Vikupóstur
1. bekkur
Sæl öll.
Vikan var að mestu nýtt í lestur og upprifjun - bæði í stærðfræði og íslensku. Við vorum dugleg að nýta okkur góða veðrið til útiveru og höfðu allir gott af því, bæði börn og fullorðnir.
Hver og einn útbjó kveðjukort handa henni Dagmar Ýr sem er flutt til Ísafjarðar. Kortin verða send til hennar í pósti. Við þökkum henni fyrir samveruna og óskum henni alls hins besta.
Í næstu viku ætlum við að vinna áfram i fuglaþemanu og vinna að því að meta börnin eftir upprifjunina. Þorgerður hjúkrunarfræðingur verður með hjálmafræðslu og svo endum við vikuna á dótadegi með tilheyrandi gleði!
Við vonum að allir séu að keppast við að lesa sem mest heima og fylla út í lestrarátaksblaðið. Það er ekki hægt að ítreka það of oft hversu mikilvægur heimalesturinn er. Í þar næstu viku munum við lestrarprófa alla.
Við minnum á að börnin verða að koma klædd til útiveru í skólann. Við erum mikið úti við þessa dagana og eins og við vitum öll er veðráttan á landinu óútreiknanleg. Gott er því að hafa hlýja peysu, húfu og vettlinga meðferðis í töskunni.
Góða helgi!
Bestu kveðjur,
Elín, Rósa, Sigga og Sunna
Dótadagur - 15. maí
Á næstunni
15. maí - Dótadagur
21. maí - Uppstigningardagur22. maí - Starfsdagur, frístund opin
1. júní - Annar í hvítasunnu
2. og 3. júní - Vorþemadagar
5. júní - Skólaslit