Fréttabréf Norðlingaskóla
1. mars 2020
Efni þessa fréttabréfs:
- Foreldraskólavika og vetrarfrí að baki
- Myndir frá bekkjarþingi hjá 3.-4. bekk
- Upplestrarkeppni 7. bekkjar
- Samræmd próf hjá 9. bekk og árshátíð unglingadeildar
- Glímusmiðja á miðstigi
- Lestrarsprettur 23.-27. mars
- 100 daga hátíð hjá 1. og 2. bekk
- Foreldravarnir á síma og önnur tæki barna
- Myndir frá öskudegi
- Skólahreysti 2020
Foreldraskólavika og vetrarfrí að baki
Við vonum að allir hafi átt notalegt vetrarfrí og hafi hlaðið batteríin vel fyrir komandi verkefni í skólastarfinu.
Myndir frá bekkjarþingi hjá 3.-4. bekk
Þann 20. febrúar héldu 3. og 4. bekkur glæsilegt bekkjarþing sem er liður í því að auka nemendalýðræði í skólanum. Dagana á undan undirbjuggu nemendur sig með því að ræða ýmis málefni sem tengjast því að vera hluti af skólasamfélaginu, komast að sameiginlegri niðurstöðu og skipuleggja svo hver segir hvað á þinginu. Bekkjarþingið gekk framar vonum, nemendur stóðu sig frábærlega og við þökkum öllum aðstandendum kærlega fyrir komuna. Hér má sjá myndir frá bekkjarþinginu.
Upplestrarkeppni 7. bekkjar
Samræmd próf hjá 9. bekk og árshátíð unglingadeildar
- 10. mars - íslenska.
- 11. mars - stærðfræði.
- 12. mars - enska.
Árshátíð unglingadeildar er svo 18. mars og verður hún auglýst betur síðar.
Glímusmiðja á miðstigi
Lestrarsprettur 23.-27. mars
100 daga hátíð hjá 1. og 2. bekk
Foreldravarnir á síma og önnur tæki barna
Með því að setja upp slíkar foreldravarnir er til dæmis hægt að:
- takmarka notkun á ákveðnum tímum sólarhringsins
- setja tímamörk á ákveðin forrit
- hafa mismunandi tímalengd fyrir mismunandi daga
- banna aðgengi að efni sem ekki á erindi við börn
- koma í veg fyrir að börn geti sett sjálf inn ný öpp án samþykkis
- hægt er að skoða hvaða forrit eru notuð og hve lengi
Hér á heimasíðu skólans má nú sjá leiðbeiningar um hvernig foreldravarnir eru settar upp.
Myndir frá öskudegi
Skólahreysti 2020
Norðlingaskóli tekur þátt í skólahreysti 2020 eins og undanfarin ár og er undirbúningur hafinn í skólanum. Keppnin fer fram í Hafnarfirði í íþróttahúsinu að Ásvöllum, 19. mars. Þar keppa nemendur í 9.-10. bekk frá 13 skólum úr Breiðholti, Grafarvogi, Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti.
Forkeppni skólans verður föstudaginn 6. mars en þá keppa nemendur í 9.-10. bekk um sæti í liði skólans og er 8. bekk boðið að vera með í okkar keppni. Keppt er í hraðbraut, hreystigreip, armbeygjum, dýfum og upphýfingum.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 4117640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli