Seyðisfjarðar- skóli
Fréttir frá okkur og vikan framundan 30.mars - 3.apríl
Við sátum ekki auðum höndum í vikunni
Nú er einmitt góður tími til að umpotta
Elstu leikskóla- deildarnemendur hafa verið mjög dugleg úti
Það bættust við spennandi leikföng í leikskóladeild
Allir nemendur viðruðu sig, sumir skruppu í folf
Á meðan 5.-6.bekkur fór í göngutúr og leiki í kirkjunni
Nemendur í 1. og 2.bekk fundu reyndar nýja brekku á hverjum degi
Nemendur í 7. bekk unnu að sjálfsmyndum í anda Fridu Kahlo
Vissir þú að frida Kahlo fæddist sama ár og Gamli skóli var byggður?
Það komu fram margar flottar myndir í þessu verkefni
Nemendur í 7. bekk skruppu líka í huganum í Reykholt
þau unnu að samfélags- fræðiverkefni um Snorra Sturluson
..... Mikið höldum við að hann hafi verið ánægður með laugina sína
Það hefur verið áberandi í skólanum að nemendur eru heilt yfir að taka þessum breytingum ótrúlega vel miðað við hvað dagurinn þeirra er breyttur frá því sem var og augljóst er að allir eru að gera sitt besta.
Um næstu viku 30.mars-3.apríl
Eins og hefur komið fram í fjölmiðlum og í tölvupósti til foreldra er skólum á Íslandi gert að halda úti skólastarfi eins og hægt er.
Þar sem að við metum að starfsemin í skólanum gengur vel eftir atvikum og sótthreinsun og þrif eru aukin og regluleg og við höfum gert ráðstafanir varðandi hópaskiptingar og samveru, þá ætlum við í næstu viku að halda áfram að mestu leyti eins og verið hefur í þessari viku sem er að líða.
Helstu ástæðurnar fyrir því að við höldum planinu óbreyttu eru að við vitum að það er mikilvægt fyrir nemendur að hitta félaga sína og hafa rútínu í deginum og það er mikilvægt fyrir heimilin að við gerum allt sem við getum til að halda úti kennslu og þjónustu. Það kom á daginn að við þurfum aðeins að bíða eftir leyfi frá Google Classroom varðandi fjarkennslugáttina fyrir miðstig og unglingana okkar en það tekur ríflega eina viku í viðbót og því verður fjarkennslugáttin ekki komin í gagnið fyrr en eftir páska. En það er viðbúið að við nýtum hana þá.
Varðandi gjöldin í leikskóladeildinni þá verða ekki send út nein gjöld núna þessi mánaðarmót. Við munum senda út rétt aprílgjöld og leiðrétt gjöld fyrir mars um næstu mánaðarmót.
Varðandi önnur gjöld þá hefur skert þjónusta áhrif til lækkunar á gjöld.
Mikilvægt að hafa í huga varðandi fjarnám og aukið heimanám
Heimili og skóli ráðleggur mikilvæg atriði þegar kemur að fjarkennslu og heimaskóla. Endilega kynnið ykkur þessar góðu ráðleggingar og nýtið ykkur þær. Í meginatriðum eru þær þessar:
- Sköpum ró og ramma
- Höfum raunhæfar væntingar
- Munið að skólinn ber ábyrgð á kennslunni en foreldrar skapa ramma
- Gerum hlé á vinnu og námi
- Verum í sambandi
Undir þessi ráð tökum við heilshugar.
Starfsmanna- fundur í grunnskóladeild í gær. Farið yfir stöðuna og næstu skref rædd
Ingibjörg tekur fagnandi á móti nemendum í dyragættinni á leikskóladeild
Ragga eldar fyrir nemendur í leikskóladeild
Látið ykkur líða vel um helgina góða fólk - við höfum margt að þakka fyrir- við hvetjum alla til að setja bangsa út í glugga og skella sér í göngutúr um helgina
Seyðisfjarðarskóli
Email: svandis@skolar.sfk.is
Website: https://seydisfjardarskoli.sfk.is/is
Location: Suðurgata 4, Seyðisfjörður, Iceland
Phone: 472-2320