Vikupistillinn
Tímabilið 10. - 16. desember 2018
Heilræði vikunnar
"Vináttan er hæsta fullkomnunarstigið innan mannlegs samfélags."
Montaigne
Punktar
- Öðruvísi jóladagatal: Heldur áfram þessa vikuna lokadagur 14. desember.
- Jólahvalamiði: Munum eftir jólahvalamiðunum. Hver miði gildir 2 stig.
- Við minnum á nemendaviðtöl Olweusar. Umsjónarkennarar taka viðtöl við sína umsjónarnemendur og aðrir kennarar bera ábyrgð á að taka nemendaviðtöl við þá nemendur sem rekast illa hjá þeim. Hér er hægt að nálgast nemendaviðtalsblaðið. Eftir viðtölin er blaðið sett í persónumöppu barnsins.
- Við minnum á að forföll starfsfólks þarf að tilkynna símleiðis fyrir kl. 7:40. Þá viljum við biðja starfsfólk um að láta vita ef um veikindi er að ræða og það komi ekki næsta dag. Það auðveldar okkur að leysa forföllin.
- Hvalrekinn fréttabréf Hvaleyrarskóla leit dagsins ljós í vikunni og má sjá hér.
Mánudagur 10. desember
- Jólastund á sal þar sem 1. bekkingar taka á móti leikskólanemendum i hverfinu kl. 13:00.
- Kirkjuheimsókn 7. BJG kl. 09:00.
- Verið - miðdeild - jólaföndur.
- Verið - elsta deild - poolmót.
Þriðjudagur 11. desember
- Jólasamvera hjá miðdeild.
- Heimanám Rauða krossins er í fríi og verður því ekki.
- Jólabíó starfsfólks í fyrirlestarsalnum kl. 14:10. Nemendum elstu deildar gefið leyfi frá kl. 14:10.
- Það þarf að ganga frá Vinnustundinni í dag.
Miðvikudagur 12. desember
- Allir að mæta í jólapeysum.
- Jólasamvera hjá yngstu deild.
- Kirkjuheimsókn 5. HÁ kl. 09:00.
- Kirkjuheimsókn 6. SL kl. 10:50.
- Jólamatur í boði fyrir starfsmenn.
- Fundur nemendaverndarráðs kl. 13:15.
- Verið - elsta deild - spilakvöld.
Föstudagur 14. desember
- Lokadagur öðruvísi jóladagatal.
- Fundur hjá lausnateyminu kl. 13:30.
- Verið - miðdeild - 6. bekkjarkvöld.
- Verið - elsta deild - 8. bekkjarkvöld.
Fréttir frá Bjargi
Hana, nemandi í Bjargi er byrjuð að fara í listgreinar og íþróttir.
Muna að loknum vinnudegi
- Loka gluggum og slökkva ljós, einnig þurfa allir stólar vera hengdir á borðin, og ekkert má vera á skólaborðum nemenda.
- Læsa kennslustofu.
- Læsa útidyrahurð ef farið er út eftir kl. 16:00.
Samvera hjá 7. SHS
Það var flott samvera hjá 7. SHS, píanóleikur og fjölbreyttir leikir.
Piparkökumálun foreldrafélagsins
Foreldrafélagið var með piparkökumálun á miðvikudaginn 5. desember.
Jólabingó nemendaráðsins
Nemendaráð skólans stóð fyrir og stýrði flottu jólabingói á miðvikudagskvöldið 4. desember.
Tiltekt vikunnar
Við ætlum að biðja nemendur í 1. BÆ og Björk umsjónarkennara þeirra að sjá um tiltekt á skólalóðinni þessa vikuna.
Afmælisdagar í desember
Hulda Sólveig þann 6. desember, Marfríður þann 7. desember, Zulaia þann 8. desember, Sigurborg þann 12. desember, Malen þann 14. desember, Páll þann 16. desember, Gunnur þann 20. desember og Alda þann 29. desember. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :-)
Sjáið þið stærðfræðina í hluta afmælisdaganna í desember? Gaman að þessu.
Á döfinni
- Hér má nálgast skipulag á litlu jólunum 2018 hjá öllum árgöngum.
- Hér má nálgast skiptingu starfsfólks á litlu jólunum 2018.
- Hér má nálgast skipulag á 19. desember fyrir kennara elstu deildar.
- Skipulagsdagur föstudaginn 4. janúar hefst með fyrirlestri kl. 8:30.
https://www.youtube.com/watch?v=vvR66bZBCIk
https://www.youtube.com/watch?v=yXQViqx6GMY&list=PLyn1b86Ad_a6KrXeRMyX2LMSgStSeQUgb
Námslotur í InfoMentor
https://www.youtube.com/watch?v=Im_octtkUis
https://youtu.be/Nk9Yu9wx3-Q
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200