Föstudagurinn 20.mars
6.bekkur
Sælir kæru foreldrar/forráðamenn
Vikan hefur gengið vel. Nemendur eru ótrúlega duglegir og snöggir að aðlagast nýjum aðstæðum. Krakkarnir hafa haft íslensku og stærðfræði möppunnar í töskunni og við bendum þeim á að halda því áfram.
Næsta vika
Á mánudaginn stefnum við að því að æfa okkur betur í classroom svo nemendum verði sjálfstæðari í vinnubrögðum á þeim vettvangi. T.d. að komast inn á sinn eigin classroom reikning heiman frá.
Við erum að vinna okkur upp í það að hafa allar áætlanir þar inni.
Ykkur foreldrum er velkomið að kíkja þar inn með nemendum og sjá hvernig við erum að gera þetta.
Næsta vika verður með svipuðu sniði, þar sem við höfum jákvætt hugafar að leiðarljósi. Vona að þið öll eigið frábæra helgi.
Notendanafn og Lykilorð á Google
Eins og kynnt var í foreldraviðtalinu eru allir nemendur komnir með google reikning
hér eru upplýsingar um notendanafn og lykilorð.
Google account : 08nafn@naustaskoli.com
password : Nau(fyrstu 6 í kt. 080808) Nau080808