Menntabúðir Reykjavík
UT í námi og kennslu #menntabudir #menntastefna #UTHaf
Staðsetning: Stofa H-208 og H-209 í húsnæði Menntavísindasviðs v/Stakkahlíð
Hvenær: Þriðjudaginn 30. október kl. 16:15-18:00
Samstarfsaðilar: Upplýsingatæknitorg, Menntavísindasvið HÍ, RANNUM, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Skrifstofa fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðar.
Þema menntabúðanna að þessu sinn er mjög opið: "Upplýsingatækni í skólastarfi".
Skráning: https://goo.gl/forms/uzE77Nu94dhQ7DGk2
Þátttaka er ókeypis en við óskum eftir skráningu til að auðvelda utanumhald.
Dagskrá:
Við ætlum að breyta aðeins út af vananum og setja dagskrána upp í Padlet töflu. Þar sem þátttakendur munu stýra efnistökum.
Við biðjum ykkur um að setja "miða" á Padlet töfluna með því sem þú hefur áhuga á að kynnast í búðunum. Þetta getur einnig verið eitthvað sem þú vilt læra, fá svar við spurningu, aðstoð við verkefni, almennt spjall um ákveðið málefni og hvað þú vilt kenna, kynna, ræða um.
Í stuttu máli getur þú sett miða inn um hvað þú vilt kynna þér og hvað þú vilt kynna fyrir öðrum.
Slóðin er: https://padlet.com/uppltorg/menntabudir2018
Kynningar:
- Stórt og lítil Makey Makey og Merge kubbar - Hildur Rudolfsdóttir, UT kennsluráðgjafi Garðaskóla
- Samspil 2018 starfsþróun og starfssamfélög í þágu menntunar fyrir alla - Tryggvi Thayer, verkefnastjóri Menntamiðju
- Google Classroom - Ragnheiður Líney, UT kennari og kerfisstjóri spjaldtölva í Lindaskóla
- Tækjaforritun og líkanagerð - Raspberry Pi, Micro:bit og P5.js - Martin Swift, verkefnastjóri Vísindasmiðju HÍ
- QR-kóðar í leikskólum - Svava Pétursdóttir, lektor við MVS HÍ
- Samþætting Mentor og Google Classroom - Andrea og Brynja, verkefnastjórar hjá Menntor.
- Inna, námsumhverfi framhaldsskóla - Jón Hjalti.
- Nearpod, gagnvirkar glærur - Lára Bergljót
- Book Creator - Svanhvít og Katrín
- Að kenna eðlisfræði með aðstoð leikja - Þröstur Kerbal Space
- Stærðfræði með Desmos - Loftur
- Choice Works dagskipulag (iOS stýrikerfi) - Halldóra G.
- OneNote glósur - Ásta Karen
- Siri í enskukennslu, skipulag, orðabók, leitartæki - Guðný
- Google Earth í landafræðikennslu - Margrét Stefánsdóttir
- KeyWe, hugmyndahvetjandirafræn stílabók - Ólafur Stefánsson
- Mixtúra margmiðlunarver og Búnaðabanki SFS - Erla Stefáns
Hlökkum til að sjá ykkur!!
Bjarndís Fjóla, Sólveig Jakobsdóttir, Þorbjörg Þorsteinsdóttir og Erla Stefáns.
Samstarfsaðilar: UT-torg, Menntavísindasvið, RANNUM, Reykjavíkurborg og Hafnarfjörður
Menntabúðir (e. EduCamp) er starfsþróun á jafningjagrundvelli. Aðferðin byggir á óformlegri jafningjafræðslu sem stuðlar að aukinni umræðu á milli skólastiga sem og eflingu tengslanets kennara. Þátttakendur miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum.
Menntabúðir eru opnar öllum en sérstaklega miðaðar að starfandi kennurum á öllum skólastigum sem og kennaranemum (sjá myndskeið neðst á síðunni).
Þátttakendur geta mætt með umfjöllunarefni sem þeir brenna fyrir eða hafa áhuga á, en einng hefur verið vinsælt að koma með "vandamál" og fá aðstoð við að leysa það.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með framlag í búðirnar. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námskrárvinnu, varpa fram spurningu eða koma með eitthvað málefni sem þarfnast lausnar.
Ekki er ætlast til að allir komi með framlag. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku. Með virkri þátttöku er átt við að ganga á milli stöðva, spjalla og spyrja spurninga. #menntabudir #menntastefna
Menntabúðir - Upplýsingatækni í skólastarfi Stofa H-208 og H-209
Tuesday, Oct 30, 2018, 04:15 PM
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, Stakkahlíð, Reykjavík, Iceland
UT-torg
Email: bjarjons@gmail.com
Website: http://uttorg.menntamidja.is/
Phone: 8630535
Facebook: https://www.facebook.com/upplysingataeknitorg/?ref=bookmarks
Twitter: @UT_torg