Nýsköpun
Vesturbæjarskóli Arna Björk H. Gunnarsdóttir
Kynning
Ég heiti Arna Björk, ég er kennari með brennandi áhuga á tækni, sköpun og nýsköpun í skólastarfi. Ég sótti UTÍS ráðstefnu á Sauðárkróki í nóvember. Þar var ég með menntabúð ásamt samstarfskonu minni Lindu. Við kynntum STEM-verkefni, Nýsköpun og ChatterPix. Haraldur sem sótti sömu ráðstefnu kom að máli við og bað mig um að halda kynningu fyrir 5. og 6. bekkja kennara á Reykjanesi.
Ég hef kennt Nýsköpun í Vesturbæjarskóla í 2 ár og var að hefja þriðja skólaárið í Nýsköpunarmennt. Námsefnið sem ég vinn með og kennslufyrirkomulag er í stöðugri þróun og ég er alltaf að læra eitthvað nýtt og betrumbæta það sem fyrir er.
Kennslufyrirkomulag
Í Vesturbæjarskóla er hefð fyrir því að hafa valtíma í hverri viku, þá velja nemendur viðfangsefni sem þeir vinna að í 2 kennslustundir. Viðfangsefnin tengjast öll námefni vetrarins á einn eða annan hátt en nálgunin er önnur en í hefðbundnu bóknámi. Tveir valtímar eru í hverri viku, s.s. 4 kennslustundir.
Ákveðið var í samráði við stjórnendur Vesturbæjarskóla að taka þátt í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanna og var ég fengin í það verkefni. Þar sem Nýsköpun er ekki enn námsgrein sem er kennd eins og aðrar list- og verkgreinar, heldur val hvers skóla þá var gripið til þess ráð að nýta valtímana fyrir Nýsköpunarmennt og markmiðið að taka þátt í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna.
Nemendur fá 3 x valtíma (6 kennslustundir í allt) í Nýsköpun. Þetta var leið skólans til að ná öllum nemendum í 5., 6. og 7. bekk. Skólar verða að finna sína leið en þetta hentar okkur vel. Hóparnir eru ekki stórir en 12 nemendur er fín hópastærð 15 nemendur er algjört hámark ef vel á að vera.
Ár eitt og tvö. Góðar hugmyndir
Tími: 6 kest (3 x 2kennslustundir)
Markmið: Þátttaka í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna.
Afurð: Útfyllt hugmyndablað, líkan úr leir eða veggspjald.
Efni:
Leir: hveiti, salt, vatn, hraðsuðuketill, Cream of tartar og olía.
Þankahríð: Post it miðar.
Hugmyndavinna: A3 blöð, skriffæri.
Líkan: Málning, rör, spítur, pípuhreinsarar.
Veggspjald: Tímarit, límstifti, A3 spjöld í mörgum litum.
Myndbönd sem gaman er að skoða með nemendum.
10 BRILLIANT Solutions To Everyday Problems
Brilliant Kid Inventors!
Vefsíður:
8 brilliant, everyday things invented by kids
Hér fyrir neðan eru linkar á námsbækur sem mms.is hefur gefið út, gott að glugga í þær til að skipuleggja kennsluna:
1. ár
1. tími
2 kennslustundir
Kynning á nýsköpun, horfum á myndband um nýsköpunarkeppni grunnskólanna, undirbúningur og umræður um nýsköpun
Myndband 1: Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2016
Myndband 2: Nýsköpunarkeppni kynning 2015
Búum til uppfinninga- og hugmyndabók sem fylgir nemendum sem þeir nýta til að skrifa niður hugmyndir.
Hugmyndablað skoðað, hugmyndir skrifaðar í uppfinninga- og hugmyndabók og hafist handa við að fylla út hugmyndablaðið. Hugmyndablaðið er prentað út í A3. Smellið á linkinn hér fyrir neðan til að prenta út blaðið.
1. ár
2. tími
2 kennslustundir
Nemendur vinna með hugmyndina sína og fylla út hugmyndablað, þeir nemendur sem klára að fylla út hugmyndablaðið mega búa til módel úr leir eða pappír.
