Stiklur
áttundiísúrutyppaáti
Þetta vikulega
Samskiptadagurinn gekk vel á þriðjudaginn...ég fékk allavega ekkert askvaðandi foreldri inn til mín kvartandi yfir starfsfólkinu, þó nokkrir starfsmenn fóru hamförum í tiltekt, bæði í fatahengi okkarog textílstofunni...svo hef ég sjaldan smakkað betri vöfflur... #góðurdagur
Íþróttadagur unglingastigs skólanna í Fjarðabyggð var á Reyðarfirði í gær, okkar krakkar stóðu sig með miklum sóma þar...eins og ávallt.
Í dag var svo snajlltækjabanndagurinn fyrsti, gekk hann stóráfallalaust fyrir sig.
Éf við kíkjum þá fram yfir helgina þá byrjar vikan með hvelli, Menntabúðir á Reyðarfirði á mánudaginn. Menntabúðir er gífurlega skemmtilegt fyrirbrigði og hvet ég sem flesta til að kíkja. Á þriðjudaginn verða síðan stigsfundir með ýmsum skemmtilegum fróðleik..stigsstjórar sjá um hann...á miðvikudaginn stefnum hefst svo danskennsla í yngri bekkjunum...nánar um það eftir helgi..
Tæki...tæki...tæki
Á snyrtilegu skrifstofunni minni er varla þverfótað fyrir tækjarusli, fyrir mér er þetta líkt og að fá flís í augað...þoliekkirusl... í næstu viku tekst mér þó vonandi að koma þessu dóti frá mér...80 Chromebooktölvur ætlaðar nemendum 7. - 10. bekkjar og á sjötta tug spjaldtölva...fyrir marga... :)
Eitt leyfisbréf
Fyrir áhugasama...ef þið hafið skoðun á málinu þá endilega sendið umsögn... :)