Fréttabréf Vesturbæjarskóla
Fréttir og upplýsingar um skólastarfið í Vesturbæjarskóla
Skóladagatal Vesturbæjarskóla
Merktar eigur skila sér
Við hvetjum ykkur til að merkja föt barna ykkar og aðrar eigur. Ef hluturinn er merktur mun hann skila sér aftur til barnsins. Við sem störfum í skólanum vinnum saman að því að koma hlutum til réttra eigenda og er það meðal annars hluti af stefnunni okkar í grænum skrefum til að koma í veg fyrir mikið af óskilamunum.
Samsöngur
Plastlaus september
Plastlaus september er árlegt árvekniátak sem bendir á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Vesturbæjarskóli tekur afstöðu gegn einnota umbúðum og aðeins eru leyfðar fjölnota umbúðir í skólanum eins og hægt er. Nemendur nota fjölnota brúsa fyrir vatn. Matarleifar úr morgunhressingu taka nemendur með sér heim aftur, meðal annars til að foreldrar geti séð hvað barnið borðaði af nestinu sínu. Þetta er hluti af umbótum skólans í umhverfismálum, en markmið þeirra er að fræða nemendur um samspil manns og náttúru, kenna samfélagslega ábyrgð og umhverfisvænt líferni.
Heilsuvika 5. - 9. september
Hlaupið meðfram sjávarsíðunni
Sumir njóta og ekki bara þjóta
Ávaxtastund
Vinafjölskyldur
Vinafjölskyldur efla tengsl og stuðla að auknu jafnræði meðal barna í Vesturbæjarskóla. Með vináttu og virðingu að leiðarljósi styðja fjölskyldur, sem þekkja skólasamfélagið, við fjölskyldur nýrra barna í skólanum. Markmið vinafjölskyldna er að öll börn hafi tækifæri til að taka þátt í skólasamfélaginu og njóti stuðnings fjölskyldu sinnar. Áhersla er lögð á móttöku fjölskyldna af erlendum uppruna, en verkefnið takmarkast þó ekki við þann hóp.
Vinafjölskyldur styðja við markmið Réttindaskóla UNICEF. Markmið Réttindaskóla er að byggja upp lýðræðislegt umhverfi með því að rækta þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpa börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í nútímasamfélagi. Í Réttindaskólum læra börn um mannréttindi sín og er réttindum þeirra fylgt eftir í skipulagi skólans, m.a. í samskiptum barna, kennara, starfsfólks, foreldra og frístundaleiðbeinenda.
Ef þið hafið áhuga á að vera vinafjölskyldur vinsamlegast hafið samband við umsjónarkennara.
Sjálfsmat nemenda
Dagur læsis 8. september - ábending til foreldra
Í Vesturbæjarskóla er heimanám lestrarþjálfun. Lestrarkennslan fer fram í skólanum en lestrarþjálfunin heima. Foreldrar hlusta á börn sín lesa, skrá lesturinn og skrifa hver hlustaði á barnið lesa.
Læsi verður til á löngum tíma. Lagður er grunnur að því á fyrstu árum ævinnar eða strax við máltöku. Áhersla á umræður, fjölbreytilega reynslu og lestur fyrir börnin tryggir þeim gott málumhverfi. Kostir þess að lesa fyrir börn eru ótvíræðir og margrannsakaðir en börn sem mikið er lesið fyrir hafa betri orðaforða og skilning á eðli ritmálsins. Hvort tveggja er mikilvæg forsenda fyrir velgengni í lestrarnámi. Lestrarnámið er samstarfsverkefni skóla og heimilis og ef báðir aðilar sinna hlutverki sínu vel verður útkoman góð. Lestrarkennslan fer fram í skólanum en lestrarþjálfunin heima. Til að kveikja áhuga á lestri er galdurinn sá að fá börn til að sjá ákveðinn tilgang og ávinning af því að lesa. Gott aðgengi að bókum sem varðar áhugasvið barna og bókaval er lykilatriði.
Útikennsla
Í Vesturbæjarskóla er löng hefð fyrir útikennslu í öllum árgöngum og eru fastir útikennslutímar í stundaskrá nemenda. Vinsamlegast athugið að klæða börnin eftir veðri.
Samráðsdagar 29. - 30. september
Formlegir samráðsfundir eru einu sinni á önn. Börnin undirbúa sig fyrir samráðsfundina með sjálfsmati sem þau gera heima með foreldrum.
Markmið samráðsfunda er að skapa jákvæð tengsl milli kennara, nemanda og foreldra, ræða um líðan nemanda í skólanum, skoða markmið og námsframvindu og auka kynni milli kennara, nemanda og foreldra.
Í ár ætlum við að prófa að undirbúa börnin fyrir að stýra fundunum. Tilgangur nemendastýrðra samráðsfunda er að valdefla nemendur og auka námsvitund þeirra. Einnig viljum við með þessu virkja þau til þátttöku á samráðsfundinum sjálfum. Börnin fá tækifæri til að skoða hvað þau eru að gera vel og hvað þau geta gert betur.
Opið er fyrir skráningu í viðtölin 20. - 23. september.