HÚSBRÉFIÐ
15. ÁRG., 8. TBL
DAGSKRÁ 25. FEB. - 1. MARS
MÁNUDAGUR 25. FEBRÚAR
Örfundur stuðningsfulltrúa á unglingastigi kl. 8
Nemendaverndarráðsfundur í Bs. 14:15
Heilsufarsmælingar í Bs.
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR
Nemendavernarráðsfundur í Hs. 14:15
Fagfundur erlend tungumál
Lífshlaupinu lýkur í dag
MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR
Deildarfundir:
Yngsta stig stofa 4 kl. 14:45
Miðstig stofa 2 kl. 14:45
Unglingastig stofa 33 kl. 14:45
Vigtun í Hamarsskóla!!!
FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR
Stjórnendafundur Hs. 14:00
Heilsufarsmælingar í Hs.
FÖSTUDAGUR 1. MARS
Lokaverkefni 10. bekkjar kynnt á foreldrafundi
Góða helgi, muna að athuga Vinnustund.
Árshátíð !!!
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Öskudagurinn - 6. mars. Nýtt tungl.
- Stóra upplestrarkeppnin áætluð fimmtudaginn 7. mars í Tónlistarskóla.
- Samræmd próf í 9. bekk 11., 12. og 13. mars og prófadagar í 8. og 10. bekk.
- 15. mars - 10. bekkur er í starfskynningu.
- 19. mars - Menntabúðir í Visku
Tilkynningar !!
- Þemadagar á miðstigi 26. - 28. febrúar. 100 ára saga Vestmannaeyjabæjar.
- Heilsufarsmælingar. Vera og Hrund mæla blóðþrýsing og kólesteról ef óskað er eftir því. Best að vera fastandi. Í Barnaskóla mánudaginn 25 feb. og fimmtudaginn 28. feb. í Hamarsskóla.
- 2. mars ÁRSHÁTÍÐ!
- Úrslit í grunnskólakeppni Lífshlaupsins - nemendur stóðu sig frábærlega: GRV hafnaði í 1. sæti í 9. skiptið!!! Til hamingju :D
- 5. mars - þróunarfundur.
- 6. mars kennarafundur
- 12. mars - fagfundur verkgreinakennara/íþróttakennara
- Munum að vera ekki að ganga um ganga skólans með opna kaffibolla með heitum drykkjum þegar börnin eru í skólanum. Það skapar hættu ! Lokuð kaffimál eru í lagi.
- Sleppum símanum þegar við erum að sinna nemendum.
- Yndislestur fyrst á morgnana - allir að lesa, líka kennarar og stuðningsfulltrúar.
- Minnum umsjónarkennara að senda stjórnendum samantekt frá foreldraviðtölunum.
- Við biðjum allt starfsfólk að yfirfara Vinnustundina vikulega. Gott að gera áður en farið er í helgarfrí.
- Nú þurfa kennarar í Bs. að skrá tíma í stofu 15.
Spakmæli vikunnar
Byrjaðu á að gera það sem er nauðsynlegt, síðan það
sem er mögulegt og allt í einu getur gert hið ómögulega.
St. Francis of Assisi (1181-1226)
Uppskrift - Gulrótar- og kókossúpa frá Zanzibar - vegan
fyrir 4
1 stór laukur
Smá bútur ferskt engifer (álíka og vínber að stærð)
4 hvítlauksgeirar
300 g gulrætur
150 g sætar kartöflur
2 msk kókosolía
2 tsk karrí
2 gerlausir grænmetisteningar
750 ml vatn
150 ml kókosmjólk
1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt) - eftir smekk
Hvítur pipar- eftir smekk
Smá klípa saffran (má sleppa en gefur fallegan lit)
Aðferð
- Afhýðið lauk, gulrætur, sæta kartöflu, engifer og hvítlauk og saxið gróft.
- Hitið kókosolíuna í potti og steikið laukinn þangað til hann fer að linast. Ef vantar meiri vökva, notið þá vatn.
- Bætið hvítlauknum og engiferinu út í og steikið áfram.
- Bætið karríinu út í og hrærið vel.
- Bætið helmingnum af vatninu út í og svo gulrótunum og sætu kartöflunum. Hitið þangað til grænmetið fer að mýkjast.
- Bætið afgangnum af vatninu ásamt grænmetisteningunum út í og hrærið vel.
- Látið malla í 15 mínútur eða þangað til grænmetið er orðið mjúkt.
- Bætið kókosmjólkinni út í.
- Bætið saffrani út í ásamt salti og pipar eins og þarf.
- Maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Kælið súpuna aðeins fyrst ef þið setjið hana í matvinnsluvél og blandið í smá skömmtum.
Nýtt fréttabréf Menntamálastofnunnar
Fyrsta fréttabréf Menntamálastofnunar hefur nú litið dagsins ljós en þar má finna nýjustu fréttir stofnunarinnar.
Með útgáfu mánaðarlegs fréttabréfs vill Menntamálastofnun auka upplýsingaflæði og koma á framfæri tíðindum af helstu verkefnum og atburðum á hennar vegum.
Hægt er að skrá sig á póstlista fréttabréfsins á síðu mms.is
Hér er fyrsta bréfið stútfullt af góðum greinum:
https://us12.campaign-archive.com/?u=16e65f0bc395f7da00f3a038d&id=dcd77c1d6f
Áhugaverðir tenglar er tengjast skólamálum
Skólaþræðir - tímarit samtaka áhugafólks um skólaþróun.
http://skolathraedir.is/Netla - veftímarit um uppeldi og menntun.
Menntavarp - er hlaðvarp um menntamál, framtíðina, nám og kennslu.
http://ingvihrannar.com/menntavarp/
Skemman - safn námsritgerða og rannsóknarrita.
Krítin - spjall um skólamál.
Tímarit um uppeldi og menntun
Fullt af góðu efni má finna á grv- fræðsla: https://www.facebook.com/groups/985308401484961/
Lífshlaupið - lokadagskrá
Mánudagur: 25. febrúar:
Sigga Stína - Pound í Friðarbóli kl 19:30 - 1.500 kr.
Kata H - sundleikfimi kl 18:30-19:15. Frítt!!!
Þriðjudagur: 26. febrúar:
Súsanna - dans kl. 20:00 í sal Hamarskóla.