Hvalrekinn
Febrúar 2019
Í upphafi nýs árs
Þá styttist í langþráð vetrarfrí fyrir nemendur og starfsfólk skólans. En vetrarfríið verður fimmtudag og föstudag 21. og 22. febrúar. Daginn þar á undan, miðvikudag verður skipulagsdagur í skólanum en þá er Holtasel opið fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. Á skipulagsdeginum ætlar starfsfólk skólans og fræðast um kennslu í fjölmenningar- og fjölbreyttum nemendahópi.
Undanfarnar vikur höfum við notið þess að hafa snjóinn og nemendur verið duglegir að renna sér í brekkunum sem eru á skólalóðinni.
Vonum við svo innilega að allir hafi það sem best í vetrarfríinu og mæti aftur hress og kát mánudaginn 25. febrúar.
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri
Skipulagsdagur 20. febrúar
Miðvikudaginn 20. febrúar er skipulagsdagur í Hvaleyrarskóla. Þann dag fellur öll kennsla niður. Frístundaheimilið Holtasel er opið fyrir þau börn sem þar eru skráð. Vetrarfrí verður síðan í framhaldinu, fimmtudaginn 21. og föstudaginn 22. febrúar. Við vonum að nemendur og fjölskyldur þeirra hafi það gott í fríinu.
There will be no school for students on Wednesday the 20th of February as it is an inservice day for teachers and staff. There will be a Winter break on Thursday the 21st and Friday the 22nd of February. Holtasel is open for children who are registered. We hope all our students and their families will enjoy their winter break.
20 luty środa dzien organizacyjny w Hvaleyrarskóla. Swietlica jest otwarta dla uczniow zapisanych. Ferie zimowe 21 luty czwartek i 22 luty piątek. Zyczymy uczniom i ich rodzinom milego wypoczynku.
Vetrarfrí 21. og 22. febrúar
Þegar vetrarfrí er í skólunum þá er samt ýmislegt í boði má benda á dagskrá hjá bókasafni Hafnarfjarðar.
Venju samkvæmt er frítt í sund í vetrarfríinu og menningarstofnanir standa fyrir fjölbreyttri dagskrá. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á meðfylgjandi tenglum á íslensku, ensku og pólsku.
Vetrarfrí – frítt í sund og fjölbreytt dagskrá menningarstofnana
Ævar Benediktsson rithöfundur og vísindamaður
Dagur stærðfræðinnar
Nemendur í 1. bekk mældu t.d. ganginn fyrir utan stofurnar hjá sér í barnlengdum. Lengd gangsins reyndist vera 43 barnlengdir. Nemendur í 1.AUS eru þarna að mæla ganginn. En hvað ætli gangurinn sé langur í foreldralengd?
Nemendaferðir framundan
Viku seinna eða mánudaginn 4. mars fara svo nemendur í 7. bekk að Reykjum ásamt sínum umsjónarkennurum og dvelja þar einnig í fjórar nætur. Vonandi verður ekki síður skemmtilegt hjá þeim.
Skólasafn Hvaleyrarskóla – þar sem ævintýrin gerast
Skólasafnið er staðsett í hjarta skólans og því aðgengilegt öllum. Alla jafna er ýmislegt um að vera á safninu, ýmis þemu í gangi sem tengjast því sem er að gerast í skólanum, samfélaginu eða heiminum. Þannig er t.d. bókasafnsdagurinn haldinn hátíðlegur á landsvísu á haustin, auk þess sem um svipað leiti er sér-hafnfirska bóka- og bíóhátíðin. Margt er um að vera þegar norræna bókasafnavikan er haldin hátíðleg á Norðurlöndunum og skólasafnið hefur hvatt nemendur til þátttöku í lestrarátökum Ævars Þórs Benediktssonar rithöfundar og vísindamanns frá upphafi. Skólasafnið er staður þar sem ævintýrin gerast og gaman er að heimsækja, indælt að setjast niður til að slaka á, spjalla við félagana, læra eða taka í spil. 1. og 2. bekkir skólans eiga sína föstu safnatíma og er þá safnið lokað, en utan þess er það opið nær allan daginn og því auðvelt að kíkja í heimsókn. Ýmiskonar lestrarhvatning er á safninu, hvort sem hún er fólgin í bókaklúbbum, meðmælum, lukkuhjóli með lestrarhugmyndum eða útstillingum nýrra bóka. Síðustu ár hefur verið lögð áhersla á að fjölga barna- og unglingabókum á erlendum tungumálum til að koma til móts við sívaxandi nemendahóp af erlendum uppruna. Starfsfólk og velunnarar skólasafnsins hafa fært safninu bækur á erlendum tungumálum, gjarnan eftir ferðalög þeirra til framandi landa, og á því safnið orðið nokkurt úrval. Ekki nóg með að velunnarar safnsins komi færandi hendi með bækur á erlendum tungumálum heldur koma stundum bækur, tímarit og spil í kassavís á safnið, allt gjafir sem nýtast starfi safnsins mjög vel.
