HÚSBRÉFIÐ
13. ÁRG., 7. TBL
DAGSKRÁ 23. - 27. OKTÓBER
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER
Nemendaverndarráð í BS kl. 8:30
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER
Nemendaverndarráð í HS kl. 13:30
List fyrir alla í HS (1.- 4. bekkur)
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER
Enginn fundur - undirbúningur fyrir foreldraviðtöl
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER
Foreldrafundadagur
Stjórnendafundur í BS klukkan 14:30
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER
Söngur á sal í Hs - sjá auglýsingu á skjá
Góða helgi.
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Menntabúðir í upplýsingatækni fyrir leik- grunn - og framhaldsskóla verða fimmtudaginn 26. okt frá 16:00-18:15 í sal FÍV: https://www.smore.com/w5370
- Aðalfundur starfsmannafélags GRV verður 1. nóvember kl. 15:30. Staðsetning auglýst síðar.
- Vanda Sigurgeirsdóttir verður með fyrirlestur fyrir allt starfsfólk miðvikudaginn 15. nóvember frá kl. 13:00 - 16:00.
- Vinavika 6. -10. nóv. Minnum kennara á að ræða við nemendur til að fá hugmyndir fyrir vinavikuna. Sokkadagur, náttfatadagur og svo framvegis.
- Baráttudagur gegn einelti verður 8. nóv. Vinabekkir heimsækja hvern annan þennan dag og nemendur vinna saman verkefni, dagskrá fyrir daginn send út fljótlega. Gerum líka eitthvað skemmtilegt saman í þessari viku.
- Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember.
- Dagur mannréttinda barna er 20. nóvember. https://www.mms.is/sites/mms.is/files/dagur_mannrettinda_barna_grunnskolar.pdf
- Lestur við sama borð - tvítyngdir nemendur fá aðstoð við heimalestur og heimanám á Bókasafni Vestmannaeyja á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum á milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
Tilkynningar !!
- Fulltrúar fjölskyldu- og fræðsluráðs ætla að heimsækja báða skóla í næstu viku ásamt Drífu Gunnarsdóttur fræðslustjóra.
- List fyrir alla verður með sýningu á söngleiknum Björt í sumarhúsi í Hamarsskóla þriðjudaginn 24. október. 1. og 2. bekkur klukkan 8:30. 3. og 4. bekkur klukkan 9:30.
- Lota no 2 í akademíunni er hafin, stendur yfir frá 18. október til 10. nóvember
- Fríða Hrönn námsráðgjafi bætir við sig viðveru í Hamarsskóla á fimmtudögum kl. 8:00 - 10:00.
- Skáld í skólum fyrir miðstig og unglingastig verða 17. nóvember.
- Skáld í skólum fyrir yngsta stig verður föstudaginn 3. nóvember.
Samantektin um Zachery Walker er vistuð inni á K drifi í möppu sem heitir kennsluaðferðir.
Eins og sést í bombubendils kynnningunni (ppt) þá eru mismunandi litir notaðir sem bakgrunnur á glærum, sumar voru grænar og aðrar gular. Zachery notar litina í þeim tilgangi að gefa vísbendingar um til hvers er ætlast af nemendanum. Þegar glæran er t.d græn þá veit nemandinn að kennarinn er að setja fram verkefni sem nemandi þarf að leysa, en þegar gul glæra birtist þá inniheldur glæran fróðleik frá kennara til nemenda.
Afmælisbörn
Ólöf Margrét Magnúsdóttir 23. október
Valgerður Bjarnadóttir 24. október
María Guðbjörg Pálmadóttir 27. október
Jóhanna Alfreðsdóttir 29. október
Lakkrísterta með sterkum djúpum
Botn
2 egg
2 dl sykur
100 gr smjör, bráðið
1,5 dl kornax hveiti
0.25 dl kakó
1 tsk vanillusykur,
100 gr hindber, frosin eða fersk
Fylling
25 gr smjör
150 gr súkkulaði með salmíakfyllingu
100 gr rjómaostur
3 msk flórsykur
Skreyting
2 dl rjómi, þeyttur
100 gr sterkar djúpur
Rifið súkkulaði, ef vill
Aðferð
Ofninn er stilltur á 175 c.
Botn: Þeytið egg og sykur þar til ljóst og létt. Bætið bráðnu smjöri út í og hrærið. Blandið saman hveiti, kakói og vanillusykri í skál. Hrærið hindberjunum og hveitiblöndunni út í eggjablönduna.
Smyrjið lausbotna form, ca. 24 cm í þvermál. Setjið deigið í formið og bakið í u.þ.b. 20 mínútur. Látið kökuna kólna og skiptið henni svo í tvo hluta svo að botnarnir verði tveir.
Fylling: Bræðið smjör og súkkulaði. Blandið rjómaostinum og flórsykrinum saman við þar til kremið er slétt og fínt. Kælið fyllinguna í ísskápnum og smyrjið henni svo á milli tertubotnanna.
Skreyting: Smyrjið helmingnum af rjómanum á tertuna og sprautið afgangnum á kantinn á kökuna. Skerið djúpurnar í bita og setjið ofan á kökuna ásamt rifnu súkkulaði.
Spakmæli vikunnar
Tækni er einungis verkfæri. Þegar kemur að því að fá krakka til að vinna saman
og hvetja þau er enginn jafn mikilvægur og kennarinn
- Bill Gates
Hrós vikunnar fá
GRV- google á facebook
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.