HÚSBRÉFIÐ
12. ÁRG., 5. TBL
DAGSKRÁ VIKUNNAR 19. - 23. sept.
MÁNUDAGUR 19. september
Göngum í skólann: Keppni um "Gullskóinn 2016" heldur áfram.
ÞRIÐJUDAGUR 20. september
Fundur á Bókasafni Vestmannaeyja kl. 17:00 fyrir foreldra erlendra nemenda vegna lestrar- og heimanámsstuðnings.
MIÐVIKUDAGUR 21. september
Fagfundur í samfélagsfræði í Bs kl. 14:00.
Fagfundur í samfélags- og náttúrufræði í Hs kl. 13:45?
Enginn kennarafundur - kennarar vinna í áætlunum
FIMMTUDAGUR 22. september
Samræmt próf í 7. bekk íslenska
Stjórnendafundur kl. 14:30
FÖSTUDAGUR 23. september
Samræmt próf í 7. bekk stærðfræði
Áhugaverð atriði næstu vikur
- Google aðstoð: Guðbjörg verður með opinn tíma í tölvustofu Bs frá kl. 13:00 þriðjudaginn 20. sept.
- Göngum í skólann Keppni um Gullskóinn í 2. - 7. bekk stendur yfir 12.- 23.sept. http://www.gongumiskolann.is/
- Samræmd próf í 7. bekk verða 22. og 23. sept. og í 4. bekk 29. og 30. sept. Kennarar í þessum árgöngum eru beðnir um að skoða upplýsingar um samræmd próf inni á mms. Einnig er gott að likea þessa facebook síðu: https://www.facebook.com/rafprofmms/?fref=ts.
Tilkynningar !!
- Fundur á Bókasafni Vestmannaeyja þriðjudaginn 20. september kl. 17:00 fyrir foreldra erlendra nemenda um lestrar- og heimanámsstuðning á Bókasafni Vestm.
- Brightonfarar - Í hólfinu ykkar er miði með upplýsingum um hvað á að greiða erlendis. Millifærið á reikning Starfsmannafélagsins, það þarf að gerast fyrir kl. 12:00 mánudaginn 19. september. Munið eftir að setja nafnið ykkar í skýringu.
- UTÁ- þarfaplattar: Þeir sem eiga eftir að greina sig þurfa að klára það og hengja þá upp.
- Lesferill - nýtt matstæki frá Menntamálastofnum sem metur læsi. Prófin verða lögð fyrir í september, janúar og maí. Búið er að opna fyrir september prófin, komin inn á skólagáttina, opið er fyrir prófin frá 12. sept. - 12. okt. Prófun byrjaði í síðustu viku og stendur áfram í þessari viku.
Limra vikunnar
Nú er offramboð mætra manna
sem mörg nýleg dæmi sanna
fyrst er prófkjör og röðun
síðan pólitísk böðun
og svo grátur og gnístran tanna.
Hrós vikunnar fá
Dóra Guðrún, Bjartey, Guðbjörg, Nína og Herdís fyrir góðar kynningar fyrir skólana á föstudaginn. Vel gert :)
Spakmæli vikunnar
Lífið er skóli. Þeir sem láta kærleika og hjálpsemi stjórna sér útskrifast með sóma.
GRV- google á facebook
Þeir sem hafa ekki gerst meðlimir af þessari síðu á facebook endilega geri það sem fyrst.
Hér má finna leiðbeiningar og ýmislegt tengt google.
GRV - fræðsla á facebook
Endilega fylgjast með á facebook síðunni GRV- fræðsla. Þar má finna ýmislegt fræðandi og skemmtilegt. M.a. má finna glærurnar frá Páli Ólafssyni sem var með frábæran fyrirlestur miðvikudaginn 24. ágúst.
Bekkjarsáttmáli
Skemmtleg hugmynd af bekkjarsáttmála frá Höfn.
Skákkennsla í 4. bekk
Sæfinna verður með skákkennslu í 4. bekk í vetur.
Náttúruvísindadagar í 8. - 10. bekk
Jóhanna og Anna Ýr segja frá Sigríðarslysinu.