Upplýsingaver Garðaskóla
♥️♥️♥️ hjarta skólans ♥️♥️♥️
Gleðilegt nýtt skólaár!
Verið velkomin í upplýsingaver Garðaskóla. Upplýsingaverið er einnig kallað Ásinn eða Miðjan. Nemendur geta sótt sér bækur til gagns og gamans frá kl. 8:10-14:30. Skilafrestur á bókum er 3 vikur. Á staðnum er góð aðstaða til að lesa, læra og vinna verkefni í tölvum. Hægt er að fá lánaðar Chrome fartölvur og spjaldtölvur til að vinna verkefni í tímum hjá kennurum. Þá geta nemendur sótt Google skólaaðgang sinn á staðnum. Nemendur geta einnig unnið verkefni í vínilskera og þrívíddarprentara. Ef bók sem þig langar að lesa er ekki inni getum við tekið hana frá fyrir þig og látum þig vita þegar hún er komin til baka. Hlökkum til að þjónusta ykkur í vetur.
Anna og Svanhildur
Nýjar bækur á safninu :)
📚 📚 📚 📚📚 📚 📚 📚📚 📚 📚 📚📚 📚📚 📚📚 📚 📚 📚📚 📚 📚 📚📚 📚 📚 📚📚
Kennarinn sem fuðraði upp!
Óvænt afbrýðisemi skýtur upp kollinum og einhver er með hræðileg og háleynileg áform sem munu breyta þessu öllu. Lífshætta steðjar að krökkunum og þau þurfa að glíma við leyndarmál og svik. Enn á ný reynir á samvinnu bekkjarfélaganna og ekki síst þeirra Óla Steins og Axels.
Hver er Beta Max?
Hvaðan komu öll þessi mannabein?
Hvað vakir fyrir Rúti?
- er hægt ad lifa af þegar madur er tekinn sem gísl?
Fjárfestingar
Byrjaðu að fjárfesta í dag.
Fjárfestingar fjallar um fjármál og fjárfestingar á áhugaverðan, aðgengilegan og hvetjandi hátt, án þess að svæfa þig úr leiðindum. Bókin er ætluð öllum sem hafa áhuga á því að fjárfesta, jafnt byrjendum sem lengra komnum.
Í bókinni er fjallað um allar helstu fjárfestinga leiðir og hún er uppfull af frábærum ráðum sem fólk getur nýtt sér við að ávaxta pening og taka góðar ákvarðanir í fjármálum.
Sjö systur
Maia D‘Aplièse og systur hennar fimm hittast á bernskuheimili sínu Atlantis – ævintýralegum, afskekktum kastala á bökkum Genfarvatns – eftir að faðir þeirra er látinn. Hann hafði ættleitt þær allar sem ungbörn frá ólíkum heimshornum og þær dýrkuðu hann, hver á sinn hátt. Við lát hans fá þær í hendur vísbendingar um uppruna sinn.
Maia fer yfir hálfan heiminn og í Río de Janeró í Brasilíu byrjar hún að púsla saman sögu sinni. Þar kemur byggingameistarinn Heitor da Silva Costa við sögu, en hann hafði þá áætlanir um að reisa gríðarstóra styttu, Krist frelsara.
Hver sá sem hefur aldrei gert mistök, hefur aldrei reynt neitt nýtt.
Albert Einstein
Nýtum tæknina :)
Google netföng nemenda
Allir nemendur Garðaskóla eru með Google netföng. Nemendur í 8. bekk nota sama fyrri hluta netfangs og sama lykilorð og þeir voru með í Hofsstaðaskóla, Flataskóla og Sjálandsskóla nema að netfangið endar á @gbrskoli.is. Ef nemendur muna ekki lykilorðið sitt geta þeir komið við í upplýsingaverinu og fengið nýtt lykilorð. Nýir nemendur koma einnig í upplýsingaverið til að fá netfang og lykilorð.
SPAKMÆLI
Ásinn - Tvisturinn – Þristurinn
Upplýsingaver skólans kallast einnig Ásinn. Tvisturinn er tölvustofan við hliðiná skólasafninu og Þristurinn er rýmið innaf skólasafninu en þar er green screen veggur, þrívíddarprentari, vínilskeri, tölvur og legokubbar.
Skólareglur í upplýsingaverinu
Nemendur geyma síma sína í vasanum, ganga hljóðlega um og ganga frá eftir sig.
Bókasafnsdagurinn er 8. september næstkomandi!
Fréttabréf Upplýsingavers 2022-23
Opnunartími:
Mán. 8:10-15:30
Þriðjudaga: 8:10-14:30
Miðvikudaga: 8:10-15:30
Fimmtudaga 8:10-15:30
Föstudaga: 8:10-14:30
Email: gardaskoli@gardaskoli.is
Website: www.gardaskoli.is
Location: Vífilstaðavegi
Phone: 590 2500
Facebook: https://www.facebook.com/profile.php?id=100054648660252