Alþjóðadagur læsis
8. september 2019 - Akureyri
Læsi er lykillinn
ViÐburÐir á Akureyri 8. september 2019
Kl. 16:00-16:15 - Útibókasöfn vígð við Amarohúsið í miðbænum
Í tilefni af Degi læsis voru sett upp þrjú útibókasöfn á Akureyri í sumar. Bókasöfnin voru hönnuð og smíðuð af ungmennum í vinnuskóla Akureyrarbæjar undir stjórn Brynhildar Kristinsdóttur, smíðakennara.
Í bókasöfnunum verða barnabækur sem gestir og gangandi geta notið á ferð sinni um bæinn. Það má taka bækur úr bókasöfnunum, skoða þær og skila aftur en það má líka taka bækur með heim og eiga þær. Einnig má gefa vel með farnar bækur í skápana og gefa þeim þar með nýtt líf.
Verkefnið minnir á mikilvægi læsis, eykur aðgengi að bókum og hvetur til samveru fjölskyldunnar á útisvæðum bæjarins, einnig stuðlar það að sjálfbærni og umhverfisvernd þar sem notaðar bækur og endurvinnanlegur efniviður er lagður til grundvallar.
Bókasöfnin verða vígð við Amarohúsið í miðbænum klukkan 16:00. Allir velkomnir!
Boðið verður upp á vöfflur í Eymundsson að vígslu lokinni.
Kl. 16:15-17:00 - Penninn Eymundsson - Tenerife krakkabókin - Geggjað stuð fyrir hressa krakka
Ragnheiður Inga Matthíasdóttir, 11 ára rithöfundur, segir frá ferðahandbókinni, Tenerife krakkabókin - Geggjað stuð fyrir hressa krakka, sem hún skrifaði í samstarfi við móður sína um ævintýraeyjuna Tenerife. Bókin byggð á reynslu Ragnheiðar en hún bjó á Tenerife í ár með fjölskyldunni sinni. Bókin er skrifuð fyrir krakka og í henni er sagt frá öllu því sem krökkum finnst gaman að skoða og gera.
Tenerife er geggjuð eyja og þar er nóg að gera fyrir hressa krakka. Veðrið er svo gott þar að þú getur alltaf farið út að leika. Þar eru líka klikkaðir skemmtigarðar, frábærar ísbúðir, djúsí matur og æðislegar strendur (Ragnheiður Inga Matthíasdóttir, 2019).
Meðal umfjöllunarefna í bókinni eru:
Bestu ísbúðirnar – Brimbretti – Vatnsrennibrautagarðar - Dúkkur - Trampólín - Tvímenningshjól - Dýragarðar - Afrófléttur - Smáhestar - Go kart.
Ragnheiður les upp úr bókinni, segir frá tilurð hennar og svarar spurningum frá áheyrendum.
Kl. 16:15-17:30 – Penninn Eymundsson
Lestrarvöfflurnar í Eymundsson eru orðnar fastur liður á Alþjóðadegi læsis á Akureyri. Boðið verður upp á sjóðheitar, ilmandi vöfflur, kaffi og notalega stemmingu í bókabúðinni frá kl. 16.15–17.30.
Viðburðir dagsins eru styrktir af Barnamenningarsjóði Íslands,
IKEA, Menningarsjóði Akureyrarbæjar, Norðurorku og Pennanum Eymundson.
Lestur úti og inni
Hægt er að sækja göngukortin rafrænt með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan. Pappírsútgáfu af Akureyrarkortinu má einnig má nálgast á Amtsbókasafninu eða í vöfflukaffinu í Eymundsson.
Það er tilvalið að skella sér í sunnudagsgöngutúr á degi læsis, finna bækurnar og lesa saman.
Útibókasöfn á Akureyri
Í ár eru 10 ár síðan að Dagur læsis var fyrst haldinn hátíðlegur á Íslandi og að því tilefni var ákveðið smíða þrjá bókaskápa sem gætu staðið utandyra, nokkurs konar útibókasöfn.
Bókasöfnin voru hönnuð og smíðuð af ungmennum í vinnuskóla Akureyrarbæjar í samstarfi við Brynhildi Kristinsdóttur smíðakennara. Skáparnir hafa verið nefndir Skógarstræti, Múmínstræti og Disneystræti og eru þeir ólíkir, ævintýralegir og allir með einhverjum hætti tengdir sögum og bókum.
Bókasöfnin eru staðsett í miðbænum við Amarohúsið, í Lystigarðinum og í Boganum. Í þeim eru notaðar bækur sem vegfarendur mega lesa og skila eða eiga. Einnig má gefa vel með farnar bækur í skápana og gefa þeim þar með nýtt líf.
Það er von okkar að skáparnir muni veita vegfarendum gleði og hvetja til lesturs í dagsins önn.
Við þökkum styrktaraðilum okkar, Barnamenningarsjóði, IKEA, Menningarsjóði Akureyrarbæjar og Norðurorku kærlega fyrir stuðninginn.
Þema AlÞjóÐadags læsis í ár er læsi og fjöltyngi
Í samverustundunum lesa sjálfboðaliðar fyrir börnin, spjalla við þau eða spila. Þau geta einnig fengið aðstoð við heimalesturinn eða önnur tilfallandi verkefni.
