Fréttabréf Norðlingaskóla
Desember
Efni þessa fréttabréfs:
- Mikilvægar dagsetningar
- Menningarmót og foreldraskólavika
- Heimsókn frá slökkviliðinu
- Lestrarsprettur
- Nemandi Norðlingaskóla tekur þátt í stórsýningu
- Íslenskuverðlaun unga fólksins
- Rithöfundaheimsóknir (Bjarni og Kristín Helga)
- Leikrit hjá 7. bekk
- Aðventan
Menningarmót og foreldraskólavika
Heimsókn frá slökkviliðinu
Lestrarsprettur
Á bókasafninu er jólalestrarklúbbur kominn á fulla ferð og eru margir spenntir að fá jólasveinalímmiða eftir þrjár lesnar bækur.
Hér má nálgast skemmtilegt jólalestrarbingó frá Heimili og skóla sem er skemmtilegt að nota á aðventunni eða í jólafríinu og á vef Menntamálastofnunar er hægt að taka þátt í jólasveinalestri.
Nemandi Norðlingaskóla tekur þátt í stórsýningu
Íslenskuverðlaun unga fólksins
Rithöfundaheimsóknir
25. nóvember heimsótti Kristín Helga Gunnarsdóttir nemendur í unglingadeild. Hún fjallaði um tilurð bókar sinnar Vertu ósýnilegur: Flóttasaga Ismaels, en nemendur í unglingadeild hafa nýverið lesið bókina og unnið verkefni henni tengd. Hún sagði svo frá nýútgefinni bók sinni sem ber nafnið Fjallaverksmiðja Íslands og las kafla úr henni. Unglingarnir okkar voru einstaklega áhugasamir og hlustuðu af athygli á Kristínu Helgu.
3. desember fáum við heimsókn frá Arndísi Þórarinsdóttur og Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur rithöfundum sem ætla að lesa fyrir 1.-4. bekk og Blær Guðmundsdóttir mun einnig hitta 3.-4. bekk 9. desember.
Leikrit hjá 7. bekk
Aðventan
Norðlingaskóli tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli en markmiðið er að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks. Einn af þeim þáttum sem er lögð sérstök áhersla á þessa dagana í skólanum er hugleiðsla og slökun en það er ef til vill sérstaklega mikilvægt að huga að því í annríkinu í desember. Hér má finna slökunar- og hugleiðslusögu sem er hugsuð fyrir alla fjölskylduna til að skapa góða stund fyrir svefninn. Hér má nálgast hugleiðslujóladagatal með því að skrá sig á póstlista og fá senda um mínútulanga örhugleiðslu daglega fram að jólum.
Síðasti kennsludagur fyrir jól er 19. desember og kennsla hefst á nýju ári þann 3. janúar.
Við óskum þess að aðventan verði ykkur gleðileg og friðsæl.
Norðlingaskóli
Email: nordlingaskoli@rvkskolar.is
Website: www.nordlingaskoli.is
Location: Árvað 3, Reykjavík, Iceland
Phone: 411-7640
Facebook: facebook.com/nordlingaskoli