Í þessum tíma er vefsíðan Crazy Kid's Inventions Turned into Real Products (16 pics) skoðuð, hér er gaman að sjá uppfinningar frá öðrum börnum, hér gefur á að líta margar góðar hugmyndir og nokkrar kannski ekki svo góðar en fyndnar og skemmtilegar. Hér er gott tækifæri til að ræða góðar hugmyndir og vondar hugmyndir, hvað einkennir góðar hugmyndir og hvað ekki.
Í þessum tíma er líka gaman að kíkja á myndbönd frá Ellen Show en hún fær stundum sniðuga krakka í þátt til sín, þeir sýna hugmyndir sínar og þetta er sprenghlægilegt. Sjá neðar á síðunni.
3. tími
2 kennslustundir
Hugmyndablað fyllt út og klárað, 3d módelið klárað. Nemendur kynna hugmyndina sína og hengja hugmyndablaðið upp fyrir framan stofuna.
Gott gengi Vesturbæjarskóla í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna
Árið 2018 vorum við með fjórar hugmyndir: Hjálmalásinn, Gufusugan, Handklæðaskápurinn og Bökunarplata sem breytir um lit eftir hitastigi.
Árið 2019 fóru þrjár hugmyndir áfram í keppnina en þær eru: Leiðréttingarappið, Umferðaröryggi og Áfyllingurinn.
Gufusuga
Hekla og Helena 6. bekk
Vesturbæjarskóli 2018
Gufusuga
Handklæðaskápur
Jóakim Uni 5. bekk
Vesturbæjarskóli 2018
Hjálmalás
Salka Nóa 6. bekk
Vesturbæjarskóli 2018
Hjálmalás
Bökunarplata sem skiptir um lit eftir hitastigi
Nói 6. bekk
Vesturbæjarskóli 2018
2. ár
1. tími
2 kennslustundir
1. Kynning: Rifja upp kynninguna frá því í fyrra, sýna myndbandið á youtube frá Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2016. Segja frá góðu gengi í keppninni árið 2019, sýna nemendum nokkrar myndir frá keppninni.
2. Þarfaleit: Kynna fyrir nemendurm hugtakið þarfaleit. Skipta nemendum í hópa, 2-3 nemendur í hverjum hópi. Nemendur skrifa niður á lista þau vandamál sem þeir rekast á í daglegu lífi. Hvert er vandamálið? Hver er þörfin? Nemendur fá 10 mínútur í umræður. Þegar tímanum er lokið þá tekur kennari blöðin og skiptir þeim á milli hópanna. Nemendur fá aftur 10 mínútur til að finna lausnir við vandamálum/þörfum hinna hópanna. Umræður um vandamál og lausnir. Voru lausnirnar í samræmi við vandamálið? Komu lausnirnar á óvart? Kom lausnin upphafsaðila vandamálsins á óvart? Öðruvísi lausn en sá/sú hafði hugsað sjálf/ur.
3. Grunnteikning: Kynna fyrir nemendum grunnteikningu og sýnikennsla á skjánum/töflu. Nemendur æfast í að teikna grunnteikningu, framan á, á hlið, bak við og ofan á.
4. Hugmyndablað: Nemendur fylla út hugmyndablað
5. Plakat eða módel úr leir: Þeir sem ná að klára fá að byrja á veggspjaldi eða leira módel af hlutnum sínum (ef tími gefst til væri gaman að búa til auglýsingu í imovie/green screen).
2. ár
2. og 3. tími
Nemendur ljúka við hugmyndablaðið og ef tími gefst þá búa þeir til 3d módel eða veggpjald.
Lesum rétt
Ingibjörg 5. bekk
Vesturbæjarskóli 2019
Fjölnota brúsar og áfylling
Karítas 7. bekk
Vesturbæjarskóli 2019
Umferðaröryggi
Helka og Helena 7. bekk
Vesturbæjarskóli 2019
SNILLISMIÐJUR
Hér er hægt að nálgast ýmsar upplýsingar og verkefni sem frábært er að nýta í nýsköpun.