Þessa dagana er Rauði krossinn að auglýsa eftir áhugasömum sjálfboðaliðum í verkefnið. Áhugasamir geta haft samband við Lindu Guðmundsdóttur í netfangið lindagudmunds@redcross.is eða í síma 461-2374.
AmtsbókasafniÐ á Akureyri
Á Akureyri erum við svo heppin að hafa aðgang að Amtsbókasafninu í hjarta bæjarins. Amtsbókasafnið eða Amtið eins og það er oft kallað í daglegu tali er notalegur staður þar sem öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við sitt hæfi.
Á safninu eru uppákomur og menningarviðburðir í hverjum mánuði og má þar nefna t.d. tónleika, sýningar, fyrirlestra, námskeið, smiðjur og klúbbastarf.
Hér fyrir neðan má nálgast viðburðadagatal bókasafnins:
AmtsbókasafniÐ á samfélagsmiÐlum
Amtsbókasafnið er virkt á samfélagsmiðlum. Hægt er að fylgjast með starfseminni bæði á Facebook og Instagram en þar slá starfsmenn safnsins gjarnan á létta strengi, mæla með góðum bókum og segja frá því sem um er að vera hverju sinni.
Barnastarf á Amtsbókasafninu
Á Amtsbókasafninu er rúmgott svæði fyrir börn og unglinga, þar er hægt að setjast niður, lesa bækur eða tímarit og láta fara vel um sig.
Bókasafnið leggur mikla áherslu á barna- og unglingastarf. Tekið er á móti skólahópum reglulega, sögustundir eru alla fimmtudaga klukkan 16:30 fyrir yngstu safngestina og reglulega eru haldnar skemmtilegar uppákomur fyrir alla fjölskylduna þar sem t.d. er föndrað eða spilað.
Spilaklúbbur á Amtsbókasafninu
Á Amtsbókasafninu er boðið upp á spilaklúbb fyrir börn á aldrinum 9-13 ára. Klúbburinn hittist á kaffihúsi safnsins, Orðakaffi, aðra hverja viku. Hrönn Björgvinsdóttir, bókavörður, leiðir hópinn.
Allir krakkar á aldrinum 9-13 ára eru hjartanlega velkomnir! Ekkert þátttökugjald.
Engin þörf er á að skrá sig fyrirfram, nóg er að mæta á staðinn.
Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi spilaklúbbsins í hóp á Facebook. Nánari upplýsingar veitir Hrönn á netfanginu: hronnb@akureyri.is
Sumarlestur - Akureyri bærinn minn
Á sumrin stendur Amtsbókasafnið í samstafi við Minjasafnið á Akureyri fyrir lestrarnámskeiðum í júní. Námskeiðin eru vikulöng og eru ætluð fyrir börn sem eru að ljúka 3. og 4 bekk.
Markmiðið er að börnin lesi sér til ánægju, efli lestrarfærni og kynnist bænum sínum.
SkoppaÐu á bókasafniÐ
Yfir sumartímann er boðið upp á lestrarátakið Skoppaðu á bókasafnið. Átakið er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára. Krakkarnir skoppa á bókasafnið, velja sér bók og taka þátttökumiða, lesa bókina og skila miðanum. Í september er uppskeruhátíð þar sem happdrættisvinningar eru afhentir og fleira skemmtilegt er í boði.
Bókaáskorun Amtsbókasafnsins
#52bækur #26bækur #10bækur
Bókaáskorun Amtsbókasafnsins hefur slegið í gegn. Það er ekki of seint að seint að vera með, hver og einn getur lagað áskorunina að eigin markmiðum, aðalatriðið er að lesa og njóta. Hægt er að ganga í Facebookhóp, þar sem þátttkendur mæla með bókum, með því að smella HÉR.
RafbókasafniÐ og Libby
Rafbókasafnið er eins og nafnið gefur til kynna rafrænt bókasafn sem býður upp á fjölbreytt úrval raf- og hljóðbóka sem hægt er að fá lánaðar án endurgjalds. Rafbókasafnið er aðgengilegt öllum sem eiga bókasafnsskírteini.
Í Rafbókasafninu eru bæði hljóðbækur og rafbækur. Flestar bækurnar eru á ensku en úrvalið af íslensku efni er alltaf að aukast.
Raf- og hljóðbækurnar er hægt að lesa og hlusta á vef safnsins, eða í snjalltækjum með smáforritunum Overdrive eða Libby.
Læsi og lestraruppeldi
Njótum lesturs
Nýtum tímann vel og njótum samverunnar.
Hér fyrir neðan má hlaða niður nokkrum góðum ráðum til að efla læsi fyrir foreldra leikskólabarna:
Samstarfshópur um AlþjóÐadag læsis
Bestu kveðjur,
Brynhildur Þórarinsdóttir - Barnabókasetur
Hólmfríður Björk Pétursdóttir - Barnabókavörður
Pia Sigurlína Viinikka - Bókasafn Háskólans á Akureyri
Sigurbjörg Rún Jónsdóttir - Fræðslusvið Akureyrarbæjar