Vikupistillinn
Tímabilið 22. - 28. janúar 2018
Heilræði vikunnar
“Að eignast vin tekur andartak...
að vera vinur tekur alla ævi.”
Næsta vika
- Búið er að opna fyrir lestrarpróf Lesferils sem eru inn á Skólagátt Menntamálastofnunar. Þeim þarf að ljúka fyrir námsviðtölin 30. janúar.
- Stöðumat í öllum fögum á að vera komið inn í dagbók nemenda í Mentor fyrir 26. janúar.
- Logosskimun hjá 3. bekk í janúar og febrúar.
- Orðarún hjá 4. - 8. bekk.
- Hér má sjá myndir frá afhendingu á spjöldum til nemenda í 10. bekk.
Mánudagur 22. janúar
- Ný önn í skólasókn og valgreinum elstu deildar hefst. Nemendur fá nýja stundatöflu.
- Byrjað verður á að lána nemendum elstu deildar skápa.
- Logosskimanir hjá 3. bekk hefjast í dag.
Úlfhildur verður til staðar í tölvustofu frá kl. 14.15 til að aðstoða kennara við gerð á námslotum í Mentor. Um að gera að nýta.
Þriðjudagur 23. janúar
- Samvera hjá miðdeild.
- Fundur hjá nemendaráði kl. 14:00
- Við ætlum að halda smá kveðjukaffi fyrir hana Gurrý okkur kl. 15:00 - 16:00.
Miðvikudagur 24. janúar
- Samvera hjá yngstu deild.
- Fundur hjá eineltisteymi kl. 10:40.
- Fundur hjá nemendaverndarráði kl. 13:15.
Fimmtudagur 25. janúar
- Nýta fundartímann til undirbúnings námsviðtala.
Föstudagur 26. janúar
- Síðasti dagur til að setja inn stöðumat í dagbók nemenda í Mentor.
Fréttir úr Bjargi
Þann 13. janúar 2018 var Anastasia Beridze 2. MI send aftur til Georgíu.
Þann 16. janúar 2018 voru systkinin Elidona Arifaj 9. GB og Edison Arifaj 2. IVJ frá Albaníu send til baka.
Við eigum eftir að sakna þeirra mikið og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.
Frá afhendingu spjaldtölva til 9. bekkinga.
Frá afhendingu spjaldtölva til 9. bekkinga.
Jón Ragnar kom og var með forvarnarfræðslu fyrir 8. bekkinga.
Afmælisdagar í janúar
Anna Rós á afmæli þann 8. janúar, Lóa og Sif Heiða eiga afmæli þann 10. janúar, Kolbrún á afmæli þann 11. janúar, Helga Eyja á afmæli þann 14. janúar, Hilmar Trausti á afmæli þann 16. janúar, Edda og Elísa eiga afmæli þann 20. janúar og Agnes á afmæli þann 22. janúar. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með daginn :)
Tiltekt á skólalóðinni
Nú biðjum við 8. WR að rölta út og taka til á skólalóðinni okkar.
Umsjónarkennarar unglingadeildar og stjórnendum var boðið í kaffiveislu hjá bökunarvali. Þar sem boð svignuðu undan kræsingum.
Hér er Margrét Öss ásamt þeim Amöndu Sif, Páli Þór og Hönnu Lilju.
Dæmi um kræsingarnar.
Á döfinni
- Logosskimun hjá 3. bekk fer fram 22. janúar til 12. febrúar.
- Námsviðtöl eru 30. janúar.
- Könnunin Ungt fólk 2018 verður lögð fyrir nemendur í 8. - 10. bekk þann 6. febrúar.
- Kynning á framhaldsskólunum verður fyrir nemendur elstu deildar í Flensborgarskólanum frá kl. 17 - 18:30.
- Grunnskólahátíðin verður 7. febrúar fyrir nemendur í 8. - 10. bekk.
- Sigga Dögg kynfræðingur verður með fræðslu fyrir nemendur í 8. og 10. bekk þann 12. febrúar ásamt fræðslufundi fyrir foreldra um kvöldið.
- Öskudagur 14. febrúar.
Námslotur í Mentor
https://www.youtube.com/watch?v=jvS6zqJ86W4
Vikupistillinn
Email: kristinn@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200