra í skólastarfinu. Stjórn foreldrafélagsins, skólastjórnendur og kennarar eru í góðri samvinnu um að koma bekkjarfulltrúastarfinu í gang við fyrsta tækifæri og í því sambandi er gaman að segja frá því að í byrjun mars er fyrirhugaður fundur með öllum bekkjarfulltrúm til að leggja á ráðin með viðburði innan árganganna á vorönninni. Í hverjum árgangi eru kennarar sem eru tengiliðir við bekkjarfulltrúa og þeir aðstoða við að efla félagsstarfið.
Eftir alla þá ládeyðu í félagstarfi nemenda undanfarin misseri, vegna takamarkana af völdum heimsfaraldursins, þá er mjög mikilvægt að við leggjum öll hönd á plóg með samvinnu um gott bekkjarfulltrúastarf innan hvers áragangs til að þétta nemendahópinn betur saman og efla samvinnu foreldra sín á milli. Öflugt foreldrasamstarf hefur m.a. mikið forvarnargildi, jákvæð áhrif á líðan nemenda og félagsfærni.
Ný önn hófst mánudaginn 24. janúar og því er komið að seinni hálfleik þennan skólaveturinn.
Samráðsdagur var 20. janúar en vegna takmarkana í skólastarfi var um símaviðtöl og fjarfundi að ræða. Að venju var farið yfir líðan og stöðu nemenda í námi en þetta er í fyrsta sinn sem nýtt námsmat er lagt til grundvallar. Við þökkum nemendum og forráðamönnum fyrir daginn, það er ávallt gott að staldra við og fara yfir stöðu mála.
Það var mat kennara eftir samráðsdaginn að foreldrar væru almennt jákvæðir með breytingarnar á námsmatinu. Langflestir foreldrar höfðu kynnt sér verkefnavinnu og námsmat sem birtist í hæfnikortinu í Mentor og hvetjum við foreldra til að fara reglulega inn í Mentor og fylgjast með námsframvindu barna sinna.
Í hverju verkefni eru sett fram hæfniviðmið samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla ásamt viðmiðum um árangur en þau eiga að varpa nokkuð skýru ljósi á til hvers er ætlast af nemandanum. Námsmatið er síðan hægt að skoða á hæfnikorti nemandans þar sem árangur er birtur með litakvörðum.
Ef eitthvað er óljóst hvetjum við ykkur til að hafa samband við umsjónarkennara barna ykkar. Við minnum ykkur einnig á að allar helstu upplýsingar um námsmatið er að finna á heimasíðu skólans.
Vika 6
Þemað í ár var menning og kynlíf en það eru unglingarnir í borginni sem sjá um að velja þema fyrir hvert ár.
Allir nemendur í 1.-10. bekk Norðlingaskóla fengu fræðslu tengda málefninu sem sniðin var að aldri og þroska nemenda
Í yngri árgöngum var lögð áhersla á sjálfsmynd, virðingu og samskipti og voru nokkrar kennslustundir vikunnar eyrnamerktar þessari fræðslu sérstaklega.
Í unglingadeild var hins vegar öll vikan lögð undir málefnið og hefðbundinni kennslu ýtt til hliðar. Kennarar settu upp fræðslustöðvar, ásamt því sem nemendur fengu fræðslu frá Ástráði sem er kynfræðslufélag læknanema þar sem áhersla er lögð á fræðslu um kynsjúkdóma, getnaðarvarnir og fóstureyðingar. Að lokinni góðri fræðslu unnu nemendur fræðslumyndband að eigin vali sem tengdist málefninu. Í lok vikunnar kynntu nemendur svo verkefni sín fyrir samnemendum og kennurum en myndböndin voru afar vel unnin, frumleg og fjölbreytt og fjölluðu t.d. um hegðun á samfélagsmiðlum, samskipti, tíðahring kvenna, kynlíf og getnaðarvarnir.
Hér má sjá nokkrar myndir sem tengjast viku 6, flestar af mósaíkverkum nemenda á unglingastigi.
100 daga hátíð
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá hátíðinni en fleiri myndir má sjá á heimasíðu Norðlingaskóla
Hláturinn lengir lífið
Flugvélasmíði á miðstigi
Álfamyndir
Ljósmyndasamkeppni á unglingastigi
Svo sannarlegar margir efnilegir ljósmyndarar hér á ferð.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: https://nordlingaskoli.is/
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117640
Facebook: https://www.facebook.com/nordlingaskoli