Föstudagspóstur 2. og 3. bekkur
Vikan 8. - 15. nóvember
Kæru foreldrar og forráðarmenn
Vikan hefur gengið mjög vel hjá okkur. Á miðvikudaginn kom Ævar vísindarmaður í heimsókn til okkar og lás upp úr nýju bókinni sinni ,,minn eigin tölvuleikur". Krakkarnir voru mjög áhugasamir.
Við erum byrjuð að undirbúa afmæli Naustaskóla sem verður 22. nóvember.
Í næstu viku verður starfsdagur á mánudaginn og því ekki skóli þann dag. Frístund verður opin eftir hádegi.
Á miðvikudaginn, fimmtudaginn og föstudaginn verða þemadagar. En þá verður öllum nemendum skipt í hópa og unnið verður í stöðvum. Þemað er afmæli Naustaskóla. Skólinn byrjar á hefðbundnum tíma og er til klukkan 13:00. Frístund verður opin eins og vanalega.
Við munum byrja aftur að nota forritið Seesaw en það er mjög skemmtilegt forrit sem gefur foreldrum möguleika á að fylgjast með starfinu í bekknum. Við munum setja inn ýmis verkefni, myndir og hljóðupptökur. Það er einnig virkilega gaman fyrir nemendur ef þið hafið möguleika á að bregast við með annað hvort "líkar við" eða með athugasemdum. Það er mjög einfalt og þægilegt að hafa Seesaw family app í símanum. Foreldrar sjá aðeins færslur sinna barna. Endilega látið vita ef ekki gengur að skrá sig inn á Seesaw.
Á döfunni
Mánudagur: Starfsdagur
Þriðjudagur: Sund hjá 3. bekk.
Miðvikudagur: Þemadagur.
Fimmtudagur: Þemadagur.
Föstudagur: Þemadagur.
Góða helgi
2. og 3. bekkjar teymið
Email: silviab@akmennt.is
Website: www.naustaskoli.is
Location: Hólmatún, Akureyri, Iceland
Phone: 4604106