Það að geta gleymt sér yfir góðri bók/hljóðbók og dottið inní heim bókanna er dásamlegt. Það er fullorðinsmál að börnin okkar lesi, svo kennum þeim að meta töfraveröld bókanna, á hvaða formi sem þær eru, því galdur bókarinnar má ekki glatast. Og að því sögðu, lesum upphátt fyrir börnin okkar eins lengi og þau hafa áhuga á – það er ódýrt en ómetanlegt.
Heimalestur - Lestrarstund er gæðastund með barninu þínu
Góð ráð varðandi heimalestur
- Reyna að skapa reglu og gott andrúmsloft í kringum heimalesturinn strax í upphafi skólans þannig að lesturinn geti orðið ánægjuleg samverustund
- Ávallt að gefa sér góðan tíma og skapa jákvætt og gott andrúmsloft
- Byrja á að leyfa barninu að skoða bókina, jafnvel alla bókina í rólegheitum
- Gott er að byrja með 10-15 mínútum en lengja það svo smám saman
- Rifja upp stafi og hljóð sem barnið hikar við og fylgist með að það þekki örugglega alla stafina því það er grunnur að góðri lestækni.
- Hjálpa barninu að lesa aftur erfið eða löng orð.
- Barn og fullorðinn lesa til skiptis, til dæmis frá punkti til punktar (punktalestur).
- Barn og fullorðinn lesa saman (fara hægt yfir orð og texta, fingur undir því sem lesið er)
- Mikilvægt er að útskýra erfið orð (þá eykst skilningur og áhugi á að lesa áfram)
- Fullorðinn les hægt fyrir barnið og það fylgist með textanum
- Hrósa barninu fyrir það sem gengur vel til að uppörva það og hvetja.
- Fá barnið til að segja frá efni sögu, ræðið efni textans og látið reyna á ályktunarhæfni þess.
- Vera þolinmóð og jákvæð og láta barnið ekki heyra ef þið eruð áhyggjufull, talið við kennara ef lestrarnámið gengur ekki nægilega vel.
- Lesa fjölbreyttan texta t.d. sjónvarpsdagskrána, uppskriftir, fyrirsagnir úr blöðum og eitthvað sem barnið hefur áhuga á.
- Nota tölvu bæði til að finna myndir og skrifa sögur við myndirnar, (festir stafina og stafsetningu betur ), lesa texta af netinu sem þið veljið í sameiningu.
- Leysa verkefni inn á mms.is. Þar er mjög gott og fjölbreytt efni fyrir lestur og ritun. Fyrst þarf að velja dálkinn námsefni, síðan krakkasíður og svo íslensku.
- Taka upp lesturinn og lofa barninu að hlusta, getur verið spennandi.
- Lesa í hljóði áður en farið er að sofa eða að allir í fjölskyldunni finni tíma saman í 10-15 mín stilli klukku og allir eru að lesa í hljóði, segja jafnvel annað slagið frá bókinni sem þeir eru að lesa.
- Fara á bókasafnið og finna áhugaverðar bækur til að skoða og lesa heima.
Heimavinnuaðstoð í Hvaleyrarskóla
Um heimavinnuaðstoð / Heilahristing:
Heimavinnuaðstoðin er fyrir öll börn í 1. til 10. bekk. Markmið verkefnisins er að styrkja börnin í námi og kynna fyrir þeim þjónustu bókasafnsins í tengslum við nám og áhugamál.
Nánari upplýsingar veitir:
Hulda M. Rútsdóttir, Verkefnastjóri Rauða krossins, Netfang: hulda@redcross.is
Viðvera hjúkrunarfræðings
Hér má sjá upplýsingar um heilsuvernd skólabarna.
Á döfinni
Þann 25. febrúar fara nemendur í 9. bekk að Laugum.
26. febrúar - Upplestarkeppni Hvaleyrarskóla hjá nemendum í 7. bekk.
27. og 28. febrúar er myndataka hjá nemendum í 1., 4., 7., og 10. bekk. Sjá skipulag hér.
Þann 4. mars fara nemendur í 7. bekk að Reykjum.
Samræmd könnunarpróf verða hjá nemendum í 9. bekk þann 11., 12. og 13. mars.
Þann 15. mars fara nemendur í 9. og 10. bekk á Íslandsmótið í iðn- og verkgreinum og framhaldskólakynningu.
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/