Stiklur
Loksins - loksins - loksins
Þá haustið hálfnað er...
Þrátt fyrir Stiklu-laust haust hefur verið líf og fjör í skólanum okkar: BRAS, gönguferðir, salir, Erasmusheimsókn, þemadagar o.m.fl. Hér koma nokkur atriði undanfarinna og komandi daga og vikna. Endilega skellið á mig línu fyrir skemmtilegar Stiklu-fréttir..gamlar sem nýjar vel þegnar... :)
Þemadagar
Því miður missti ég af lokaviðburði þemadaga, sýningunni, en allir sem ég hef heyrt í voru ánægðir með hana; góð mæting var, Viðar hefur sjaldan séð skólalóðina svo snyrtilega og áfram mætti telja.
Erasmus+ verkefni
Eins og áður hefur komið fram erum við aðilar að tveimur Erasmus-verkefnum. Annarsvegar er sjöundi bekkur með Helgu Ósk í fararbroddi að vinna stórt og flott verkefni með Svíum, Finnum og Lettum. Hinsvegar eru elstu árgangarnir að vinna með Eistlendingum, Lettum, Dönum og Portúgölum. í byrjun október fór einmitt fyrsta lota seinna verkefnisins fram. Hér í skólanum voru 21 nemandi og 8 kennarar frá áðurnefndum löndum. Meðal verkefna sem þau gerðu var að mæla sýrustig vatns og örplasts í sjó, kolefnisjafna ferðalagið sitt með gróðursetningu, heimsækja Kárahnjúkavirkjun o.m.fl.
Útikennsludagur
Þann 7. nóvember n.k. er alþjóðlegur útikennsludagur, https://outdoorclassroomday.com/, gaman væri að sem flestir nemendahópar geti tekið þátt í deginum og jafnvel skráð viðburðinn á síðu verkefnisins. Mér finnst t.d. hafa verið gaman að fylgjast með sumum árgöngum skella sér út í hvaða veður sem er.
Fundir
Þriðjudagar eru áfram helstu fundadagar okkar. Í næstu viku er vetrarfrí svo þá verður enginn fundur. Ég breytti aðeins áður auglýstu skipulagi og setti stigsfundi á í lok október í stað starfsmannafundar. Á þeim fundum er til dæmis tilvalið að taka til umræðu góðan póst frá "uppeldi til ábyrgðar" hópnum í vikunni og hjálpast að við verkefnin sem stungið er upp á þar. Við byrjum svo nóvember á starfsmannafundi.
Hóparnir
Það er ekki bara uppeldi hópurinn sem er á fullu, mikil og góð virkni er í öllum hópunum: endilega svarið upplýsingatækni gúrúunum í þeirra könnunum svo veit ég að Olweusar hópurinn horfir til alþjóðlegs baráttudags gegn einelti sem er 6 nóvember n.k. Þá er heilsuhópurinn okkar á fullu að undirbúa málþing vorsins.
Vetrarfrí - Vetrarfrí - Vetrarfrí
Á mánu- og þriðjudaginn er kærkomið vetrarfrí haustannar. Vonandi njótið þið þess og við sjáumst sv hress og endurnærð á miðvikudaginn kemur.
Boney M. - Hooray! Hooray! It's a Holi-Holiday (Sopot Festival 1979) (VOD)